Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 40
Páskablað 22.–29. mars 201640 Fólk Viðtal
I
ðulega hefjast viðtöl af þessu
tagi með lýsingu á veðri og að-
stæðum á kaffihúsi. Hér er ekki
þörf á því. Fyrir framan mig situr
Kári Stefánsson, vísindamaður,
læknir og margt fleira. Skegg og hár
er hvítt. Hann er svartklæddur frá
hálsi og niður úr. Hann er íbygginn.
Næstum eins og að hann sé við það
að finna nýtt gen.
„Ég er í góðu jafnvægi,“ svarar
hann spurningunni: Hvernig ertu?
„Æi,“ hrekkur upp úr mér. „Nei,
nei. Ég verð iðulega brjálaður mjög
fljótt.“ Hann áttar sig á að fyrir
blaðamann er vænlegra að hafa
hann þeim megin.
Kári hefur farið mikinn í samfé-
lagslegri umræðu á Íslandi síðustu
vikurnar og rifist við forystumenn
ríkisstjórnarinnar. Þó mest við Sig-
mund Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra.
Kári. Þú leggur af stað með undir-
skriftasöfnun sem hefur það mark-
mið að auka útgjöld til heilbrigð-
iskerfisins – og já, til hamingju með
árangurinn í henni. Þú endar svo í
hávaðarifrildi við forsætisráðherra.
„Ég mótmæli því harðlega að það
hafi leitt til hávaðarifrildis milli mín
og forsætisráðherra.“
Sigmundur of viðkvæmur
Þið hafið skipst mjög harkalega á
skoðunum.
„Ég held að forsætisráðherra hafi
orðið á svolítil mistök í þessu öllu
saman. Hann hefur litið á undir-
skriftasöfnunina sem gagnrýni á sína
ríkisstjórn og það á sjálfsagt rætur
að rekja til þess að hann hefur upp
á síðkastið, að mínu mati, verið of
viðkvæmur fyrir eðlilegu aðhaldi
í samfélaginu. Hann kom inn í ís-
lensk stjórnmál sem ferskur vindur
á vordegi og leiddi af miklum dugn-
aði og kjarki baráttu gegn þessum
Icesave-samningum. Hann vann þar
þessari þjóð mikið þarfaverk. Við get-
um öll verið honum þakklát fyrir það.
Upp á síðkastið finnst mér hann
hafa orðið óþarflega viðkvæmur
fyrir gagnrýni sem alltaf hlýtur að
vera beint að forsætisráðherra og
það öllum stundum. Ég held hann
hafi ekki áttað sig á hversu mikil
upphefð það var að vera undir fer-
tugu og vera orðinn forsætisráð-
herra. En þegar maður tekur við
slíku starfi setur hann sig í miðj-
una í þess háttar gagnrýni. Ég held
að hann hafi tekið þessari undir-
skriftasöfnun sem gagnrýni á
sig og sína ríkisstjórn, sem er al-
ger misskilningur. Þessi undir-
skriftasöfnun er tilraun til þess að fá
fólkið í landinu til þess að tjá sig um
ákveðinn málaflokk. Ég gerði það í
þeirri von að hægt væri að nota það
til þess að breyta því hvernig við for-
gangsröðum í ríkisfjármálum.
Þegar fólk ræðir hvert hlutverk
samfélagsins eigi að vera þá greinir
okkur á. Fæddir sósíalistar eins og
ég telja að samfélagið eigi að gera
allt fyrir okkur og svo eru það frjáls-
hyggjumennirnir, sem finnst að
samfélagið eigi að gera mjög lítið.
En ég held að við séum öll sammála
um að samfélagið á að hlúa að þeim
sem eru meiddir og lasnir í okkar
samfélagi. Ef við gerum það ekki þá
erum við ekki samfélag. Við höfum
verið að heykjast á þessu á síðustu
áratugum. Við höfum ekki fjárfest
í heilbrigðiskerfinu þannig að það
geti sinnt þessu hlutverki. Ég var að
reyna með þessari undirskriftasöfn-
un að fá fólk til að þröngva stjórn-
málamönnum til þess að forgangs-
raða á annan hátt, setja miklu meiri
fjármuni í heilbrigðiskerfið. Með
þessu má segja að ég sé að gagnrýna
síðasta aldarfjórðung af íslenskri
pólitík. Með því má svo aftur segja
að gagnrýnin hitti okkur fyrir, þjóð-
ina sem kýs það fólk sem stjórnar
landinu. Það er hreinn misskilning-
ur hjá Sigmundi að líta á þetta sem
gagnrýni á hann eða hans flokk.“
En þið hafið misst ykkur í
persónulega hluti?
„Ég er algerlega ósammála því. Ég
held að það hafi verið mistök af Sig-
mundi að skrifa grein þar sem hann
kallar mig Toppara landsins. Það
er gersamlega út í hött fyrir mann í
hans stöðu að láta draga sig út í slíkt.
Ég hins vegar, sem venjulegur þegn
í þessu samfélagi, hef miklu meira
frelsi til að tjá mig.“
Strákpjakkurinn forsætisráðherra
„Það kann vel að vera að uppeldi mitt
spili inn í. Ég var alinn upp á heimili
þar sem við bræðurnir vorum fjórir
og það var mikið slegist og kné látið
fylgja kviði. Síðan risu menn bara
upp og voru vinir.
En ég hef ekki bara skotið föstum
skotum að Sigmundi. Ég hef líka
skotið á Bjarna Benediktsson og við
höfum samt setið saman á síðustu
tveimur dögum og átt fínar sam-
ræður og verið býsna sammála um
margt er lýtur að heilbrigðiskerfinu.“
En hefurðu hitt Sigmund eitthvað
eða heyrt í honum?
„Nei. Ég reyndi að ná sambandi
við hann til þess að ræða hvernig ég
gæti skilað honum þessari undir-
skriftasöfnun þannig að hún líti ekki
út sem gagnrýni á ríkisstjórnina en
Sigmundi finnst ég of vondur maður
til þess að ræða við mig.
Hann á dáldið erfitt strákpjakk-
urinn með að hysja sig upp úr þeirri
skoðun að hann hafi verið barinn of
fast. Þetta er misskilningur. Menn
eiga að geta tekist á og eiga að geta
kveðið fast að en samt sest niður að
kvöldi og rætt saman og leyst vanda-
mál.“
Þegar við Kári sitjum saman flett-
um við upp á endurreisn.is og könn-
um stöðuna á undirskriftasöfnun-
inni. Teljarinn segir 84.720.
Hverju á þessi undirskriftasöfnun
að breyta?
„Ég er að vonast til þess að
Heilbrigðismál verða
næsta kosningamál
„Allt erfðamengi
mitt hefur verið
raðgreint tvisvar
Eggert Skúlason
eggert@dv.is „Þessi
undir-
skriftasöfn-
un er tilraun til
þess að fá fólk-
ið í landinu til
þess að tjá sig
um ákveðinn
málaflokk