Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 70
62 Menning Páskablað 22.–29. mars 2016
Fangelsaðar setningar og
ægifegurð fáránleikans
n Fyrsta sýning Sakminjasafnsins n Snorri Páll skapar mósaíkmynd af Guðmundar- og Geirfinnsmálinu
S
akminjar eru hluti af menn-
ingararfi, ekkert síður en
byggingarlist, áthefðir og
bragarhættir,“ segir Snorri
Páll Jónsson Úlfhildarson,
forsprakki Sakminjasafnsins, en
safnið verður opnað í fyrsta skipti á
sýningu sem stendur nú yfir í lista-
rýminu Ekkisens.
Sýningin notast við minjar tengd-
ar, og er einhvers konar hugræn kort-
lagning á, einu alræmdasta sakamáli
Íslandssögunnar, Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu.
Ekki bara bundið við beintengda
fleti sakamála
„Frá hefðbundnu sjónarhorni eru
sakminjar fyrst og fremst einhvers
konar efnisleg sönnunargögn um
framinn glæp sem og/eða fram-
kvæmda rannsókn, saksókn og
refsingu: hin ýmsu tæki og tól til
framkvæmdar bæði glæpa og lög-
reglustarfa, lífsýni eða önnur um-
merki þess sem fremur glæpinn, gögn
unnin upp úr njósnum rannsóknar-
aðila um meintan sakamann, og svo
framvegis. Að mínu mati er fyrirbær-
ið þó alls ekki bundið við þessa bein-
tengdu fleti sakamála. Skáldsögur,
ljóð, listaverk, kvikmyndir, viðtöl og
önnur fjölmiðlaumfjöllun – allt kemst
þetta fyrir undir sakminjahattinum,“
útskýrir Snorri Páll, sem er titlaður
sýningasóknari (e. prosecurator) Sak-
minjasafnsins.
„Ágætis dæmi er Ævisaga Davíðs,
skáldsaga Péturs Eggerz, sem var
túlkur þýska lögreglumannsins Karls
Schütz sem „sjanghæaður“ var til
Íslands til að klára rannsókn Guð-
mundar- og Geirfinnsmálsins, en í
henni er að finna upplýsingar sem
kallast beint á við upplýsingar úr
rannsóknargögnum málsins – og
í einhverjum tilfellum áhugaverð-
ar viðbætur. Í Dráttarbrautinni, lagi
Rúnars Júlíussonar við texta Megasar,
tekur sá síðarnefndi sér stöðu vitnis
og gerir tilraun til að ljóstra upp um
hverjir – ef einhverjir – voru í dráttar-
brautinni í Keflavík kvöldið sem Geir-
finnur Einarsson hvarf. Ferlið við
endurgerð Ólafar Nordal á lands-
þekktu styttunni Leirfinni, í tengsl-
um við listsýningu á Þingvöllum
árið 2000, kallaði fram athyglisverð-
ar upplýsingar um styttuna og með-
ferð hennar í gegnum árin. Einnig má
nefna blaðaviðtöl við sakborninga og
dómþola, leikrit og heimilda- og kvik-
myndir byggðar á sakamálum – og
þannig mætti endalaust áfram telja,“
segir hann.
Oftast unnið út frá skilgreiningu
ríkisvaldsins
Snorri Páll segir markmið Sak-
minjasafnsins vera að safna, skapa,
varðveita, greina, gefa út og sýna slík-
ar sakminjar, auk þess að að endur-
skilgreina, opna og víkka út merk-
ingu hugtaksins í „aktífu“ viðnámi við
allt að því algjöra einokun ríkisvalds-
ins á þessum gjörðum. Hann segir að
safnið muni opna lítil og tímabund-
in útibú við og við, og nálgun safns-
ins á minjarnar verði listræn frekar en
fræðileg – þannig verði í raun unnið
með meðvitaða eða ómeðvitaða
fagurfræði rannsóknarlögreglunnar.
„Til eru söfn víða um heiminn
– flest lokuð öðrum en lögreglu-
mönnum, lögmönnum og stöku leik-
mönnum – sem hýsa sakminjar, en
þá einungis út frá skilgreiningu rík-
isvaldsins. Lundúnalögreglan rekur
eitt slíkt safn og er hluti af því reynd-
ar aðgengilegur þessa dagana í Muse-
um of London, en þar er augljóslega
horft á fyrirbærið út frá sjónarhóli
lögreglunnar – réttara sagt ofan úr
efstu lögum stigveldisins sem við
búum við. En sakminjar eru, eins og
annar menningararfur, ekki einkamál
þess marghöfða líkama sem býr yfir
réttinum til valdbeitingar – réttinum
til handtöku, rannsóknar, saksókn-
ar, dómsuppkvaðningar og refsingar.
Þvert á móti eiga einstaklingar óhik-
að að vinna með þennan anga menn-
ingararfsins út frá listrænu jafnt sem
fræðilegu sjónarhorni – og það á sem
anarkískastan máta: það er að segja í
andstöðu við þær huglægu og efnis-
legu hindranir sem slíkri vinnu eru
oft settar,“ segir Snorri Páll
Fagurfræði sakamála og
kóreógrafía réttarkerfisins
Hvað er svona áhugavert við sakminj-
ar og af hverju ættum við að veita
þessu fyrirbæri einhverja sérstaka
athygli?
