Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 2
2 Fréttir Páskablað 22.–29. mars 2016
Í
liðinni viku þegar snjóa tók að
leysa afhjúpuðust ljót leyndarmál
hundaeigenda í Laugarneshverfi.
Ljóst var að svartir sauðir höfðu
látið ógert að hirða upp skítinn
eftir fjórfætta förunauta sína á gangi
um garðinn við Laugarneskirkju með
þeim afleiðingum að við vegfarendum
blasti ófögur sjón. Vart var þverfótað
á lóðinni fyrir hundaskít. Vakin var
athygli á málinu í Facebook-hópi íbúa
í Laugarneshverfi á dögunum þar sem
einn íbúi kveðst hafa fengið sjokk yfir
umgengninni. Sem hundaeiganda
finnist honum sjálfum óþolandi að
nokkrir svartir sauðir skuli eyðileggja
fyrir öðrum.
„Viðbjóður“
Heitar umræður sköpuðust um
málið í Facebook-hópnum. Máls-
hefjandi greip til þess ráðs að skilja
eftir nokkra poka fyrir þá sem eru
svona gleymnir. „Ef þið eigið leið
þarna í gegn þá mæli ég með því að
horfa vel hvert þið stígið.“
Fleiri taka undir þessa ábendingu
og höfðu orðið varir við hundaskíts-
vandamálið. Annar bætir við að
ástandið í hverfinu í þessum efnum sé
víða ámælisvert en þetta sé oft algeng
sjón þegar snjóa tekur að leysa og
vorið nálgast. Hundaskíturinn hverfi
nefnilega ekki svo glatt sé hann ekki
hirtur upp.
„Þetta er viðbjóður, en líklega upp-
safnað og að koma undan snjónum.
Breytir því ekki að það á að taka upp
eftir sig,“ segir einn íbúanna.
Safnast upp yfir veturinn
Annar íbúi segir: „Þetta er alltaf svona
eftir veturinn og þetta er viðbjóðslegt
og úti um allt. Ég er sjálf hundaeig-
andi og finnst ekkert eins heimsku-
legt og að grafa hundaskítinn í snjó,
hann fer ekki neitt við það og svo
safnast þetta saman yfir veturinn. Ég
hvet hundaeigendur til að taka sig á
því þetta kemur óorði á alla hunda-
eigendur sem flestir hirða upp eftir
sína hunda.“
Enn einn íbúi leggur orð í belg og
segist þakklátur fyrir að opnað sé á
umræðuna því hann hafi lengi ætlað
sér að skrifa um málið.
„Við búum við kirkjuna eigum
2 hunda og notum garðinn mikið.
Undanfarið höfum við séð mikið af
skít og maðurinn minn hefur reglu-
lega hreinsað upp. Við erum sjálf
alltaf með poka og mér finnst óþol-
andi að labba með mína hunda og sjá
þennan skít. Svo er annað og það eru
hundaeigendur sem koma og sleppa
lausum sínum hundum. Ég er með
mína í bandi og sá minni tryllist ef
lausir hundar koma að honum. Fólk
er líka hrætt við lausa hunda. Svo
sýna nú tillit, hreinsa upp eftir sig og
hafa þá í bandi.“
Fylgir vorinu segir kirkjuvörður
Þá kemur fram í máli eins íbúa að til-
tekinn maður sleppi hundi sínum
iðulega lausum á umræddri lóð við
kirkjuna og sitji svo í bílnum sínum á
meðan hundurinn gerir stykkin sín.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd-
um sem ljósmyndari DV tók á svæð-
inu þá hafa ósáttir íbúar nokkuð til
síns máls. Lóðin er víða þakin hunda-
skít sem sjálfsagt er að krefja ábyrgðar-
menn um að hirða upp jafnóðum eftir
gæludýr sín.
„Þetta er bara svolítið það sem fylgir
vorinu. Maður verður alltaf var við
þetta, mismikið þó, þegar snjóa tekur
að leysa, og þá er eins og fólk leyfi sér
eilítið meira kæruleysi þegar einhver
snjór er á jörðinni,“ segir Vigdís Mar-
teinsdóttir, kirkjuvörður í Laugarnes-
kirkju í samtali við DV. Hún segir starfs-
fólk kirkjunnar ekki velta sér mikið upp
úr málinu. „Við treystum bara fólki til
að þrífa upp eftir sig.“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Vinsæll staður Víða má sjá svæði sem
virðast hafa verið vinsælli en önnur hjá
hundunum, þar sem safnast hefur upp
talsvert af skít. Mynd Sigtryggur Ari
Vart þverfótað Þó að lóðin sé vissulega
stór þá er ljóst að gangandi vegfarendur
þurfa að gæta hvar þeir drepa niður fæti, því
talsverðar líkur eru á að þeir stígi í hundaskít.
