Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Síða 34
34 Fólk Páskablað 22.–29. mars 2016
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus • Duusgata 10 • 230 Keflavík • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá k l. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
„Dópið var deyfilyf fyrir kvíðann“
Þ
órhallur er að eðlisfari
hljóðlátur og fámáll sem
kann að hljóma einkenni-
lega hvað varðar grínista.
En þegar hann stígur á svið
til að skemmta þá er hann ekki hann
sjálfur. Þá er hann uppistandarinn
Þórhallur sem er fullur af öryggi.
Nokkurs konar hliðarsjálf. „Fólk
heldur oft að ég sé að grínast allan
daginn, að ég sé þessi sonur hans
Ladda sem er ofboðslega hress. Svo
hittir það mig og skilur bara ekkert í
því hvað ég er leiðinlegur!“
Fólk gefur sér fyrirfram hug-
myndir um uppistandara.
„ Ósjaldan koma menn, oftast fullir,
upp að mér: „Hei, þú ert svona
sprellari, heyrðu, ég er hérna með
einn góðan brandara! Þú mátt nota
hann!“,“ segir Þórhallur og ekki er
laust við að hann sé örlítið mæðu-
legur þegar hann minnist á þetta.
„Síðan kemur einhver óskiljanleg
saga eða einstaklega lélegur Séð
og Heyrt-brandari sem ég á að vera
þakklátur fyrir.“
Hann segir fólk oft hafa rang-
hugmyndir um kvíðasjúkdóminn.
„Auðvitað er það eðlilegt að kvíða
hlutum eins og að fara í atvinnu-
viðtal eða til tannlæknis. En þegar
það er orðið óyfirstíganlegt að fara
út í búð að skipta vöru og tilhugs-
unin um það fær þig til að svitna
og skjálfa, það getur ekki verið neitt
eðlilegt við það. Munurinn er sá að
hugsanir hjá þeim sem eru með
kvíðaröskun eru margfalt öfga-
kenndari og fáránlegri. Það er allt
blásið upp og þessu fylgja miklir
líkamlegir verkir, hjartsláttur, svita-
köst og kuldi. Það er mikill munur á
þessu tvennu.“
Öskraði og grenjaði fyrsta
skóladaginn
Hann er örverpi foreldra sinna sem
skildu þegar hann var sjö ára gamall.
Eldri bræður hans tveir voru komnir
á unglingsaldur þegar hann loksins
mætti á svæðið. Það gat verið gaman
að eiga pabba sem var landsþekktur
grínisti. Þórhallur gantast þó með
að hafa átt frekar svefnlausa æsku.
„Á kvöldin kom pabbi og bauð mér
góða nótt og fór fram. En svo þurfti
Elsa Lund auðvitað líka að koma og
bjóða mér góða nótt og síðan kom
Saxi læknir og Marteinn Mosdal og
þannig hélt þetta áfram.“
Hann var ekki hár í loftinu þegar
fyrst fór að bera á einkennum kvíð-
ans. „Ég man eftir að hafa verið bara
polli, þriggja eða fjögurra ára. Ég fór
að sjá ofsjónir, alls konar viðbjóðs-
legar skepnur og skrímsli og nornir
og ég varð logandi hræddur vegna
þess að fyrir mér voru þessar verur
mjög raunverulegar, jafn raunveru-
legar og fólkið í kringum mig,“ segir
hann en hann minnist þess að hafa
mörgum árum seinna lært að um
var að ræða einkenni ofsakvíða hjá
börnum. „Þessar sýnir hurfu seinna
meir en þetta er það fyrsta sem ég
man eftir.
Ég man líka eftir því að hafa stöð-
ugt verið að hanga í pilsfaldinum
hennar mömmu. Ég var nefnilega
sannfærður um að hún ætti eftir að
stinga mig af. Ég svaf í sama her-
bergi og hún langt fram eftir barns-
aldri. Ég vildi ekki að hún næði að
hlaupast í burtu frá mér á meðan ég
svæfi.“
Svo kom að fyrsta skóladeginum
í grunnskóla. „Mamma mátti gjöra
svo vel og bera mig inn í skólann
öskrandi og gargandi af hræðslu.
Kennarinn þurfti að slíta mig úr
fanginu á henni og ég reif í hárið á
henni. Ég var logandi hræddur við
alla nýja hluti og aðstæður sem ég
þekkti ekki.“
Stöðugt með fíflalæti
Eins og við er að búast var Þórhallur
bekkjartrúðurinn í skólanum.
Laddasonurinn gat auðvitað ekki
verið þekktur fyrir annað en enda-
laust grín og sprell. „„Hei, nú kemur
Þórhallur, hann er svo fyndinn,
gerðu svona eins og pabbi þinn
gerir. Geturu hermt eftir strump-
unum? Taktu Saxa lækni, taktu Elsu
Lund“, sögðu krakkarnir.
