Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 8
Páskablað 22.–29. mars 20168 Fréttir Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is Dan Wiium Hdl, lögg. fasteignasali, Sími 896-4013 Ólafur Guðmundsson Sölustjóri, sími 896-4090 Þórarinn Friðriksson Lögg. fasteignasali, sími 844-6353 Rakel Salóme Eydal Skjalagerð Sigurbjörn Skarphéðinsson Lögg. fasteignasali, skjalagerð Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár Þessir eru í framboði n Níu karlar og þrjár konur hafa tilkynnt forsetaframboð n Einn búsettur á landsbyggðinni T ólf Íslendingar hafa, þegar þetta er skrifað, tilkynnt um framboð sitt til embættis forseta Íslands; níu karlar og þrjár konur. Yngsti fram- bjóðandinn nær 35 ára aldurstak- markinu á árinu en sá elsti er 66 ára. Hinn dæmigerði frambjóðandi er fimmtugur karl, búsettur á höfuð borgarsvæðinu. Raunar eiga allir frambjóðendurnir, sem skráðir eru til heimilis á Íslandi, nema einn, Aralíus Gestur, heima á höfuð- borgarsvæðinu. Aralíus er búsettur í Sandgerði. Tveir eru skráðir til heimilis í útlöndum, Guðmundur Franklín og Ástþór Magnússon. Margir hafa tilkynnt um framboð sitt síðustu vikuna og því hafa engar skoðanakannanir, þegar þetta er ritað, mælt fylgi frambjóðenda. Sjúkrahússpresturinn Vigfús Bjarni Albertsson mældist í könnun Fréttablaðsins þann 10. mars með 12 prósentustiga fylgi en Halla Tómasdótt- ir 1 prósent. Þess má þá geta að hún hafði á þeim tíma ekki tilkynnt framboð. Sú könnun mældi framboð lík- legra frambjóðenda en sigurvegarinn, Katrín Jakobsdóttir, hefur úti- lokað framboð. Þá má nefna að aðeins 39 prósent þeirra sem spurðir voru í könnuninni tóku afstöðu til spurningarinnar. Fylgi þeirra sem tilkynnt hafa framboð, er því alveg á huldu. n Baldur Guðmundsson Ásta Sigrún Magnúsdóttir baldur@dv.is / astasigrun@dv.is Aralíus Gestur Jósepsson Aldur: 34 ára Búsettur: Lækjamótum, Sandgerði Steig fram: 3. janúar n Ari er hvað þekktastur fyrir myndbönd sem hann hefur birt á YouTube. Hann segist standa fyrir auknum jöfnuði og vill bæta lýðræðið í landinu. Þá segist hann vilja verða maður fólksins sem hlustar. Ástþór Magnússon Aldur: 62 ára Búsettur: Bretlandi Steig fram: 2. janúar n Ástþór flytur inn rafbíla frá Bandaríkj- unum og er stofnandi samtakanna Friðar 2000. Hann hefur fjórum sinnum boðið sig fram til forseta, en tvívegis hefur framboð hans verið ógilt. Hann segist standa fyrir því að forsetinn sé hlutlaust sameiningartákn þjóðarinnar og vill stuðla að virku lýðræði á Íslandi. Þá vill hann að Ísland verði leiðandi á sviði friðarmála. Bæring Ólafsson Aldur: 60 ára Búsettur: Kórsölum, Kópavogi Steig fram: 18. mars n Bæring er fyrrverandi forstjóri og fram- kvæmdastjóri hjá Coca Cola International. Hann segist vilja styðja aukið lýðræði, hvetja ungt fólk áfram til menntunar og styðja við menningarlíf, heilbrigðisstéttina og málefni aldraðra. Elísabet Kristín Jökulsdóttir Aldur: 57 ára Búsett: Framnesvegi, Reykjavík Steig fram: 31. desember n Elísabet er rithöfundur og var á dögunum tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Elísabet segist boða stefnubreytingu, hún vill einbeita sér að því að kenna þjóðinni (ef hún er til) að slappa af, hætta að vinna svona mikið, fara í frí og staðnæmast jafnvel á miðri göngu og horfa til himins. Guðmundur Franklín Jónsson Aldur: 66 ára Búseta: Danmörku Steig fram: 20. mars n Guðmundur er stofnandi stjórnmálaflokks- ins Hægri-grænna sem nýverið rann inn í Ís- lensku þjóðfylkinguna. Guðmundur hefur ekki gefið út stefnuyfirlýsingu, en í framboðstil- kynningu kom fram að eftir því sem