Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 41
Bílablaðið
Kynningarblað
Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is
22. mars 2016
Þ
etta er dýrgripur sem ég
nota bara á sumrin,“ segir
Guðmundur Birgir Páls-
son, en hann er eigandi
Ford Cortina árgerð 1965.
Með hækkandi sól taka eigendur
fornbíla á Íslandi að viðra gljáfægða
fáka sína öðrum vegfarendum til
yndisauka. Guðmundur eignaðist
bílinn fyrir þremur árum en hann
fræddi blaðamann stuttlega um
sögu bílsins:
„Árið 1965 keyptu tveir bræður
í Keflavík, þeir Guðmundur og
Bjarni, kallaðir Leirubræður í
Keflavík, þennan bíl, pöntuðu
hann að utan. Þeir leituðu eftir
mjög sér stökum bíl. Hann kom
hingað svartur og allur rauður að
innan, hann var stýrisskiptur og sex
manna. Þeir hættu að keyra þennan
bíl 1991 og lögðu honum í skúr
suður í Keflavík. Þegar hann svo
fannst árið 2013 var lakkið eigin-
lega farið af honum. Þá átti hann að
fara í pressuna á haugunum en tveir
menn náðu að hirða hann af sorp-
haugunum í Keflavík. Í kjölfarið
var farið að vinna í því að koma
honum á götuna aftur. Ég keypti
bílinn sama ár, 2013, þá var búið
að yfirfara hann þannig að hann
var orðinn gangfær. Ég komst hins
vegar fljótt að raun um að hann var
mjög illa uppgerður. Ég fór í að gera
hann upp aftur, skipti um mótor í
honum, gírkassa, bremsur, nánast
allt, skipti um rúður í honum. Í dag
er ég að vinna í því að smíða upp
annan mótor í hann.“
Að sögn Guðmundar er þetta
síðasti fjögurra dyra Ford Cortina-
bíllinn á landinu en enn séu til tveir
tvennra dyra bílar af þessari tegund
á landinu. n
Síðasti fjögurra dyra
Ford Cortina á Íslandi
Árgerð 1965 – Rauðklæddur að innan