Trúðurinn var náttúrulega bara
vörn enda leið mér illa í skólanum.
Ég lagði ekkert á mig við að læra
því alltaf var sú hugsun til staðar að
ég ætti eftir að gera mistök, klúðra
einhverju, gera mig að fífli. Þannig
að það var fínt að vera bara fyndni
gaurinn. Það lá líka beinast við.“
Áfengið og dópið
Hann rifjar upp þegar hann tók
fyrsta sopann af áfengi þegar hann
var 13 ára gamall. „Ef þetta hefði
verið atriði í bíómynd þá hefðu
himnarnir opnast og englakór sung-
ið hallelúja. Allt í einu var ekkert mál
að tala við ókunnugt fólk og allur
kvíði og allar þessar þjakandi hugs-
anir hurfu strax. Þetta varð deyfilyf.“
Vinir Þórhalls á þessum tíma
voru eldri strákar sem fiktuðu við
sterkari efni en áfengi. „Ég tók allan
pakkann; gras, amfetamín, kókaín
og e-töflur. Örvandi efnin voru best.
Ég taldi mér trú um að ég væri ekki
í neyslu, ég væri bara að fikta. Þetta
var auðvitað bara afneitun.“
Neyslan hélt áfram næstu árin
á milli þess sem Þórhallur kláraði
eina önn í menntaskóla og sinnti
hinum og þessum störfum. E-töflu-
neyslan náði hámarki á tímabili
og Þórhallur minnist þess að hafa
átt áhugaverðar samræður – við
gardínur. Og verið í partíum með
milljón manns, sem síðan reynd-
ust bara vera tveir einstaklingar. „Á
þessum tíma var rútínan þannig að
um helgar tók maður inn efni og allt
var æðislegt og frábært og ég var
kóngurinn – enda ekki að ástæðu-
lausu að það er talað um alsælu. Síð-
an vaknaði ég á mánudegi og þá var
lífið búið. Mér leið eins og ég hefði
myrt þrjár manneskjur og vanlíð-
anin var ólýsanleg. Síðan þraukaði
maður einhvern veginn fram að
næstu helgi og þá tók sama sagan
við. Þá varð lífið gott aftur. Þannig
að dópið var deyfilyf fyrir kvíðann,
en bara að takmörkuðu leyti.“
Hnífstunga breytti öllu
Það kann að hljóma undarlega að
það hafi bjargað lífi Þórhalls að vera
stunginn með hnífi þegar hann var
17 ára. „Ég var í einhverju dóppartíi
í flottu einbýlishúsi í Breiðholti þar
sem fyrir var alls konar lið úr öllum
áttum. Ég sat við hliðina á náunga og
við vorum að tala saman. Allt í einu
dró hann upp vasahníf og stakk mig
í kálfann, líklega bara af því að ég fór
svo mikið í taugarnar á honum. Ég
var búin að dæla í mig einhverjum
töflum, var mjög hátt uppi og fann
varla fyrir þessu; hugsaði bara um
að halda áfram í partíinu og hvar
næsta partí væri,“ segir hann.
„Neyslufélagarnir hentu mér út
„Ég gat aldrei svarað í símann ef það var óskráð númer sem hringt var úr því ég
var viss um að ég myndi fá einhverjar hræðilegar fréttir. Ég hef líka oft gert grín að
því að ég gat ekki farið á Subway í mörg ár þar sem ég þurfti að standa og vera
svakalega fljótur að velja hvað ég ætlaði að fá mér á samlokuna. Ég hreinlega
höndlaði það ekki,“ segir Þórhallur Þórhallsson uppistandari. Hann þjáist
af kvíða og félagsfælni og leiddist út í fíkniefnaneyslu á unglingsárum til að deyfa
vanlíðanina. Hann segir það ekki óalgengt að þeir sem eru þekktir sem gleðigjafar
beri á sama tíma harm sinn í hljóði enda missti hann sjálfur tvo vini í sjálfsvígi,
stráka sem allir höfðu séð sem trúða. Hann ræddi við blaðamann um kúka-
brandara, dópið, samtöl við gardínur, löngunina til að verða helgarpabbi, líkams-
árás sem breytti lífi hans og svo auðvitað það að alast upp sem sonur Ladda.
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
„Það er undar-
leg tilfinning
að horfa á eftir
besta vini sínum
síga niður í gröf
„En svo þurfti Elsa
Lund auðvitað líka
að koma og bjóða mér
góða nótt og síðan kom
Saxi læknir og Marteinn
Mosdal.