hann eltist gerði hann sér grein fyrir forréttindum þess að fæðast Íslendingur og vildi þjóna fólk- inu í landinu af auðmýkt og heiðarleika. Halla Tómasdóttir Aldur: 47 ára Búsett: Sunnubraut, Kópavogi Steig fram: 17. mars n Halla er rekstrarhagfræðingur sem hefur komið að uppbyggingu Háskólans í Reykjavík og var annar stofnenda Auðar Capital. Hún kom einnig á Þjóðfundinum árið 2009. Halla segist vera ötull talsmaður þess að Íslendingar horfi til víðari skilgreiningar á arðsemi og ekki bara til fjárhagslegs arðs. Hún vill virkja konur til áhrifa og sjá fleiri frumkvöðla að störfum. Höllu er hugleikið að á Íslandi byggist upp samfélag réttlætis sem virkjar allan sinn mannauð til gagns. Heimir Örn Hólmarsson Aldur: 35 ára Búsettur: Akurgerði, Reykjavík Steig fram: 4. mars n Heimir Örn er rafmagnstæknifræðingur og með meistaragráðu í verkefnastjórnun. Hann starfar hjá Icelandair sem áreiðan- leikasérfræðingur. Heimir vill beita sér fyrir réttlæti, mannréttindum og jafnrétti, forvörnum og vitundarvakningu, landkynn- ingu og uppbyggingu menningar og lista. Þá vill hann efla lýðræðið í landinu og telur hlutverk forseta að vera traustur öryggis- ventill sem gætir hagsmuna heildarinnar. Hildur Þórðardóttir Aldur: 48 ára Búsett: Kristnibraut, Reykjavík Steig fram: 3. janúar n Hildur er þjóðfræðingur, rithöfundur og heilari. Hildur segist standa fyrir betra samfélag, meira vald til fólksins og hún vill auka jöfnuð. Þá eru henni náttúruvernd og mannréttindi fyrir alla hugleikin. Forseta- embættið er sameiningartákn þjóðarinnar, forseti er andlegur leiðtogi hennar og öryggisventill gegn Alþingi. Hún segir að forsetaembættið sé ekki frátekið fyrir dægurstjörnur íslensks samfélags. Hrannar Pétursson Aldur: 42 ára Búsettur: Garðastræti, Reykjavík Steig fram: 20. mars n Hrannar er félagsfræðingur og hefur með- al annars starfað sem framkvæmdastjóri hjá Vodafone og verið talsmaður fyrirtækisins. Hann hefur undanfarið verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi í upplýsingamálum. Hrannar segist vera þeirrar skoðunar að forseti gegni bæði stjórnskipulegu hlutverki og sam félagslegu. Forseti á að leggja sig fram um að sameina fólk, vera sanngjarn og staðfastur. Þá á á forseti að tala fyrir gagn- kvæmum skilningi ólíkra skoðana. Sturla Jónsson Aldur: 49 ára Búsettur: Tröllaborgum, Reykjavík Steig fram: 19. mars n Sturla er vörubílstjóri og bauð fram undir eigin nafni í kosningum til Alþingis 2013. Hann hefur verið áberandi þátttakandi í þjóðfélagsumræðunni, sérstaklega frá hruni. Sturla er sá eini sem þegar hefur safnað 3.000 meðmælendum. Vigfús Bjarni Albertsson Aldur: 41 árs Búsettur: Kambsvegi, Reykjavík Steig fram: 6. mars n Vigfús Bjarni er sjúkrahússprestur á Landspítalanum í Reykjavík. Hann segir að forsetaembættið geti minnt á það sem er mikilvægast í samfélagsgerð okkar og segir að Íslendingar þurfi að varðveita hver annan. Forseti eigi að lyfta því sem vel er gert og gefa þeim rödd sem ekki hafi hana. Embættið eigi að sameina þjóðarsálina og minna á dugnað, þrautseigju og sköpunargáfu Íslendinga. Þorgrímur Þráinsson Aldur: 57 ára Búsettur: Tunguvegi, Reykjavík Steig fram: 24. nóvember n Þorgrímur er rithöfundur, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og hefur sinnt forvarnarfræðslu fyrir ungmenni. Þorgrímur hefur ekki gefið upp ákveðnar línur varðandi sýn sína á forsetaembættið en segist vilja verða forseti barna og manngæsku sem verði óhræddur við að hlusta á sérfræðinga. Hann ætli ekki að þykjast vera annar enn hann er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.