Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Page 45
Helgarblað 22.–29. mars 2016 Kynningarblað - Bílablaðið 5
www.islandus.is — facebook.com/islandusbilar — Sími: 552 2000
�a�ílar frá �.��0 þús.
�00� �ármögnun og íslensk áb�rgð í boði.
�áðu betra �lboð á www.islandus.is Outlander Tvinn‐Jeppi
Flo�ur ra�íll í innanb�jar akstur
og er einnig með eyðslugrannri
bensínvél fyrir lengri ferðalög
Mitsubishi Outlander PHEV
Nýr ��� �a�íll
Nýir og nýlegir bílar frá öllum helstu framleiðendum i l i íl ll l l i
Islandus hefur í meira en áratug aðstoðað við kaup á nýjum og nýlegum bílum frá Evrópu og USA.
Fjölmargir hafa sparað hundruði þúsunda, jafnvel milljónir króna, með beinum innflutningi.
Chevrolet Corvette árgerð 1974
E
gill Viggósson hefur í félagi
við son sinn látið gamlan
draum rætast og keypt sér
stórglæsilegan fornbíl, nánar
tiltekið Chevrolet Corvette
árgerð 1974. Bíllinn er einstaklega
glæsilegur eins og myndirnar bera
með sér. Hann er fluttur inn frá
Bandaríkjunum:
„Ég er áhugamaður um fornbíla
og það hefur verið draumur minn
í áratugi að eignast fornbíl. Átti 8
sílindra Mustang bíla þegar ég var
mjög ungur en núna er ég kom
inn yfir sextugt. Svo datt mér í hug
af rælni á annan í jólum að bjóða
í þennan bíl. Í rauninni missti ég af
honum, annar bauð betur, en svo var
haft samband við mig síðar vegna
þess að sá aðili var genginn úr skaft
inu, og bíllinn var minn,“* sagði Egill
í stuttu spjalli við DV. Að hans sögn
var þetta tækifæri sem ekki var hægt
að sleppa:
„Ég og sonur minn ræddum þetta
og vorum sammála um að við gætum
ekki sleppt þessu tækifæri. Bíllinn er
gullfallegur og allur nýuppgerður.
Það þarf reyndar að taka hann í gegn
að innan.“
Hann segir að bíllinn sé kraft
mikill þó að það hafi ekki verið mark
miðið:
„Ég var í sjálfu sér ekki að leita að
hestaflafjölda en þessi er með nýrri
vél sem er mun kraftmeiri en upp
runalega vélin eða 350 hestöfl í stað
260 hestafla eins og vélarnar voru
upphaflega í þessum bílum.“
Að sögn Egils er bíllinn bara ætl
aður til sparinota:
„Þetta er bara svona fyrir sunnu
daga og í sólinni. Núna er vorhugur
í mönnum og fornbílarnir fara bráð
um að sjást á götunum.“ n
Fornbíllinn: