Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Qupperneq 28
Páskablað 22.–29. mars 201628 Fréttir Erlent
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.
Nýr 2015
Ford Transit
Custom 290
L2H1 - Langur
Aukabúnaður: TREND pakki sem kostar 400.000 í umboði.
Innifalið: Samlitir stuðarar, handfrjáls búnaður, hraðastillir, kastarar,
loftkæling, hiti í framrúðu, hiti í útispeglum, leðurstýri og gírhnúi, LED
ljós í innréttingu, viðarklæðning í flutningsrými, hjólkoppar og dráttar-
krókur (180.000). Einnig: Fjarstýrðar samlæsingar, Rafdrifnar rúður og
rafdrifnir speglar, spólvörn, stöðugleikakerfi, útvarp, vökvastýri.
Okkar verð: 3.990.000,- án vsk.
(4.947.600,- með vsk.) Um 900.000 undir listaverði
Renault
Master
Langur
háþekju L3H2
Okkar verð: 3.300.000,- án vsk.
(4.092.000,- með vsk.) Nýr bíll kosta 6.526.000
með þessum búnaði. 6 / 2014 ekinn 27.000 km.
8/2012
Renault
Trafic
L1H1
Okkar verð: 2.570.000,- án vsk.
(3.186.800,- með vsk.)
Renault
Master
DCI 125
sturtubíll
9/2012 Renault Master Sturtubíll. Ekinn aðeins 16 þús. km.
Innifalið: ABS hemlar, aksturstölva, fjarstýrðar samlæsingar, geislaspil-
ari, líknarbelgir, loftkæling, rafdrifnar rúður, rafdrifnir speglar, útvarp,
vökvastýri og þjónustubók. Lengd á palli er 3280 mm.
Okkar verð: 4.290.000,- án vsk.
(5.319.600,- með vsk.) Rúmri milljón undir listaverði
Aukabúnaður: ABS hemlar. Aðgerðahnappar í stýri. Aksturstölva.
Armpúði. Bluetooth handfrjáls búnaður . Dráttarkrókur. Fjarstýrðar
samlæsingar. Litað gler. Loftkæling . Rafdrifnar rúður. Rafdrifnir
speglar. Smurbók. Túrbína. Útvarp / Geislaspilari. Veltistýri. Vökva-
stýri. Líknabelgur hjá bílstjóra. Viðar klæddur að innan. Plata í botni.
Aukabúnaður: ABS hemlar, aðgerðahnappar í stýri, aksturstölva,
armpúði, bluetooth handfrjáls búnaður, dráttarkrókur, fjarstýrðar
samlæsingar, útvarp, litað gler, loftkæling, rafdrifnar rúður, rafdrifnir
speglar, vökvastýri, viðar klæddur að innan, plata í botni, skilrúm, Bakk-
myndavél, 250°opnun á afturhurðum, Spólvörn og stöðugleikakerfi ofl.
Kynlífsdúkka sem
lítur út eins og barn
ShengYi framleiðir kynlífsróbóta sem sendur er heim í eins konar líkkistu
K
ínverski hjálpartækjafram
leiðandinn ShengYi hefur
sent frá sér spánnýja vöru.
Um er að ræða kynlífs
róbóta sem lítur út fyrir
að vera stúlkubarn. Til að bíta höf
uðið af skömminni er stúlkan send
heim til kaupenda vafin inn eins og
múmía og í líkkistu. Breskir miðlar
hafa greint frá því að framleiðslan er
afar umdeild.
Kynlífsróbótinn kostar um 140
þúsund krónur. Dúkkan er sérstak
lega smágerð og vegur aðeins 25 kíló
og er 71 sentimetri á hæð – en það er
meðalhæð níu mánaða stúlkubarna
á Íslandi. Eitt hefur hún þó fram yfir
barnungar stúlkur, hún er áberandi
barmmikil. Hún kemur frá framleið
anda svartklædd frá toppi til táar og
er forrituð til að mæta kynlöngunum
karlmanna.
Tíu mismunandi andlit
Hægt er að velja um húðlit róbótans,
hár og augnlit. Afgreiðslutíminn er
að sögn fyrirtækisins stuttur, aðeins
fimm virkir dagar, en róbótinn er
framleiddur í Guangdong í Kína.
Í umsögn framleiðandans um
róbótann, á bjagaðri ensku, segir:
„Hönnun þessarar smágerðu
silíkondúkku er einstök á markaði
kynlífsdúkka árið 2016. Kynæsandi
japönsk kynlífsdúkka, raunveruleg
ur kynlífsróbóti fyrir karlmenn.“ Og
áfram er haldið: „Við getum sent
þér myndband af dúkkunni.“ Loks
er tekið fram að hægt sé að láta
skipta um höfuð; bæði japanskt og
evrópskt útlit sé í boði. „Þú getur
valið um tíu mismunandi andlit sem
passa á ólíkar stærðir af dúkkum.“
Róbótinn hitar sig upp í 37,5°C
og hefur, samkvæmt framleiðanda,
innbyggt USBtengi. Ekki kemur
fram til hvers það er ætlað. And
litsfarðinn gefur ekki frá sér lykt og
hárið ku bæði vera glansandi og
mjúkt áferðar.
Dúkkur niður í fimm ára
Þetta er ekki fyrsta kynlífshjálpar
fyrirtækið sem framleiðir dúkkur
eða róbóta sem líta út fyrir að vera
börn að aldri. Fyrr á þessu ári setti
japanskt fyrirtæki, Trottla, á mark
að dúkkur sem eiga að vera nákvæm
eftirmynd barnungra stúlkna, allt
niður í fimm ára. Fyrirtækið segir
að þeir séu ekki að framleiða kyn
lífsdúkkur en stofnandi þess, Shin
Takagi, hefur sagt að tilgangurinn
með framleiðslunni sé að hjálpa
barnaníðingum að halda aftur af
kynferðislegum kenndum sínum. n
ritstjorn@dv.is
Barmmikil
Dúkkan kemur
svartklædd.
Fimm ára?
Trottla, fram-
leiðandi þessarar
dúkku, segir að
markmiðið sé
ekki að framleiða
kynlífsdúkkur.