Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Side 22
Páskablað 22.–29. mars 201622 Fréttir
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
Seinkun á greiðslum
kísilvera vegur þungt
Stjórnarformaður Reykjaneshafnar vonar að lóðargjöld Thorsil skili sér sem fyrst
Þ
etta hefur gríðarleg áhrif
enda er höfnin skuldum
vafin en við vonumst til
þess að þetta klárist núna.
En ef þetta tefst enn frekar,
þrátt fyrir að við séum að gera ráð
fyrir þessum tekjum, þá verðum
við að sýna því skilning að svo
stöddu,“ segir Davíð Páll Viðarsson,
stjórnar formaður Reykjaneshafnar,
aðspurður hvort höfnin geti frestað
enn frekar fyrsta gjalddaga Thorsil
ehf. á gatnagerðargjöldum vegna
lóðar fyrirtækisins í Helguvík.
Fjármögnun ljúki í apríl
Stjórn hafnarinnar samþykkti fyrir
viku að fresta gjalddaga Thorsil sem
vill byggja kísilmálmverksmiðju
í Helguvík. Félagið á samkvæmt
samkomulaginu að greiða fyrstu
greiðsluna 15. maí næstkomandi og
hefur því fimm sinnum fengið frest
síðan það átti upphaflega að ganga
frá henni í desember 2014. Þann
16. mars síðastliðinn, daginn eftir
að stjórnin samþykkti greiðslufrest
Thorsil, sendi Reykjaneshöfn frá
sér tilkynningu um að stjórnendur
hennar hefðu enn og aftur komist
að samkomulagi við kröfuhafa um
greiðslufrest og kyrrstöðutímabil.
Höfnin hefur verið á greiðslufresti
gagnvart stærstum hluta kröfuhafa
sinna frá október í fyrra. Ástæðan
er sú að hún getur ekki að óbreyttu
staðið undir greiðslu skulda sinna
sem námu í árslok 2014 alls 7,8
milljörðum króna.
„Við erum að gera ráð fyrir þess
um tekjum í rekstur hafnarinnar
og til að mæta skuldum en á sama
tíma er Thorsil að ganga í gegnum
fjármögnun verksmiðjunnar. Við
erum búin að vera í miklu sam
bandi við Thorsil og fyrirtækið er
á lokametrunum og við sýnum því
skilning að svo stöddu. En það er
engin spurning að seinkun þessar
ar fyrstu greiðslu vegur þungt,“
segir Davíð Páll.
Hákon Björnsson, forstjóri
Thorsil, gerir ráð fyrir að fjármögn
un kísilmálmverksmiðjunnar ljúki í
næsta mánuði.
„Það hefur alltaf verið í
samkomulaginu við Reykjanes
höfn að greiðsla okkar væri háð
því þegar við lykjum fjármögnun,“
segir Hákon og bendir réttilega á að
höfnin hafi verið orðin mjög skuld
sett áður en Thorsil fékk úthlutað
lóð í Helguvík.
Vill 100 milljónir
Reykjaneshöfn, sem er í eigu
Reykjanesbæjar, hefur ekki heldur
borist 100 milljóna króna greiðsla
sem eigandi lóðarinnar undir kísil
málmverksmiðju United Silicon í
Helguvík átti að greiða í lok nóvem
ber 2014. Eins og DV greindi frá í
febrúar þá greinir höfnina og einka
hlutafélagið Geysir Capital á um
ákvæði lóðarsamnings þeirra og eru
vanskilin komin í innheimtu. Höfnin
seldi lóðina árið 2012 á 352 milljónir
króna til einkahlutafélagsins Stakks
braut 9. Geysir Capital keypti lóð
ina af Stakksbraut 9 árið 2014 sem
rann síðar sama ár inn í United Sil
icon. Kaupverðinu var skipt í fjór
ar greiðslur og hefur Geysir Capital,
sem er í eigu hollenska félagsins USI
Holding BV, greitt tvær þeirra eða
samtals 200 milljónir króna. Sam
kvæmt upplýsingum DV hefur fé
lagið rökstutt vanskilin með vísun
í að Reykjaneshöfn hafi ekki staðið
við ákvæði samningsins um fram
kvæmdir við hafnargerð í Helguvík.
„Ég vil sem minnst tjá mig um
það mál því það er nú í höndum
lögmanna okkar sem eru að fara yfir
þetta. Vissulega hefur það einnig
áhrif á vanda hafnarinnar,“ segir
Davíð Páll. n
„Vissulega
hefur það
einnig áhrif á
vanda hafnar-
innar
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Ræða við Thorsil Davíð Páll Viðarsson,
stjórnarformaður Reykjaneshafnar, segist
sýna stöðu Thorsil skilning.
Helguvík Fyrirtækin Thorsil og
United Silicon stefna bæði að fram-
leiðslu kísilmálms í Helguvík hvort í
sinni verksmiðjunni. Mynd SiGTRyGGuR ARi
E
ignasafn Seðlabanka Íslands
(ESÍ), sem var fjórði stærsti
kröfuhafi slitabús Kaupþings,
greiddi atkvæði gegn tillögu um
að laun stjórnarmanns eignarhalds
félags Kaupþings yrðu 500 þúsund
evrur, jafnvirði 70 milljóna króna, á
ári og 250 þúsund evrur fyrir aðra
stjórnarmenn á fyrsta hluthafafundi
félagsins síðastliðinn miðvikudag.
Samkvæmt heimildum DV greiddi
ESÍ atkvæði gegn tillögunni ásamt
einum öðrum hluthafa, þýska bank
anum DZ Bank AG, en samkvæmt lista
yfir samningskröfuhafa Kaupþings í
lok síðasta árs á bankinn 0,54% hlut
í Kaupþingi. Fulltrúi ESÍ á fundinum
var Ástríður Gísladóttir, hæstarétt
arlögmaður og eigandi að Íslögum.
Ástríður er eiginkona Steinars Þórs
Guðgeirssonar en hann hefur starfað
undanfarið sem lögmaður og ráðgjafi
ESÍ og Seðlabankans.
Á hluthafafundinum voru þeir
Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður
og einn eiganda LOGOS, Alan J. Carr,
bandarískur lögmaður og ráðgjafi,
Jóhannes Rúnar Jóhannsson, for
maður slitastjórnar, og Paul Copley,
endurskoðandi og einn eigenda PwC
í London, kosnir í stjórn félagsins.
Þrátt fyrir að fjórmenningarnir hafi
verið þeir einu í framboði til fjögurra
manna stjórnar þá voru þeir ekki
sjálfkjörnir í stjórn, eins og venja er.
Fengu þeir stuðning allra hluthafa
sem greiddu atkvæði á fundinum
og var Alan J. Carr kjörinn stjórnar
formaður Kaupþings. n
hordur@dv.is
ESÍ greiddi atkvæði gegn
tillögu um stjórnarlaun
Fjórir stjórnarmenn Kaupþings skipta á milli sín 175 milljónum
Kaupþing Jóhannes Rúnar Jóhannsson
hefur verið kjörinn í fjögurra manna stjórn
félagsins. Mynd SiGTRyGGuR ARi