Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Page 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Page 27
Hjaltalín landlækni. Þaö vafðist ekkert fyrir herra Hjaltalín og höfundi bókarinnar að hjúkrun væri sjálfstæð starfsgrein. Ef til vill hefði Hjaltalín hugsað sig tvisvar um að nota orðið hjúkrunarfræði ef hann hefði órað fyrir að hjúkrunarkonur mundu tæpri hálfri öld síðar krefjast, í krafti kvenfrelsisbaráttunnar, sjálfstæðis frá læknastéttinni (Nielsen, sjá þýðingu Jóns Hjaltalín, 1881). í erindisbréfi yfirhjúkrunarkonunnar á Kleppi frá árinu 1908 kemur skýrt fram að hún er undir eftirliti og umsjón geðveikralæknisins. Geðveikralæknirinn tekur allar ákvarðanir en hún ber m.a. ábyrgðina á að sjúklingar fari sér ekki að voða og húsmunir séu ekki skemmdir. 7. grein erindisbréfsins lýsir þó nokkuð vel stöðu yfirhjúkrunarkonunnar: „Hún má ekki fara burtu af heimilinu án vitundar geðveikralæknisins og ber henni yfirleitt að framkvæma allt það er læknir segir henni fyrir um" (bls. 28). Sjálfsmynd kvenna og réttindabarátta þeirra hefur ætíð haft áhrif á þróun hjúkrunarstarfsins og hefur enn. Á fyrstu áratugum tuttugustu aldar mótuðust kröfur um formlega menntun til að geta veitt hjúkrun á íslandi og þriggja ára hjúkrunarnám varð til. Fyrstu íslensku hjúkrunarkonurnar eru því menntaðar erlendis vegna þess að formlegt nám í geðhjúkrun var ekki til á íslandi (Kristín Björnsdóttir, 2005). Þetta á einnig við um Þóru J. Einarsdóttur, fyrstu yfirhjúkrunarkonuna á Kleppsspítala, en hún stundaði hjúkrunarnám í Edinborg í Skotlandi. Við stofnun Klepps og undir forystu Þóru verður geðhjúkrun til sem starfsgrein á íslandi. Fyrir þann tíma var geðsjúklingum gjarnan komið fyrir hjá bændum úti um sveitir landsins. Þekking fólks á umönnun geðsjúkra var lítil, úrræði fá og aðbúnaður illur þar sem geðsjúklingarnir dvöldu. Það er til marks um þær miklu vonir sem bundnar voru við fyrstu hjúkrunarkonurnar á Kleppsspítala hversu skýrt kemur fram í reglugerðinni um afnot geðveikrahælisins á Kleppi árið 1908 að hjúkrun sé mikilvægur hluti af starfsemi og þjónustu hælisins. í annarri grein reglugerðarinnar segir m.a. „Að undanteknum a) fábjánum, þ.e. mönnum sem vitskertir hafa verið frá fæðingu, og b) mönnum sem eru svo aðframkomnir af öðrum sjúkdómum, að auðsætt er að þeir eigi ekki langt eftir ólifað, tekur geðveikrahælið til lækningar og hjúkrunar geðveika menn hérlenda eftir því sem rúm leyfir, gegn 50 aura meðgjöf á dag með hverjum manni ef hann er þurfamaður...“ (bls. 29). Þóra J. Einarsson 1907-1910 Fyrsta hjúkrunarkonan á Kleppsspítala var Þóra J. Einarsson (f. 1876, d. 1953) Yfirhjúkrunarkona og hjúkrunarkonur á gamla Kleppi. Myndin er sennilega tekin 1931. Efri röð frá vinstri: Magnea Björg Ólafsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Auður Jónsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir og Margrét Kristjánsdóttir. Sitjandi frá vinstri: Helen Leerskov, Jórunn Bjarnadóttir yfirhjúkrunarkona og Emma Jósefína Finnbjarnardóttir. frá Vallanesi á Fljótsdalshéraði. „Hún stundaði framhaldsnám erlendis bæði í meðferð berklaveikra og geðveikra. Hún lauk námi frá The Royal Infirmary í Edinborg í byrjun október 1903 og var vitnisburður skóians um hana mjög lofsamlegur. Hún var yfirhjúkrunarkona á Kleppsspítala frá 1907-1910. Litlum sögum fer af Þóru sem forstöðukonu á Kleppi en þegar hún var hætt kom upp sá kvittur að hún hefði farið illa með sjúklinga og þess vegna verið látin fara.“ Þetta var þó borið til baka af samstarfsfólki hennar (bls. 25). Samkvæmt tölvupósti tii Óttars frá ættingja Þóru þá þótti það aldrei dularfullt í fjölskyldu hennar að hún hætti störfum á Kleppi. Fjölskyldan telur sig hafa það fyrir satt að hún lenti í kjaradeilu. Það átti að greiða dönsku hjúkrunarkonunum á Kleppi hærri laun en henni og hún lét ekki bjóða sér það og tók við sjúkrahúsinu á ísafirði. Þar stofnaði hún fyrsta verkakvennafélagið árið 1917. Það litla sem til er af skráðum heimildum um hjúkrunarkonurnar á Kleppi og þeirra hlutverk í árdaga Klepps snýr t.d. að gæslu sjúklinganna, þ.e. hver ber ábyrgð á að standa við klefadyr hvers sjúklings til að gæta hans svo ekkert komi fyrir hann. „Það er vitanlega satt og ómótmælanlegt, sem sagt hefir verið, að læknirinn getur ekki alltaf staðið við klefadyr sjúklinganna. En mér finnst," segir Þóra J. Einarsson yfirhjúkrunarkona, „að almenningur megi ekki ætlast til þess, að ég geti það - þó ég sé hjúkrunarkona. Ég þarf að sofa, eins og aðrir." Þessar umræður koma í kjölfar sjálfsvígs sem átti sér stað á Kleppi árið 1908. En Þóra bendir á að aðbúnaður og skipulag á Kleppi sé ekki nægilega góður til að koma í veg fyrir slys þar (Úr dagbókum Þóru Jónsdóttur Einarsson. Úr heimildasafni Óttars Guðmundssonar við gerð bókar um Klepp). Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008 25

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.