Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Page 74
Páskablað 22.–29. mars 201666 Menning
5 5 2 - 6 0 6 0
Í
þessari viku verður myndin Bat-
man vs Superman frumsýnd hér
á landi, en þar mætast þessar
þekktu ofurhetjur. Ben Affleck fer
með hlutverk Batmans og Henry
Cavill er í hlutverki Supermans.
Ofur hetjurnar hafa í áratugi glatt
sjónvarps- og kvikmyndaunnendur.
Fjölmargir leikarar hafa tekið að sér
að túlka persónurnar. Adam West,
Michael Keaton, George Clooney,
Val Kilmer og Christian Bale eru
meðal þeirra sem hafa leikið Bat-
man. George Reeves og Christopher
Reeve eru þekktustu leikararnir sem
brugðu sér í hlutverk Supermans.
Örlög þeirra beggja voru óblíð og
reyndar svo mjög að talað hefur verið
um að bölvun sé yfir Superman. Þeir
hjátrúarfullu telja upp, máli sínu til
stuðnings, fjölmörg og mismerkileg
dæmi um áföll sem dundu á þeim
sem unnu að Superman-sjónvarps-
þáttunum og -kvikmyndunum og er
þá sérstaklega vísað til örlaga George
Reeves og Christopher Reeve.
Himinlifandi yfir frægðinni
George Reeves lék Superman í kvik-
mynd árið 1951 og síðan í afar vin-
sælum sjónvarpsþáttum sem sýnd-
ir voru á árunum 1952–58. Fyrsta
kvikmyndahlutverk Reeves var í Á
hverfanda hveli þar sem hann lék
einn af vonbiðlum Scarlett O'Hara.
Kvikmyndahlutverkin urðu fleiri en
frægð öðlaðist hann ekki fyrr en í
hlutverki sínu sem Superman í rúm-
lega hundrað sjónvarpsþáttum og
nokkrum kvikmyndum um ofur-
hetjuna. Leikarinn var furðu lostinn
en um leið himinlifandi yfir frægð
sinni en hann hafði ekki haft mikla
trú á áhrifamætti sjónvarpsins. Hlut-
verk Supermans var svo tengt Reeves
að hann átti erfitt með að fá önnur
hlutverk. Þvert á það sem ætla mætti
auðgaðist hann ekki mjög á því að
leika í sjónvarpsþáttunum vinsælu.
Sjálfsmorð eða morð?
Árið 1959 var komið að Reeves látn-
um á heimili hans og var byssa við
hlið hans. Niðurstaða réttarrann-
sóknar var að hann hefði framið
sjálfsmorð. Margir efuðust um það
og töldu að hann hefði verið myrtur
og enn aðrir töldu að um slysaskot
hefði verið að ræða. Reeves var 45 ára
gamall þegar hann lést. Gleðskapur
var á heimili hans og skyndilega
heyrðist skothvellur af efri hæðinni.
Komið var að Reeves látnum í svefn-
herbergi hans. Þegar lögregla kom á
svæðið voru gestirnir mjög drukknir
og vitnisburður þeirra ruglingslegur
og þversagnakenndur. Þótt aðstæður
þættu benda til þess að Reeves hefði
framið sjálfsmorð efuðust margir
um það. Leikarinn hafði ekki þjáðst
af þunglyndi heldur verið kátur og
glaður síðustu mánuðina sem hann
lifði. Göt eftir byssukúlur fundust í
lofti og á gólfi og tómt skothylki und-
ir líkinu. Þetta ýtti undir grunsemdir
um að ekki hefði verið um sjálfsmorð
að ræða.
Hinir grunuðu
Ein kenning er sú að fyrrverandi ást-
kona hans, leikkonan Toni Mannix,
hefði ráðið mann til að drepa leik-
arann. Toni var gift einum forstjóra
MGM, Eddie Mannix, en átti í ástar-
sambandi við Reeves í sjö ár. Hann
sleit sambandi þeirra og unnusta
Reeves, leikkonan Leonore Lemm-
on, bar að Toni hefði setið um leikar-
ann mánuðum saman. Leonore,
sem var meðal gesta á heimili Reeves
kvöldið sem hann dó, var einnig
meðal grunaðra, hún var sjúk-
lega afbrýðisöm og þau höfðu rif-
ist heiftar lega kvöldið sem hann
dó. Leonore fór frá Kaliforníu
daginn eftir lát leikarans og
sneri aldrei þangað aftur.
Toni var harmi sleginn
eftir lát leikarans.
Eftir dauða
Reeves komst sú
saga á kreik að
hann hefði trúað
því að hann
væri Superman
og hefði dáið
þegar hann
hefði reynt
að fljúga.
Sú saga er
jafn fjarri
raunveruleikanum og sú
lífseiga saga að lík Walt
Disney hefði verið fryst.
Kvikmyndin Hollywood-
land fjallar um dauða Reeves. Ben
Affleck fór þar með hlutverk Reeves
og Diana Lane lék Toni Mannix.
Gátan um dauða George
Reeves er enn óleyst. n
Óblíð örlög SupermanS
George Reeves og Christopher Reeve urðu ekki langlífir
Háður öndunar-
vél og í hjólastól
Christopher Reeve var ungur að árum
þegar hann hóf leikferil sinn. Hann lærði
leiklist í Julliard þar sem hann kynntist
Robin Williams og með þeim tókst djúp
vinátta. Hann lék síðan á sviði með
goðsögninni Katherine Hepburn sem
hafði mikið dálæti á honum. Árið 1978
lék hann Superman í kvikmynd og varð
heimsfrægur. Hann hafði aldrei verið
sérstakur aðdáandi Superman en hafði
þó horft á sjónvarpsþættina þar sem
George Reeves lék kappann.
Christopher Reeve var svo sann
færandi í hlutverki sínu sem ofurhetjan
að hann átti erfitt með að fá hlutverk í
öðrum myndum. Árið 1995 var hann í út
reiðartúr þegar hann féll af hesti sínum.
Hann hálsbrotnaði og lamaðist fyrir neð
an háls. Hann gat ekki andað hjálparlaust
og var því háður öndunarvél og í hjóla
stól. Á næstum árum vakti hugrekki hans
og lífskraftur í erfiðri lífsbaráttu mikla
athygli og aðdáun umheimsins. Eftir
slysið lék hann í nokkrum myndum, auk
þess sem hann leikstýrði. Hann var ötull
talsmaður rannsókna á sviði mænuskaða
og stofnaði rannsóknasetur sem vann
að slíkum rannsóknum, og þar eru börn
hans nú í forsvari. Hann lést árið 2004
af völdum hjartabilunar, 52 ára gamall.
Tveimur árum síðar lést ekkja hans, Dana
Reeve, úr lungnakrabbameini, en hafði
aldrei reykt. Hún var 44 ára gömul.
Superman Returns er tileinkuð
Christopher og Dönu Reeve.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
George
Reeves
Hann varð
heimil
isvinur
sjónvarps
áhorf
enda og
börn litu
á hann
sem fyr
irmynd.
Superman og
Lucy Ball George
Reeves var gestur
í hinum vinsælu
sjónvarpsþáttum
Lucy Ball.