„Í fyrsta lagi eru sakamál einstak-
lega áhugaverð birtingarmynd sam-
skipta og/eða átaka annars vegar
valdalausra einstaklinga og hins
vegar stofnana sem lögum og sam-
félagssáttmálum samkvæmt búa yfir
gríðarmiklu valdi. Sú togstreita og
flókna „dýnamík“ sem birtist í slík-
um átökum er fær um að kalla fram
virkilega skýrar og sterkar stúdíur
um áskoranir sem mæta manninum
á öllum sviðum tilverunnar: mann-
leg samskipti, beitingu valds, valdaó-
jafnvægi, strategíska nálgun og hugs-
un, sjálfsbjargarviðleitni, andóf og
svo mætti lengi telja. Í öðru lagi get
ég nefnt hina ýmsu og ólíku fagur-
fræði sakamála, allt frá aðferðafræði
við framkvæmd glæpa til tungumáls,
myndmáls og kóreógrafíu réttarkerf-
isins: hvernig tala einstaklingar og
hegða sér í samskiptum við kerfið? Og
öfugt: hver er stíll kerfisins – ef svo má
að orði komast. Hvernig þróast þessi
fagurfræði í takt við nýja tækni og að-
ferðir, bæði við framkvæmd glæpa og
rannsókna?“ segir Snorri Páll.
„Í þriðja lagi er almennt litið svo
á að sakamál og marglaga umgjörð
þeirra eigi sér fyrst og fremst stað
innan veggja réttarkerfisins: saka-
mál eigi ekki að flytja í fjölmiðlum
eða á öðrum opinberum vettvangi,
treysta skuli þartilgerðum stofnunum
til réttlátrar málsmeðferðar, ekki eigi
að deila við dómarana, og þar fram
eftir götunum. En sama hvað fólki
finnst um þann samfélagssáttmála –
sé sammála honum eða ósammála
– er staðreyndin sú að sakamál hafa
nær undantekningar laust víðtæk og
margslungin áhrif á þau samfélög
sem þau fara fram í. Þau smeygja sér
inn í ólíka kima menningarinnar – frá
kaffistofum til listasafna og bókasafna
með viðkomu í þingsölum og undir-
heimunum. Slíkt er auðvitað afar
áhugavert að reyna að kortleggja með
einhverjum hætti.“
Mósaíkmynd af Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu
Á fyrstu sýningu safnsins verða sak-
minjar notaðar til fagurfræðilegar
kortlagningar eins allra alræmdasta
sakamáli íslensks samtíma, Guð-
mundar- og Geirfinnsmálsins.
„Áhrif málsins á íslenskt samfélag
eru ómælanleg, en á sýningunni geri
ég tilraun til að ramma inn sýnilegan
og snertanlegan hluta þeirra. Á sýn-
ingunni blanda ég saman sakminj-
um í „hardkor“ hefðbundnum skiln-
ingi, fengnum beint upp úr gögnum
málsins, sönnunargögnum um
menningarleg áhrif málsins, og hug-
rænni kortlagningu sem byggð er á
minni eigin rannsókn á málinu,“ seg-
ir Snorri, en kortlagninguna útskýrir
hann á eftirfarandi hátt í kynningar-
texta sýningarinnar:
„Um er að ræða huglæga jafnt
sem efnislega mósaíkmynd af laus-
lega afmörkuðum en um leið ná-
tengdum flötum málsins. Innan
rammans mætast meðal annars leir-
hausinn margfrægi (og margfram-
leiddi?) sem öðlaðist sjálfstætt líf og
síðar meir sérstakan heiðurssess í
sakvitund martraðaþjakaðrar þjóð-
ar; urðarmáninn í vélinni sem flaug
inn á sviðið fyrir tilstilli krana, hnýtti
hitt og hnoðaði þetta, lét sig svo
skrauthverfa lóðrétt niður skíðahlíð-
ar orðaskortsins; maðurinn í lakinu,
lekandinn í minninu, léreftsvafðar
minjarnar í vörðum kjöllurum lag-
anna; minningar sem filmubrot, ljós-
myndir sem gaddavír, gróðursömpl
sem sönnunargögn, og fangelsaðar
setningar sem ævarandi mónúment
um ægifegurð fáránleikans.“
Fyrsta sýning Sakminjasafnsins
stendur yfir í Ekkisens, Bergstaða-
stræti 25B. Hún er opin frá klukkan
17.00 til 19.00. til 26. mars. n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Sakminjar Ýmsar minjar verða til sýnis
á fyrstu sýningu Sakminjasafnsins, meðal
annars skýringarmynd teiknuð af Sævari
Marinó Ciesielski í fangaklefa árið 1977, af
atburðarás sem að öllum líkindum átti sér
aldrei stað.
Snorri Páll
Sýningasóknari (e.
Prosecurator) Sak-
minjasafnsins veltir
fyrir sér Guðmundar-
og Geirfinnsmálinu
í fyrstu sýningu
safnsins.
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Baldwin® hefur sérhæft sig í
smur-, loft- og hráolíusíum.
Við bjóðum upp á Baldwin® síur í
flestar gerðir þungavinnu- og sjóvéla á
hagstæðum verðum.
Verkstæði og viðgerðarþjónusta
Aðalsmerki Bætis er verkstæðið og
viðgerðarþjónustan.
Á verkstæði okkar erum við með öll tæki
til endurbyggingar á allt að 1750 hestafla
vélum.
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp
á viðgerðarþjónustu
fyrir flestar gerðir
túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík