Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 18
Páskablað 22.–29. mars 201618 Fréttir Safnaverðlaunin eru viðurkenning, veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. ÓSKAÐ ER EFTIR ÁBENDINGUM frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum um safn eða einstök verkefni á starfssviði safna sem þykja til eftirbreytni og íslensku safnastarfi til framdráttar. Söfnum er jafnframt heimilt að senda inn kynningar á eigin verkefnum. Til greina koma sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi svo sem rannsóknir og varðveisla. Valnefnd tilnefnir þrjú söfn eða verkefni sem tilkynnt verða á Alþjóðlega safnadeginum á Íslandi, 18. maí og hlýtur eitt þeirra viðurkenninguna. Safna­ verð launin verða veitt í tíunda sinn 13. júlí 2016 á Bessastöðum. Ábendingum skal skilað í síðasta lagi 17. apríl 2016 Sendist: Safnaverdlaun@icom.is eða Safnaverðlaunin 2016 – Íslandsdeild ICOM – pósthólf 1513 – 121 Reykjavík Íslandsdeild alþjóðaráðs safna – ICOM og FÍSOS – Félag íslenskra safna og safnmanna standa saman að verðlaununum. ÍSLENSKU SAFNaVERÐLAUNIN 2012 ÍSLENSKU SAFNAVERÐLAUNIN 2016 66°Norður sótti 186 milljóNir til möltu Fataframleiðandinn fær greitt vegna dómsmáls sem fyrrverandi forstjóri þess vann í Hæstarétti m altverska félagið Molden Enterprises Limited var á föstudag dæmt til að greiða 66°Norður alls 186 milljónir króna vegna dómsmáls sem fyrrverandi forstjóri fataframleiðandans vann gegn því. 66°Norður höfðaði málið á þeirri forsendu að Molden Enterprises, sem hét áður Egus Inc. og var þá í eigu kvikmyndaframleiðandans Sigur jóns Sighvatssonar, hefði lofað að greiða félaginu kostnað af starfs- lokum forstjórans. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á það og dæmdi maltverska félagið til að bæta fata- framleiðandanum tjónið. Lofaði skaðleysi Málshöfðun 66°Norður (Sjóklæða- gerðarinnar hf.) á hendur Molden Enterprises er í dómi héraðsdóms rakin til kaupa samlagshlutafélags- ins SF II á 51% hlut í fataframleið- andanum af maltverska félaginu í júní 2011. Molden var þá eigu Sigur jóns Sighvatssonar en hann og tryggingafélagið Sjóvá-Almenn- ar yfirtóku 66°Norður í janúar 2005. Í samningi Molden og 66°Norður var ákvæði um að fyrrnefnda félagið ábyrgðist að kaupréttur sem Halldór Gunnar Eyjólfsson, fyrrverandi for- stjóri 66°Norður, átti samkvæmt ráðningarsamningi væri fallinn úr gildi. Halldór ætti engar kröfur á hendur félaginu. Ef til málaferla um kaupréttinn kæmi myndi malt- verska félagið bæta íslenska fyrir- tækinu allan kostnað sem væri um- fram það sem leiddi af uppgjöri ráðningarsamnings forstjórans. Halldór Gunnar höfðaði mál á hendur 66°Norður í mars 2012 og rúmum tveimur árum síðar stað- festi Hæstiréttur að fyrirtækið þyrfti að greiða honum 110 millj- ónir króna vegna kaupréttarins. Lögmenn Molden önnuðust mála- reksturinn í nafni 66°Norður í sam- ræmi við ákvæði kaupsamningsins frá júní 2011. Í október 2014, einu og hálfu ári eftir að Sigurjón sagði al- farið skilið við fataframleiðandann, krafði 66°Norður síðan maltverska félagið um 186 milljónir króna. Staðfesti Héraðsdómur Reykjavíkur eins og áður segir greiðsluskyldu þess í lok síðustu viku. Keyptu Sigurjón út DV hefur ekki upplýsingar um hvort Sigurjón Sighvatsson sé enn eigandi Molden Enterprises. Hann sagði skilið við 66°Norður í mars 2013 þegar hann seldi 49% hlut sinn í fyr- irtækinu til SF II sem var þá að fullu í eigu Helga Rúnars Óskarssonar, núverandi forstjóra og eiganda fataframleiðandans, og Bjarneyjar Harðardóttur, eiginkonu hans. Nokkrum mánuðum áður en sú sala gekk í gegn hafnaði Héraðsdómur Reykjaness kröfu félags Sigurjóns um að sýslumaðurinn í Hafnar firði yrði fenginn til að setja lögbann á að Bjarney fengi að starfa fyrir fyrir tækið. Samkvæmt frétt mbl.is um deilurnar innan eigendahóps- ins, sem birtist 19. september 2012, var krafan tilkomin vegna meintra starfa Bjarneyjar fyrir Sjóklæða- gerðina eftir að ráðningarsamning- ur við hana rann út. Einkahlutafélagið Hrós, sem Helgi Rúnar er í forsvari fyrir, var í byrjun mars dæmt til að greiða sjóða- stýringarfyrirtækinu Stefni, dóttur- félagi Arion banka, 86 milljónir króna ásamt dráttarvöxtum. Héraðs dómur Reykjavíkur staðfesti þá að SÍA I, framtakssjóður í stýr- ingu Stefnis, ætti rétt á viðbótar- greiðslu vegna 327 milljóna króna leiðréttingar á gengistryggðum lán- um 66°Norður. Eins og kom fram í frétt DV lásu starfsmenn Stefnis um leiðréttinguna í fjölmiðlum í október 2014 eða rúmum tveimur árum eftir að félag Helga keypti SÍA I út úr eigendahópi 66°Norður. SÍA I átti 74% hlut í SF II þegar félagið keypti 51% hlutinn í 66°Norður af félagi Sigurjóns í júní 2011. Hrós gagnstefndi Stefni fyrir héraðs dómi þar sem þess var krafist að félagið ætti rétt á afslætti af 582 milljóna kaupverðinu sem það greiddi fyrir hlut SÍA I í 66°Norður. Ástæðan væri meðal annars dóms- málið sem Halldór Gunnar Eyjólfs- son vann fyrir Hæstarétti. Héraðs- dómur Reykjavíkur sýknaði Stefni af kröfu Hróss. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Eigandi 66°Norður Helgi Rúnar Óskars- son var ráðinn forstjóri fataframleiðandans í febrúar 2011. Seldi sig út Sigurjón Sighvatsson átti Egus Inc., nú Molden Enterprises Limited, þegar SF II keypti 51% í 66°Norður af malt- verska félaginu. MyNd RóbERt REyNiSSoN Þ ingmenn allra stjórnarand- stöðuflokkanna á Alþingi hafa rætt um að leggja fram vantrauststillögu á Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráð- herra. Ástæðan er upplýsingar um að eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eigi fjármuni í félaginu Wintris Inc. sem er skráð á Tortola á Bresku Jómfrúaeyjunum. Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar fram- tíðar, sagði í Morgunútvarpi Rásar 2 í gær, mánudag, enga ákvörðun hafa verið tekna innan þingflokks- ins um hvort vantrauststillaga yrði lögð fram. Sjálfur væri hann þeirrar skoðunar að leggja eigi slíka tillögu fram. Helgi Hrafn Gunnarsson, þing- maður Pírata, hafði þá áður sagt það óhugsandi að forsætisráðherra sæti áfram. Þingflokkur Samfylkingarinn- ar hefur að sögn Árna Páls Árnasonar, formanns flokksins, ekkert ákveðið um vantrauststillögu þrátt fyrir að meðlimir hans hafi heyrt af slíkum vangaveltum. Katrín Jakobsdóttir, for- maður VG, tók í gær í sama streng og Árni og sagði þingflokk hennar ekki hafa rætt vantraust á Sigmund. n Skoða vantraust á Sigmund Þingmaður Bjartrar framtíðar vill leggja tillöguna fram Forsætisráðherra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur verið gagnrýndur harðlega vegna félags sem eiginkona hans á á Tortola. MyNd SiGtRyGGuR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.