Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 49
Páskablað 22.–29. mars 2016 Fólk Viðtal 41
alþingismenn og ríkisstjórn noti
þetta sem mælikvarða á það sem
samfélagið vill. Ég vona að þeir skilji
að hvernig þeir bregðast við þessu
kemur til með að hafa meiriháttar
áhrif á það hvernig atkvæði skiptast
næsta vor í þingkosningum. Ég get
lofað þér því að heilbrigðismál verða
heitasta kosningamálið á næsta
vori.“
Bara að hann rísi hratt
Ef þið Sigmundur enduðuð saman á
eyðieyju, bara tveir. Hvernig myndi
það enda?
„Ég hugsa að það færi mjög vel.
Ég kann feikivel við Sigmund. Hann
er skýr, skapandi og getur verið mjög
skemmtilegur. En ég held að hans
vandamál sé að hann les ekki nógu vel
þau skilaboð sem honum eru send. Í
stað þess að njóta þessarar stöðu sem
hann er í núna og hlusta og horfa og
brosa og taka svo sínar ákvarðanir þá
lítur hann á allt of margt í þessu sam-
félagi sem ógnandi.“
En eru þið ekki báðir pínu harð-
hausar? Getur það verið?
„Alls ekki. Það er ekki til annað í
mínu eðli en mýkt. Eins og þú veist.“
Hér gerir Kára sig sekan um að
brosa. Gráa skeggið rennur til hlið-
anna og hann verður allur mildilegri
að sjá. Við förum í önnur mál en ekki
minna aðkallandi.
Skiptir máli hvar spítalinn rís?
„Ég held það skipti óskaplega litlu
máli. Ég hef enga sérstaka skoðun á
því hvar hann eigi að rísa. Bara að
hann rísi hratt. Ég held því fram að
það útspil forsætisráðherra að leggja
til Vífilsstaðalóðina án þess að tala við
heilbrigðisráðherra og fjármálaráð-
herra og forystumenn Landspítala
og heilbrigðiskerfið sé ekki til neins
annars fallið en að tefja málið.
Ef við værum að hefja þetta mál í
dag þá myndi ég leggja til Vífilsstaði.
En ef ég væri forsætisráðherra þá
hefði ég rætt við heilbrigðisráðherra
og fjármálaráðherra. Að gera það
ekki er hreinn glæpur.“
Ef þú mættir velja einn mann til
að verða forseti Íslands. Hver væri
það?
Svarið lætur ekki á sér standa.
„Þórarin Eldjárn. Hann bara vill ekki
fara í þessa stöðu.“
Einhver af þeim sem hafa komið
fram?
„Ég hef einfaldlega ekki fylgst
nægilega vel með þessu. En ef ég réði
þessu embætti myndi ég leggja það
niður. Ég held að það gegni mjög litlu
hlutverki. Eins og ég met það mikils
við Ólaf Ragnar að hafa skotið þess-
um Icesave-málum til þjóðarinn-
ar þá held ég að það beygli svolítið
þingræðið að hafa þann möguleika.“
Frí heilbrigðisþjónusta
Þú segist vera sósíalisti. Er það rétt
hjá þér?
„Já.“
Hvernig upplifir þú þig sem sósía-
lista?
„Ég hef mikla trú á því að við
eigum að hlúa að samneyslu í okkar
samfélagi. Ég tel að við eigum að
reka kraftmikið heilbrigðiskerfi sem
á að vera algerlega frítt fyrir fólkið
í landinu. Það er alveg fáránlegt að
menn þurfi að draga upp kreditkortið
sitt þegar þeir koma inn á slysavarð-
stofu. Það er ekki ásættanlegt að það
verði mönnum fjárhagsleg byrði að
þurfa að borga fyrir lyf þegar menn
verða lasnir. Mér finnst að við eigum
að hlúa mjög vel að skólakerfinu
okkar. Ég hef raunar aðra skoðun á
skólakerfinu en Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra. Í stað þess að
stytta nám til stúdentsprófs finnst
mér að við eigum að lengja það
þannig að þessi blessuð börn fái að
vera í vernduðu umhverfi lengur.“
Ygglibrúnin er komin aftur. En
hún er miklu frekar merki um að
hann sé djúpt hugsi þegar hann talar.
Hann heldur áfram:
„Lífslíkur fólks eru að aukast. Stór
hundraðshluti heldur starfsgetu til 75
ára aldurs. Við ættum frekar að hækka
þennan skyldueftirlaunaaldur upp í
75 ár. Annars endum við með því að
vera með svo stóran hluta af samfé-
laginu á herðum okkar, sem ekki er
að leggja neitt af mörkum. Við endum
alltaf með að þurfa að sjá um allt þetta
fólk. Þetta er bara spurning hvernig
við ætlum að dreifa vinnunni.“
Bak við ygglibrúnina er góður
karl. Harður en hugsandi. Við förum
vítt og breitt.
Heilbrigðismál verða
næsta kosningamál
Glöggt er gests augað
Kári útskrifaðist sem læknir úr Háskóla Íslands fyrir fjörutíu árum.
Hann starfaði sem læknir Bandaríkjunum í tuttugu ár. Fimmtán ár í
Chicago og fimm ár í Boston.
„Þegar maður kemur til baka þá þykir manni ofboðslega vænt um
þessa þjóð og þetta land. Maður hefur líklega skarpari sýn á samfélagið
en þeir sem ekki hafa farið burtu. Mér finnst þetta alveg stórkostlegt
samfélag og það er miklu meira gaman að búa hér en í Bandaríkjunum.
Mér finnst við samt vera að glata aðeins þeim gæðum sem felast í
því að vera pínulítið fyrrverandi sveitasamfélag.
Ég man þegar ég kom heim, þá setti ég saman eftirfarandi vísu:
Það er á mínu böli bót
og björg úr ljótum pínum.
Að aftur hafi íslenskt grjót
undir fótum mínum.
Það gerði ég þótt mér finnist svona vísnasmíð bæði púkalega og óend-
anlega gamaldags, kannski vegna þess að ég hef á síðari árum öðlast tölu-
vert innsæi inn í þá staðreynd að ég er bæði púkalegur og gamaldags.“
Sigmundur þarf að finna gleðina Kári
er sannfærður um að Sigmundur þurfi að
finna gleðina á ný. Hann verður að hætta
þessu væli, segir Kári. Myndir Sigtryggur Ari
SJÓNMÆLINGAR
LINSUR • GLERAUGU
Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík
Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is