Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Qupperneq 16
Páskablað 22.–29. mars 201616 Fréttir
Þ
votti á húsagötum Reykja-
víkurborgar verður hætt
á þessu ári samkvæmt
ákvörðun Umhverfis- og
skipulagssviðs Reykja-
víkurborgar. Um er að ræða
breytingar á svokallaðri vor-
hreinsun borgarinnar sem fram
fer í öllum hverfum í kjölfar þess
að snjóa leysir og göturnar koma
skítugar undan snjó. Aðgerðin
sparar Reykjavíkurborg um 3,5
milljónir króna en reyndur verk-
taki telur að borgarbúar verði mjög
varir við aukinn óþrifnað í borginni
og að loftgæði gætu versnað.
Aðeins ein yfirferð
„Þetta hefur verið með þeim hætti
að göturnar eru fyrst forsópaðar.
Síðan er farin seinni umferð þar
sem send eru dreifibréf í hús og
íbúar beðnir um að færa bíla sína af
almennum svæðum gatnanna. Að
lokum voru göturnar sópaðar aftur
og þvegnar,“ segir Björn Ingvars-
son, deildarstjóri Þjónustumið-
stöðvar borgarlandsins. Breytingin
mun fela í sér að göturnar verða
aðeins sópaðar vel og vandlega
einu sinni en ekki þvegnar. Að-
spurður um sparnaðinn af því að
götuþvotturinn verði aflagður seg-
ir Björn: „Það er áætlað að um 3,5
milljónir sparist.“
Aukinn óþrifnaður
DV hafði samband
við Lárus Kristinn
Jónsson,
framkvæmda-
stjóra Hreinsi-
tækni, sem
séð hefur um
þrifin til þess
að fá frekari
útskýringar
á því hverjar
afleiðingarnar
yrðu. „Að mínu
mati er verið að
spara aurinn en kasta
krónunni og mér finnst
einkennilegt að Reykjavíkurborg
hafi ekki kynnt þessa ákvörðun
betur. Vatnsþvotturinn gerir að
verkum að göturnar verða tandur-
hreinar, hann tekur ryk og sand úr
götukantinum, sem sópurinn hefur
ekki náð til. Síðan er drullunni
sópað upp. Ég held að borgarbúar
og ferðamenn sem hingað koma
muni verða mjög varir við aukinn
óþrifnað,“ segir Lárus. Að hans
mati verða hverfi eins og gamli
Vesturbærinn, Þingholtin og
Norðurmýrin verst úti enda margar
göturnar þröngar og mikið um
kyrrstæða bíla.
„Þyrlast upp svifryk og sandur“
Það eru ekki aðeins göturnar sem
verða ekki þrifnar heldur nær
ákvörðunin einnig til göngustíga
og trappa. „Við höfum þvegið
gangstéttir, sem eru 60 sentimetrar
að breidd, sem sóparnir hafa ekki
komist upp á. Við smúlum þær
með vatni þannig að skíturinn
lekur niður á göturnar og
þar er þessu sópað
upp. Ég get ekki
betur skilið en að
þessum þvotti
verði einnig
hætt,“ segir
Lárus. Að hans
mati mun
ákvörðunin
að öllum
líkindum hafa
áhrif á loftgæði í
borginni. „Maður
getur ímyndað sér
það, að þegar hvessir
þá þyrlast upp svifryk og
sandur.“
Sveigjanlegra hjá smærri
sveitarfélögunum
Þrif á götum Reykjavíkurborgar
hefur verið í föstum skorðum
undanfarin ár að vori og hausti.
Höfuðborgin hefur verið eina
sveitarfélagið sem stundar
reglulegan götuþvott en í
öðrum sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu hefur götuþvottur
verið eftir atvikum og þörfum. „Það
gerist ekkert yfir annað yfir sumarið
hjá borginni. Önnur sveitarfélög
eru hins vegar að þrífa götur eins
og þörf er á, yfir allt sumarið. Við
fáum reglulega lista frá þeim með
kannski tíu götum sem þurfa
yfirhalningu. Þrifin eru því með
mun sveigjanlegra fyrirkomulagi
hjá smærri sveitarfélögunum,“
segir Lárus. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Maður getur
ímyndað sér það,
að þegar hvessir þá
þyrlast upp svifryk og
sandur.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar ákveður að hætta þvotti á húsagötum
„Borgarbúar
munu verða varir
við aukinn óþrifnað“
Sjálfstætt
starfandi
apótek
í Glæsibæ
Opnunartími: Virka daga frá kl. 8.30-18.00
Laugardaga frá kl. 10.00-14.00
Okkar markmið er að veita þér og þínum
framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Mekka íssins
Erum í miðbæ
Hveragerðis
Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís
Pinnaís | Krap | Bragðarefur
Ísfrappó | Sælgæti | Franskar
Samlokur | Gos | Snakk
Bland í poka | Pylsur | Kaffi
Opnunartími
mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22
lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði