Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 58
Páskablað 22.–29. mars 201650 Skrýtið Sakamál
- Leiðandi á leiksvæðum
jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is
HEILDARLAUSNIR
FYRIR LEIKSVÆÐI
Uppsetningar, viðhald og þjónusta
• Útileiktæki
• Girðingar
• Gervigras
• Hjólabrettarampar
• Gúmmíhellur
• Fallvarnarefni
Tilboð á Lappset
útileiktækjum 2016
Leitið til sölumanna í síma 565 1048
Óði hundur og Kjötbolla
n Joseph Taborsky gekk berserksgang um tíu vikna skeið n Engum skyldi eirt
B
andaríkjamaðurinn Joseph
Taborsky var ekki merki
legur pappír. Hann fæddist
árið 1924 í Connecticut og
var síðar tekinn af lífi í því
sama fylki.
Afbrot hans samanstóðu af röð
rán og morða á 6. áratug síðustu
aldar og fékk hann viðurnefnið Óði
hundur vegna ódæða sinna.
Ásamt vini sínum, Arthur „Kjöt
bollu“ Culcombe, einbeitt hann
sér að verslunum og gjarna voru
eigendur þeirra liðið lík þegar
kumpánarnir yfirgáfu verslanirnar
með ránsfeng sinn. Einnig nauðg
aði Taborsky nokkrum konum og
kyrkti í kjölfarið.
Á dauðadeild
Ferill Taborskys varði aðeins í sex
vikur, en fyrsta morðið framdi
hann árið 1950, ásamt yngri bróður
sínum Albert, í West Hartford í
Connecticut. Fórnarlambið var
verslunar eigandinn Louis Wolfson
og fyrir vikið fékk Taborsky dauða
dóm. Albert slapp með lífstíðar
dóm fyrir að hafa borið vitni fyrir
ákæruvaldið.
Taborsky eyddi rúmum fjórum
árum á dauðadeild en dómur hans
var mildaður þegar eina vitnið
gegn honum, Albert, var úrskurðað
andlega vanheilt, geðbilað eins og
áður var sagt, og vistað á stofnun.
Joseph Taborsky losnaði úr grjótinu
í október 1955, hélt til í Brooklyn
en heimsótti iðulega móður sína,
Mabel, í Connecticut.
Í slagtogi með Culcombe
Á þessum tíma þvældist Taborsky
um með áðurnefndum Arthur
Culcombe og 15. desember, 1956,
hófst blóðugt, tíu vikna tímabil
í Connecticut. Klukkan sex um
kvöldið skutu þeir félagar Nickola
Leone til bana í klæðskeraverslun
hans í Hartford.
Um klukkustund síðar hlaut Ed
ward Kurpewski, þrítugur eigandi
bensínstöðvar, sömu örlög. Hann
var neyddur niður á hnén og síðan
skotinn í hnakkann.
Á sama tíma var Daniel Janowski
svo ólánsamur að aka bifreið sinni
inn í viðgerðaraðstöðuna á bensín
stöðinni. Taborsky dró hann út
úr bílnum og skaut hann tvisvar í
höfuðið.
Culcombe óhlýðnast
Tæpri viku síðar rændu Taborsky og
Culcombe matvöruverslun í eigu
Arthurs Vinton, 64 ára, og konu
hans, 62 ára. Þriggja ára stúlka,
barnabarn hjónanna, var í verslun
inni á sama tíma.
Taborsky lamdi hjónin sundur
og saman þar til þau lágu meðvit
undarlaus á gólfinu. Skipaði hann
Culcombe að myrða stúlkuna en
Culcombe hugnaðist það ekki,
kom henni fyrir á bak við kæliborð,
sagði henni að vera hljóð og skaut
einu skoti í gólfið.
Þann 26. desember hnaut ein
hver um líkið af Samuel Cohn
innan við afgreiðsluborðið í versl
un hans í East Hartford.
Stórfættur slúbbert
Klukkan sjö að kvöldi 5. janúar,
1957, varð Frank Adinolfi, eigandi
skóverslunar, fyrir barðinu á þrjót
unum tveimur. Þegar þeir voru í óða
önn að berja Adinolfi með byssum
sínum bar að garði hjónin Bernard
og Ruth Speyer og skipti engum
togum að Taborsky sendi þau yfir í
eilífðina með skoti í höfuðið.
Fyrir einhverja slembilukku lifði
Adinolfi barsmíðarnar af. Hann
hlýtur að hafa verið skósali af lífi og
sál því þrátt fyrir allt og allt tók hann
eftir því að Taborsky var óvenju
stórfættur. Með þær upplýsingar í
huga leitaði lögreglan að stórfætt
um slúbbert í skýrslum sínum.
Makleg málagjöld
Lögreglan hafði þó ekki hendur í
hári Taborskys og Culcombes fyrr
en 23. febrúar. Þá hafði þeim tekist
að myrða sitt síðasta fórnarlamb,
John M. Rosenthal, tæplega sjö
tugan lyfjasala. Þann 26. janúar
skaut Taborsky Rosenthal tveimur
skotum í bringuna í verslun hans
við Maplebreiðgötu í Hartford.
Sem fyrr segir voru tvímenn
ingarnir handteknir í febrúar. Báðir
fengu dauðadóm, en Culcombe
áfrýjaði og niðurstaðan varð lífs
tíðardómur honum til handa. Hann
var ekki talinn reiða vitið í þverpok
um og einnig var honum talið til
tekna að hafa þyrmt lífi barnabarns
Vintonhjónanna.
Joseph Taborsky mun vera einn
um þann vafasama heiður að hafa
tvisvar verið sendur á dauðadeild. Í
seinna skiptið átti hann ekki aftur
kvæmt því lífshlaupi hans lauk 17.
maí, 1960, í rafmagnsstól í fangelsi í
Wethersfield í Connecticut. n
„Þegar þeir voru í
óða önn að berja
Adinolfi með byssum
sínum bar að garði hjónin
Bernard og Ruth Speyer.
Ákærður Taborsky (lengst
t.h.) var 36 ára þegar hann fór
til fundar við skapara sinn.