Aukapokar Hundaeigandi, sem ofbauð
umgengni nokkurra svartra sauða, ákvað
að skilja eftir nokkra aukapoka fyrir þá sem
eiga það til að „gleyma.“ Mynd Sigtryggur Ari
Kirkjulóð
á kafi í
hundaskít
n Íbúar ósáttir við umgengni við Laugarneskirkju n Gamlar syndir afhjúpast
„Þetta er
viðbjóðslegt
og úti um allt
Allt í kring Víða á hinni stóru
lóð í kringum Laugarneskirkju
má finna talsvert magn af
hundaskít. Augljóst er að
gæsin hefur verið dugleg í
vetur líka, en hundaskíturinn
um allar trissur fer ekki á milli
mála. Mynd Sigtryggur Ari
D
V gefur í dag út veglegt
páskablað sem dreift
er inn á hvert heimili
í landinu. Útgáfu DV
verður þannig háttað eftir
páska að næsta vikublað eftir
páska kemur til áskrifenda
miðvikudaginn 30. mars í stað
hefðbundinnar þriðjudags-
útgáfu. Föstudaginn 1. apríl
kemur síðan helgarblað DV
venju samkvæmt.
Á dv.is verður sem fyrr öfl-
ug fréttaþjónusta alla daga
yfir páskana, þar sem áskrif-
endur og lesendur geta nálg-
ast það helsta sem er að ger-
ast í þjóðfélaginu sem og víðs
vegar um veröldina.
DV óskar lesendum, sem
og landsmönnum öllum,
gleðilegra páska. n
ritstjorn@dv.is
Útgáfa DV eftir páska
Ótryggð
steypustöð
Milljónatjón hefur vegna veðurs
orðið á Steypustöð Skagafjarðar,
þegar þakplötur af þremur fjórðu
hluta hússins fuku af þakinu.
Þetta gerðist í hvassviðrinu sem
gekk yfir Norðurland sunnudags-
kvöldið 13.mars en veðrinu
fylgdi mikil úrkoma. Þakplöturn-
ar stórskemmdu bíla og tæki í
nágrenninu.
Fréttablaðið Feykir greinir
frá þessu. Haft er eftir Ásmundi
Pálmasyni að Steypustöðin sé ekki
tryggð fyrir tjóni sem þessu. Búið
sé að að gera ráðstafanir til að
koma í veg fyrir frekari vatnsleka.
Meðfylgjandi mynd er úr safni.
Ríkið eignast
í Dohop
Ríkið hefur eignast um
40 milljóna króna hlut í
flugleitar vefnum Dohop, að
því er fram kemur á RÚV.
Hlutinn eignaðist ríkið í gegn-
um stöðugleikaframlag föllnu
bankanna. Á meðal eigenda
Dohop er Frosti Sigurjónsson
þingmaður. Hann á 17,5
prósent, eða um 150 millj-
ónir króna, og er jafnframt
stjórnarformaður. Ríkið á nú
fjögurra prósenta hlut í Dohop
en RÚV hefur eftir Frosta að
hann hafi ekki vitað af því að
ríkið myndi eignast hlutinn.
Lykill er hluti af Lýsingu hf. I Ármúla 1 I 108 Reykjavík
I S. 540 1700 I lykill.is I lykill@lykill.is I
Lykill býður þér að leigja bíl í stað þess
að kaupa og lágmarka bæði kostnað
og áhættu við rekstur bílsins.
Innifalið í leigunni er þjónusta, viðhald,
dekk, tryggingar og bifreiðagjöld,
Þú velur bíl í samráði við okkur.
Leigusamningur getur verið
12–36 mánaða langur.
Leigugreiðslan er föst fjárhæð allan
leigutímann og því engin áhætta af
verðbólgu eða gengi krónunnar.
Lykilleiga
fyrir einstaklinga
Lykill leigir bílaflota til fyrirtækja með
tilheyrandi þjónustu og tekur svo við
honum aftur að leigutíma loknum.
Fyrirtækin njóta
stærðarhagkvæmni Lykils.
Þú finnur bíla sem henta þínum rekstri.
Lykill sér um kaup og
rekstur bílanna.
Leigugreiðslan er föst fjárhæð allan
leigutímann og því engin áhætta af
verðbólgu eða gengi krónunnar.
Flotaleiga
fyrir fyrirtæki
Leigulausnir Lykils
Kynntu þér möguleikana á
lykill.is/showroom/