Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 32
Páskablað 22.–29. mars 201632 Fréttir
Þ
etta er alveg eins og fiskur,“
sagði Ingibjörg Kristjáns-
dóttir um eitt af þeim
páskaeggjum sem henni
bauðst að smakka á árlegri
páskaeggjasmökkun barnanna
hér á DV. Móðir Ingibjargar benti
reyndar á að Ingibjörgu fyndist
fiskur bara ágætur svo það ætti ekki
að taka dómi hennar sem lasti.
DV boðaði til sín fimm börn á
aldrinum fimm til þrettán ára til að
taka þátt í páskaeggjasmökkun. Að
þessu sinni brögðuðu börnin á 12
ólíkum páskaeggjum frá þremur
framleiðendum, Góu, Freyju og
Nóa Síríus. Úrvalið af páskaeggjum
þetta árið er umtalsvert eins og
á liðnum árum, en tekin var sú
ákvörðun að biðja börnin um að
segja álit sitt á hreinum súkkulaði-
eggjum frá öllum framleiðendum,
lakkríseggjum frá öllum framleið-
endum og svo sérstökum eggjum,
einu frá hverjum framleiðanda.
Vert er að benda á að eldri dóm-
nefnd kvað einnig upp dóm sinn
í helgarblaði DV en þar reyndist
dómnefndin, sem skipuð var er-
lendum skákmönnum, kunna best
að meta páskaeggið frá Nóa Síríus.
Börnin voru óneitanlega bæði ein-
lægari og óheflaðri í dómum sín-
um en skákmeistararnir. En barna-
dómnefndin var þó hjartanlega
sammála erlendu dómnefndinni.
Eggið frá Nóa Síríus reyndist vera
það sem var hvað óumdeildast hjá
börnunum sem sögðu það vera
bragðgott, með sætu eftirbragði.
Skemmtileg vinna
Smökkunin fór þannig fram að
börnin smökkuðu bara súkkulaði-
eggin. Sælgætið og umbúðir voru
fjarlægðar og eggin sett á diskar
og skálar. Þau fengu svo brot til
að smakka og þess var gætt að ef
súkkulaðið var til dæmis með lakk-
rís, þá fengju börnin bita með lakk-
rís. Börnin sögðu svo skoðun sína
og skrifuðu hana ýmist sjálf niður
eða fengu aðstoð fullorðinna að-
stoðarmanna sem fengu sjálf-
ir ekki að smakka eggin fyrr en
eftir að börnin höfðu kveðið upp
dóm sinn. Þetta var mikið þrek-
virki, enda ekkert grín að smakka
tólf páskaegg, en þau stóðu sig
með mikilli prýði og kann DV þeim
bestu þakkir.
Dómnefndina skipuðu systurnar
Ingibjörg og Lára Daníela Kristjáns-
dætur. Lára Daníela er sex ára en
Ingibjörg er níu ára. Þær eru báðar í
Háaleitisskóla, Sara Sigurvinsdóttir,
5 ára, í leikskólanum Grandaborg,
Ísarr Logi Arnarsson, 6 ára, í Folda-
skóla og Jóhann Ægir Arnarsson, 13
ára nemandi í Víðistaðaskóla. Jó-
hann Ægir var aldursforseti og því
formaður dómnefndar. Honum
fannst Draumaeggið frá Freyju
langbest og sagði: „Mjög gott – bara
fullkomið.“ Hann benti einnig á að
það væri nú ekki leiðinleg vinna að
fá að smakka páskaegg og eflaust
eftirsóknarvert að fá fastráðningu
við slíkt.
Lakkrísinn alltaf umdeildur
Eins og undanfarin ár voru lakk-
ríseggin umdeild. Börnunum bar
alls ekki saman um ágæti þeirra.
Láru Daníelu fannst hreint út sagt
skelfileg lífsreynsla að vera látin
bragða þau, en Söru og Jóhanni Ægi
fannst þau alveg sérstaklega góð.
„Mér fannst þetta ekki gott, ég fann
lakkrísbragð,“ sagði Lára og gretti
sig ógurlega þegar hún smakkaði
eitt lakkríseggjanna. Söru fannst
hins vegar lakkríseggin upp til hópa
afskaplega góð. „Ég veit hvað mér
finnst best við þetta og það er lakk-
rísinn, mjög, mjög gott,“ sagði hún
um Góu Appolo-eggið. Ísari Loga
fannst svo Nóa Lakkríseggið vera
best af þeim öllum.
Klofnaði
Dómnefnd barnanna klofnaði
einnig þegar kom að eggjum með
hrísi eða kexi. Söru fannst eggin
sem voru með Hrauni, Nóa kroppi
og Ríseggið ekki góð. „Mér finnst
svona kex ekki gott,“ sagði hún
ákveðin. Jóhanni Ægi fannst þó Nóa
Kroppseggið bæði vera góð blanda
af rís og súkkulaði. Lára Daníela lá
ekki á skoðunum sínum og var sam-
mála Jóhanni Ægi, en Freyju Rís-
eggið átti ekki upp á pallborðið hjá
henni. „Ojj, ógeðslegt bragð,“ sagði
hún.
„Þetta er gott“
Sem áður sagði var það venjulega
páskaeggið frá Nóa Síríus sem var
óumdeilt hjá dómnefndinni. Hún
var hins vegar ekki sammála um
önnur hrein egg. Söru fannst til
dæmis venjulegt páskaegg frá Góu
alveg ljómandi gott, en Láru Daníelu
fannst það mjög vont. Öllum nema
Ísari Loga fannst hreina eggið frá
Freyju afar slæmt, en hann sagði
einfaldlega: „Þetta er gott.“
Frekar ósammála
Þar sem dómnefndin var ósammála
í næstum öllum atriðum tók blaða-
maður ákvörðun um að raða eggj-
unum ekki upp í neina ákveðna
röð eftir styrkleika, en þeir sem eru
áhugasamir um hreinskiptna dóma
barnanna geta lesið þá óritskoðaða
hér til hliðar, en börnin segja venju
samkvæmt nákvæmlega það sem
þeim finnst. n
„Þetta er alveg eins og fiskur“
n Páskaeggið frá Nóa Síríus var best að mati barnadómnefndar DV
Góa egg
Lára Daníela: „Ekki gott – ógeðslegt
bragð.“
Ingibjörg: „Gott.“
Jóhann Ægir: „Svolítið þykkt – of sætt.“
Sara: „Gott, það er smá ísbragð að
þessu.“
Ísarr Logi: „Ekki gott.“
Góa Appoloegg
Lára Daníela: „Ekki gott, vil ekki
lakkrís og það er skrítið bragð.“
Ingibjörg: „Rosavont.“
Jóhann Ægir: „Þykkt og mikið lakkrís-
bragð.“
Sara: „Ég veit hvað mér finnst best
við þetta og það er lakkrísinn“
Ísarr Logi: „Ekki gott – verst af öllum.“
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is Dómnefndin
Jóhann Ægir Arnarson, 13 ára
Lára Daníela Kristjánsdóttir, 6 ára
Ingibjörg Kristjánsdóttir, 9 ára
Ísarr Logi Arnarsson, 6 ára
Sara Sigurvinsdóttir, 5 ára
Þau smökkuðu
þessi egg
n Góa egg
n Góa Appoloegg
n Góa fylltur lakkrís
n Góa Hraun
n Freyja Ævintýraegg
n Freyja Draumur – Lakkrísegg
n Freyja egg
n Freyja Rísegg
n Nóa Lakkrísegg
n Nóa Síríus egg
n Nóa Karmelluegg
n Nóa Kroppsegg
„Svakalega
gott!