Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 52
p <0,339) og átti þaö einnig við um unglingana (x2(1, N = 559) = 2,06, p <0,151). í hvorugum aldurshópnum var munurinn marktækur. sem almennt ófremdarástand á heimilinu og var líkamlegt ofbeldi þá oftast tilgreint. Á mynd 3 sést skipting svara við sömu spurningu eftir aldri og kyni. Hvar heyra börn um heimilisofbeldi? Þeir sem þekktu orðið heimilisofbeldi voru spurðir hvar þeir hefðu heyrt það. Gefnir voru fimm valkostir og mátti merkja við fleiri en eitt atriði, sjá mynd 2. Svarmöguleikinn „í blaði eða bók“ var einungis í unglingalistanum. Á mynd 2 sjást svör þátttakenda í hlutfallstölum skipt eftir aldri og kyni. f heild var algengast að þátttakendur hefðu heyrt um heimilisofbeldi í sjónvarpi (N = 661,58,8%) og þar næst í skóla (N = 593, 52,7%). Hluti þátttakenda nefndi mömmu (N = 240, 21,3%). Það svar og að segjast hafa heyrt orðið í skóla kann að tengjast umræðu um þessa könnun, t.d. samþykkisöflun. Eins og áður sagði voru kennarar beðnir að ræða ekki um efnið við börnin fyrir fram. Marktækur kynjamunur var á flestum svarmöguleikum í hópi unglinga. Fleiri unglingsstúlkur en drengir sögðust hafa heyrt orðið í sjónvarpi (x2(1, N = 562) = 4,16, p <0,041), ískóla (x2(1, N = 562) = 6,64, p <0,010) og í blaði eða bók (x2(1, N = 562) = 17,36, p <0,001) og þetta voru algengustu þrjú svörin. Um fjórðungur unglingstúlkna (N=60, 24%) sagðist hafa heyrt um heimilisofbeldi hjá vinum en það var hærra hlutfall en meðal unglingsdrengja (N = 37, 11,9%). Unglingsstúlkunum var samkvæmt þessu tamara að ræða um heimilisofbeldi við vini en drengjunum (x2(1, N = 562) = 14,33, p <0,000). Önnur svör voru fátíðari, að hafa heyrt orðið hjá mömmu (x2(1, N = 562) = 3,393, p <0,048); á Netinu (x2(1, N = 562) = 5,24, p <0,02) en einnig þar var kynjamunur marktækur en það átti ekki við um svörin „hjá pabba“ (x2(1, N = 562) = 1, 35, p <0,244); og „annars staðar" (x2(1, N = 562) = 0,08 p <0,781). Á mynd 2 sést að stúlkur tilgreindu fleiri uppsprettur að vitneskjunni en drengir og fóru í nokkrum tilvikum fram úr drengjunum hvað þær snerti. Skiigreining á heimiiisofbeidi Börnin voru beðin að svara því skriflega hvað átt væri við með orðinu heimilisofbeldi í því skyni að athuga skilning þeirra sjálfra. Spurningin var opin og svörin flokkuð eftir á. Tafla 2 sýnir hlutfallslega skiptingu svara barna og unglinga. Um helmingur barna og fjórðungur unglinga svöruðu spurningunni ekki efnislega heldur skrifuðu hugtakið „ofbeldi á heimilum" eða svipað og virtust ekki skilja það eða svarið var ekki viðhlítandi. Þetta bendir til að erfitt hafi verið að svara þessu, einkum fyrir börnin, en spurningin var opin til að fá fram skilning þátttakenda. Ekki kemur á óvart að fleiri unglingar en börn geti útskýrt við hvað er átt. Algengustu efnislegu svörin voru að foreldri, stjúpforeldri, ýmist tilgreind í eintölu eða fleirtölu, eða systkini meiði, lemji eða fari á annan hátt illa með börnin á heimilinu, þ.e. að barnið væri skilgreint sem þolandi, og svöruðu fleiri unglingar en þörn á þann veg. Næstalgengast var að einhver væri laminn eða meiddur á heimilinu og að gerandi væri tilgreindur. Svipað hlutfall barna (11%) og unglinga (13%) skilgreindu hugtakið Tafla 2. Hvað heldurðu að átt sé við þegar talað er um heimilisofbeldi? (%) (%) Börn Unglingar Ofbeldi á heimilum (svarað með orðunum ofbeldi á heimilum) 25,6 23,0 Veit ekki, virðist ekki skilja spurninguna, svarar ekki 27,3 4,6 Samtals gefa ekki svar: 52,9 27,5 Foreldrar/eldri systkini meiða/lemja börnin 13,5 29,7 Gerandi (fjölskyldumeðlimur) tilgreindur: „Pabbinn lemur mömmuna," „einn meiðir annan“ 11,2 23,5 Almennt svar, en yfirleitt tilvísun í líkamlegt ofbeldi: „Verið að rífast og slást," „slagur á heimilinu" 10,7 12,6 ; Kynferðislegt ofbeldi er tiltekið 1,8 5,9 Rifrildi, blóta, öskra 7,8 0,4 ; Annað 2,1 0,4 í hópi barna sögðust fleiri drengir (17,3%) en stúlkur (12,1%) að heimilisofbeldi fæli í sér að rífast og slást og vísuðu þá yfirleitt til líkamlegs athæfis. í flokkunum „rifrildi" og „rifrildi og slagsmál á heimilinu" samanlögðum var hlutfall yngri drengja 27% sem verður að teljast nokkuð hátt. Mun fleiri drengir (um 30%) á unglingsaldri en stúlkur (17%) svöruðu ekki efnislega. Fleiri unglingsstúlkur (um 30%) en drengir (21%) tilgreindu geranda í svörum sínum og voru svör stúlknanna nákvæmari að þessu leyti. Eins og áður sagði var lögð áhersla á að athuga almenna þekkingu þátttakenda. Ekki var álitið rétt að spyrja hvort þeir hefðu orðið fyrir ofbeldi í könnun af þessu tagi en athugað var í hvaða mæli börnin þekktu persónulega til ofbeldis á heimilum. Vegna þess möguleika að þau byggju sjálf við ofbeldi var gefinn kostur á svarinu „vil ekki svara" sem annars var ekki notað í könnuninni. í töflu 3 sést dreifing svara. Tafla 3. Þekkir þú einhvern sem hefur orðið fyrir ofbeldi heima hjá sér? Börn Unglingar Fjöldi Hlutfall (%) Fjöldi Hlutfall (%) Já 82 14,6 113 20,5 Nei 302 54,7 325 58,5 Veit ekki 109 19,5 93 16,7 Vil ekki svara 63 11,2 24 4,3 Alls 556 100,0 555 100,0 50 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.