Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 22
Anna Gyða Gunnlaugsdóttir ræddi við ritnefnd um
vinnu sína og um Tímarit hjúkrunarfræðinga.
á svæðinu. Þá voru vandamál varðandi
mönnun Önnu Gyðu hugleikin. Við henni,
líkt og mörgum öðrum stjórnendum úti
á landi, blasir sú stóra spurning hvernig
eigi að freista þess að fá fagfólk í vinnu
út á land en einnig hvernig eigi að
hlúa að og halda í þá sem fyrir eru en
samkvæmt reynslu Önnu Gyðu hefur
reynst erfitt að fá hjúkrunarfræðinga,
lækna og sjúkraþjálfara út á land. Á
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi vinna nú 8-
10 hjúkrunarfræðingar en greinilegt er
að lítið má út af bera í mönnun á svo
litlum stað til að til vandræða horfi.
Þrátt fyrir þessa erfiðleika segir hún
starf sitt afskaplega skemmtilegt og afar
fjölbreytilegt. Telur hún til að mynda
að hér fái aldraðir mjög góða þjónustu
og háls- og bakdeildin á sjúkrahúsinu
er öflug deild þar sem er árangursrík
teymisvinna, og hjúkrunarfræðingar hafa
verið að byggja upp slökunarmeðferð
og fræðslu, m.a. lífsstílsbreytingar. Anna
Gyða, sem er sérfræðingur í hjúkrun
sjúklinga með verki, hefur mikinn áhuga á
að bæta þjónustu á háls- og bakdeildinni,
einkum lyfjameðferð við verkjum, og telur
hjúkrunarfræðinga hafa þar mikilvægt
hlutverk. Möguleikarnir eru því miklir fyrir
hjúkrunarfræðinga sem vilja koma og sinna
sjálfstæðum hjúkrunarviðfangsefnum í
góðum hópi fagmanna.
Er talið berst að tímariti okkar hjúkrunar-
fræðinga er hún óhrædd við að senda
okkur aðeins tóninn. Hún minnir á að
hjúkrunarfræðingar eigi sjálfir að taka þátt
í að skapa sitt eigið blað með skrifum
og umræðum og finnst skoðanaskipti
skorta í blaðið. Spurningin sé hvort
hjúkrunarfræðingar séu of siðaðir og
kurteisir og hafi ekki í námi eða vinnu lært
að skiptast kröftuglega á skoðunum og
tala um það sem betur má fara. Ekki sé
alltaf hægt að bera við tímaleysi því þegar
hjúkrunarfræðingar komi ekki skoðunum
sínum á framfæri virki þeir óspennandi,
skoðanalausir og heimóttarlegir. Teljum
við í ritnefndinni þetta orð í tíma töluð og
hvetjum hér með hjúkrunarfræðinga til
að reka af sér slyðruorðið með auknum
skrifum í blaðið.
Sjúkrahúsið í Stykkishólmi.
Eftir kvöldverð á bensínstöðinni
í Stykkishólmi innan um tvist og
fjölþykktarolíu, þar sem boðið var upp á
einstaka mínútusteik með frönskum og
kokteilsósu á pappadiskum, hélt ritnefnd
ánægð heim á leið í haustmyrkrinu.
Nefndin stefnir ótrauð að því að leggja
upp í aðra slíka ferð á nýjar slóðir í vor.
Katrín Blöndal er sérfræðingur í hjúkrun
á skurðsviði Landspítala og formaður rit-
nefndar.
Velkomin til Danmerkur
í samvinnu við danskar heilbrigðisstofnanir hefur Daniajob verið falið
að kanna hvort einhverjir íslenskir hjúkrunarfræðingar gætu hugsað sér að
sækja um þau margvíslegu störf sem í boði eru í Danmörku.
Áhugasamir þurfa aðeins að senda tölvupóst á íslensku með nafni og
menntun á info@daniajob.dk titlað “starf”. í framhaldi af þeim upplýsingum
verður haft samband við viðkomandi og farið verður yfir þær stöður sem í
boði eru. í byrjun 2009 mun Daniajob skipuleggja ferðir umsækjanda til
Danmerkur þar sem haldnir verða fundir með umsækjandum og yfirmönnum
þeirra stofnana sem teljast áhugaverðar._
Ferðin til Danmerkur er viðkomandi
að kostnaðarlausu.
Farið er með allar upplýsingar og
samskipti sem trúnaðarmáL
info@daniajob.dk )
20
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 5. tbl. 84. árg. 2008