Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 60

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2008, Qupperneq 60
óskir um að stjórna útliti vefaðgangs og reynslu af aðgangi að eigin heilbrigðisupplýsingum voru já og nei. Þeir sem höfðu beðið um aðganginn voru spurðir hvort þeir hefðu fengið hann, frá samdægurs til alls ekki (fimm svarmöguleikar). í spurningum um notkun tölvu, Internets, töivupósts og heimabanka voru sex svarmöguleikar, frá oft á dag eða daglega til aldrei, og um kaup á vörum og þjónustu um Internetið og samskipti við TR voru sex svarmöguleikar, frá vikulega til aldrei. Raðbreytur höfðu fimm svarmöguleika, frá sammála til ósammála, við fullyrðingum um skilning á rétti til að sjá og fá afrit af eigin heilbrigðisupplýsingum og viðhorf og óskir um aðgang að eigin heilbrigðisupplýsingum og þjónustu TR á Internetinu. Valspurningar um tólf þjónustuþætti, sex þætti um yfirlit yfir samskipti við TR og sex um staðsetningarmöguleika netaðgangs að þjónustu TR, voru einnig notaðar til að kanna óskir notenda. Blandaður hópur ellefu þátttakenda á aldrinum 25 tii 60 ára tók þátt í forprófun matstækis og fylgibréfs auk starfmanna TR sem tóku þátt í gerð þess með yfirlestri og ráðgjöf. Gagnasöfnun var framkvæmd frá miðjum nóvember 2004 fram í janúar 2005 að fengnu leyfi Vísindasiðanefndar (VSNb2004100005/03-1) og eftir tilkynningu til Persónuverndar. Svörum þátttakenda með 50% auð gildi eða meira var eytt, eftir það höfðu allir yfir 85% gildar breytur. Tölfræðileg úrvinnsla var unnin í SPSS-forriti fyrir Windows, útgáfu 13. Lýsanditölfræðiumtíðniogprósentuhlutfallvarnotuðviðúrvinnslu á öllum breytum matstækisins og raðbreytuspurningar prófaðar gagnvart lýðfræðibreytum og skilningi á aðgangsréttingum. Kíkvaðratpróf með Pearsons-prófi fyrir marktækni á mismun hlutfalla var notað við samanburð nafnbreyta og raðbreyta með 95% öryggismörkum á marktækni og Wilcoxon-próf um marktækan mun á flokkuðum efnisþáttum spurninga gagnvart skilningi á réttindum til aðgangs. Úrvinnsla á hlutfalli alira þátttakenda var vegin miðað við fjölda í þýði öryrkja og annarra þegna til að jafna áhrif ólíkra hópa í þýði á heildarniðurstöður. Stöðugleiki matstækisins var kannaður með þáttagreiningu (ekki til umfjöllunar hér). Þáttagreiningin var þrítekin, hjá Tafla 2. Samanburður á þýði, úrtaki og svörun. öryrkjum, öðrum þegnum og öllum þátttakendum. Breyting milli prófa var lítil sem engin og er það mikilvæg vísbending um hugtakaréttmæti, samleitni í samsetningu breyta (Polit og Beck, 2004). Niðurstöður Svörun þátttakenda var 34,9% og notuð svör 434 einstaklinga með 85% gildar breytur að lágmarki. Konur voru í miklum meirihluta og aldursdreifing allra þátttakenda var normaldreifð (tafla 1). Munur á þýði, úrtaki og svörun þátttakenda miðað við kyn, búsetu og aldur sýndi í öllum tilvikum marktækan mun á hlutfalli í þýði og hópi svarenda. Konur í úrtaki voru hlutfallslega fleiri en í þýði, þar sem hlutfall þeirra meðal öryrkja var hærra, en brottfall karla var þrátt fyrir það mun rmeira hlutfallslega en kvenna. Úrtak af Reykjavíkursvæðinu fylgdi nokkuð hlutfalli í þýði miðað við landsbyggðina en jafnaðist út í að vera jafnt vegna hærra brottfalls Reykjavíkurbúa. Upplýsingar um aldur sýndu langmesta brottfallið í hópi 30 ára og yngri og minnsta í hópi 60-67 ára (tafla 2). Tafla 1. Fjöldi þátttakenda eftir kyni og aldri. Aldur Karl Kona Fjöldi Hlutfall s 30 ára 22 42 64 14,9% 31 -40 ára 28 51 79 18,4% 41 -50 ára 42 74 116 27,0% 51-60 ára 48 49 97 22,6% 61-67 ára 29 44 73 17,0% Allir samtals 169 260 429 100,0% Hlutfall kynja 39,4% 60,6% 100,0% Viðbrögð þátttakenda reyndust frekar jákvæð með 67,6% vegið hlutfall þeirra sem töidu mjög og frekar jákvætt að svara spurningalistanum og 25,7% hlutlausa (N=429). Niðurstöður um hlutfall allra þátttakenda sýnir vegið hlutfali miðað við fjölda í þýði öryrkja og þýði annarra þegna, heildarfjölda (N) er þess vegna getið inna sviga. Langflestir þátttakenda höfðu Þýði Úrtak Svörun Marktækni Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall X2 Karlar 93.244 50,7% 619 44,2% 169 39,4% 10,90 Konur 90.496 49,3% 781 55,8% 260 60,6% 11,23 Samtals 183.740 100,0% 1.400 100,0% 429 100,0% 22,13 Reykjavíkursvæðið 112.210 61,1% 820 58,6% 220 50,9% 7,28 Landsbyggðin 71.530 38,9% 580 41,4% 212 49,1% 11,42 Samtals 183.740 100,0% 1.400 100,0% 432 100,0% 18,70 s 30 ára 59.858 32,6% 327 23,4% 64 14,8% 42,10 31-40 ára 39.109 21,3% 267 19,1% 79 18,2% 1,88 41-50 ára 40.380 22,0% 326 23,3% 116 26,8% 4,56 51-60 ára 31.907 17,4% 274 19,6% 97 22,4% 6,33 61-67 ára 12.486 6,8% 206 14,7% 77 17,8% 76,92 Samtals 183.740 100,0% 1.400 100,0% 433 100,0% 131,79 * p<0,001 58 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 84. árg. 2008
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.