Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Síða 17
Þetta átak hefur haft í för með sér mikla
hópeflingu fyrir deildina. Starfsfólk hefur
æft saman, gengið á Esju og unnið
saman að því að skipuleggja hlaupið. Tíu
hjúkrunarfræðingar fóru til dæmis saman
að hlaupa í Mosfellsdal og borðuðu svo
súpu heima hjá einum þeirra.
í ár verður gefið út nýtt jólakort og eru
kortin tilbúin. Von fékk mynd eftir Ólöfu
heitna Pótursdóttur en hún lamaðist eftir
alvarlegt hestaslys og málaði myndina
með munninum. Ættingjar hafa stutt
útgáfuna og lagt til mynd. „í ár höfum við
sett markið hátt, við ætlum að selja 10.000
kort! Þar þurfa allir að taka höndum
saman og selja. Hagkaup mun selja kort
fyrir okkur og er það gífurlegur styrkur
fyrir okkur. Við munum að sjálfsögðu
selja kortin á gjörgæslunni. Lilja, ritari
hjúkrunar, selur áfram fyrir okkur með
gífurlegum dugnaði og fleiri staðir munu
verða auglýstir síðar," segir Sesselja. Allir
sem áhuga hafa á að kaupa jólakort geta
sent tölvupóst á von@landspitali.is.
Tilgangur Vonar er að styrkja skjól-
stæðinga gjörgæsludeildar og aðstand-
endur þeirra á margvíslegan hátt. Strax
í upphafi var ætlunin að gera upp
aðstandendaherbergið sem brýn þörf
var á að endurnýja en ekki höfðu fengist
peningar til. „Fyrst ríkið hefur ekki efni á
að gera þetta fyrir okkur verðum við að
hjálpa okkur sjálf," eins og Sesselja orðaði
þetta í viðtali í Morgunblaðinu í ágúst
2007. Húsgögn voru keypt í IKEA þar
sem stjórn Vonar fékk stuðning og góð
ráð um litaval og annað. Meðal annars
voru keyptir tveir svefnsófar sem var
mikil þörf á. í haust hafa smiðir spítalans
unnið að uppsetningu eldhúsinnréttingar
og skilrúma og herbergið er nýmálað.
Nýuppgert aðstandendaherbergi gjörgæsludeildarinnar. Eftir er ýmis frágangur en mikið álag hefur verið
á starfsfólki í haust og ekki gefist tími að Ijúka verkinu.
Landspítali ætlar að leggja til tölvu.
Starfsfólk deildarinnar hefur komið með
bækur og aðra smámuni. Eftir er að
kaupa myndir og annað skraut, setja upp
hillur og lagfæra Ijós.
Um jólin 2007 veitti Von tveimur
sjúklingum veglega styrki og er markmiðið
með sölu jólakorta í ár að geta veitt fleiri
einstaklingum, sem orðið hafa fyrir áfalli,
styrk. Sesselja segir að nú verði þörfin
líklega enn meiri en áður. „Á þessum
ógnvænlegu tímum, þegar atvinnuleysi
er að aukast og krónan orðin einskis
virði, er það íslenskur almenningur sem
bíður mestan skaða. Því verður þörfin á
hjálp í ár gífurleg. Við hjúkrunarfræðingar
stöndum vel og þurfum ekki að óttast
atvinnumissi. Því er mikilvægt að vera
virkur á þessum erfiðu tímum," segir
Sesselja og heldur áfram: „Það er svo
auðvelt að gera eitthvað. Við öll höfum
nóg og flest of mikið svo það kostar okkur
hreinlega ekkert nema tíma að koma
einhverju góðu til leiðar. Það þarf bara að
framkvæma hlutina. Með framtaki okkar
á gjörgæslunni í Fossvogi sýnum við
hversu auðvelt og jákvætt það er að ekki
bara bíða eftir að eitthvað gerist heldur
framkvæma sjálfur.
Möguleikarnir eru margir. Ég hugsa til
minnihlutahópa sem svo auðvelt gæti
verið að styrkja.
í ár þurfum við að sýna sérstaklega mikla
samstöðu hér á íslandi, hugsa um fólkið
okkar sem þarf á hjálp að halda. Þetta eru
skilaboð okkar, starfsfólks gjörgæslunnar
í Fossvogi, á þessum tímum sem okkur
óraði auðvitað ekki fyrir þegar við hófumst
handa við þetta verkefni."
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
15