Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Side 50
Páskablað 22.–29. mars 201642 Fólk
Mikilvægasta málið
Píratar eru að mælast stærsta stjórn-
málaaflið í skoðanakönnunum.
Hugnast þér það?
„Mér finnst dáldið gaman að
Pírötum en ég veit ekki hvað þeir
eru. En það er þannig með marga
hluti sem mér finnst gaman að. Ég
veit ekki almennilega hvað það er.
Ég held að stór hundraðshluti af
þeirra fylgi eigi rætur sínar í því að
menn eru búnir að fá nóg af gömlu
fjórflokkunum og vilja ekki þeirra
kerfi og leiti þar af leiðandi á ein-
hvern stað þar sem er ekkert kerfi.
Ég held að Píratar yrðu fyrstir til að
viðurkenna að þeir eigi eftir að setja
saman stefnuskrá sem hægt sé að
reiða sig á. En þetta er kraftmikið,
duglegt fólk og ég vona að Píratar
verði jákvætt pólitískt afl í íslensku
samfélagi. Ég hef fulla trú á því að
þeir verði það.“
Hvað myndi sósíalistinn Kári
Stefánsson kjósa ef kosið væri til
Alþingis í dag?
„Ég get ekki svarað þessari spurn-
ingu. Ég er ekkert yfir mig hrifinn af
því hvernig stjórnmál eru að skipast
í íslensku samfélagi, akkúrat núna.
Við skulum orða það þannig að það
yrði sá stjórnmálaflokkur sem tekur
heilbrigðismálin í sitt fang. Sá for-
maður stjórnmálaflokks sem seg-
ir: Ég ætla að gera kröfuna í þessari
undirskriftasöfnun að baráttumáli
mínu, hann er formaður þess flokks
sem ég ætla að kjósa. Ég lít svo á
að heilbrigðismálin séu mikilvæg-
asti málaflokkurinn í dag. Og ég tel
að það gefi góða vísbendingu um
það hvernig stjórnmálaflokkur ætl-
ar að hlúa að almenningi í þessu
landi, hvernig hann vill halda á
heilbrigðis málum.“
Sigmundur verður að
endurheimta gleðina
Kári, hvað viltu ráðleggja Sigmundi
að gera í þessu máli og út frá ykkar
samskiptum?
„Hann verður að endurheimta
gleðina. Ég er alveg handviss um
að ef hann endurheimtir gleðina,
verður kátur og glaður, þá verður
hann aftur þetta góða afl í íslenskri
pólitík. Það er ekki hægt að fara í
gegnum þetta með fýlusvip og vera
sífellt að kvarta, veina og væla. Það
er ekki sæmandi fertugum manni
sem er forsætisráðherra. „The world
is his oyster“. Hvernig getur hann
látið eins og heimurinn sé vondur
við hann. Ég bara skil þetta ekki.“
Langar þig ekki til að stíga inn á
pólitíska svið …
„Nei. Ég er erfðafræðingur. Ég er
handviss um …“
Flugfreyja hefur verið forsætisráð-
herra?
„Já, mig langar heldur ekki til að
verða flugfreyja.“
Ygglibrúnin er horfin út í veður
og vind. Við hlæjum innilega. Hann
reynir að sækja á nýjan leik alvarleik-
ann sem hann er iðulega umlukinn.
Skoðaði sýni úr sjálfum sér
„Ég hef svo gaman af vinnunni
minni. Ég fæ að taka þátt í því að gera
uppgötvanir næstum því á hverjum
degi. Við erum enn þá sú „ operation“
í mannerfðafræði í heiminum sem
er að skila mestum árangri. Þetta er
sú hlið „biologiunnar“ sem er hvað
framsæknust. Ég lít svo á að ég sé for-
réttindamaður. Að fá að vinna með
öllu þessu stórkostlega fólki niðri í
Vatnsmýri er ólýsanlegt. Af hverju
ætti ég að vilja fara þaðan í að vera
einhver pólitíkus?“
Kári! Hefur þú einhvern tíma tekið
sýni úr sjálfum þér og rannsakað?
„Já. Erfðamengi mitt hefur verið
raðgreint úr DNA sem annars vegar
hefur verið einangrað úr blóði mínu
og hins vegar sem var einangrað úr
skafi úr kinninni á mér. Þannig að
allt erfðamengi mitt hefur verið rað-
greint tvisvar.“
Ertu eðlilegur?
„Erfðamengi mitt reyndist ekkert
sérstaklega merkilegt að skoða. Það
er í raun miklu auðveldara að kom-
ast að raun um eðli manns með því
að ræða við hann í fimm mínútur en
með því að skoða erfðamengi hans.
Að vísu kom í ljós að ég er með eina
stökkbreytingu sem veldur svolitlum
heilsufarslegum vanda, en ég ætla
ekki að fara út í það nánar. En það kom
mér á óvart þegar það var staðfest. Við
erum öll hönnuð þannig að endan-
lega þá deyjum við. Það er nauðsyn-
legt svo dýrategundin geti lifað áfram
að einstaklingurinn deyi. Við erum
hönnuð þannig að það bregst ekki.“
Hann hlær og það glampar á augun.
„Það bregst alls ekki, sko.“
Veist þú úr hverju þú munt deyja?
„Nei. Ég veit það ekki. Guði sé lof.
Ég hef ekki grænan grun.“
Drepur það ekki í manni trúna
og eitthvað fleira þegar verið er að
krukka í þessar grunnupplýsingar?
„Nei. Síður en svo. Það er svo langt
í frá. Það er til dæmis staðreynd að vís-
indi eins og þessi rekast áfram miklu
meira af tilfinningu en rökhugsun.
Það er staðreynd að hvernig menn
nota tilfinningar í starfi sem vísinda-
menn skiptir sköpum, ekki síður en í
list. Það er ekkert í svona vinnu sem
mér finnst drepa hjá mér rómantíska
sýn á tilveruna. Bara alls ekki.“
En guð? Trúir þú á hann?
„Steingrímur Thorsteinsson sagði
einhvern tímann:
Trúðu á tvennt í heimi
Tign sem hæsta ber
Guð í alheims geimi
Guð í sjálfum þér.
Mér finnst þetta mjög flott trúar-
setning. Við eigum að trúa á kærleik-
ann í okkur sjálfum og öllu í kringum
okkur. Það nægir mér.“
Þannig að svarið er nei.
„Ef guð væri karakter sem situr
uppi í himninum og horfir niður
hvössum augum, ætti ég erfitt með að
trúa á hann. Ég trúi hins vegar á mik-
ilvægi kærleikans í öllu. Ég lít ekki á
það sem óæðri trú á nokkurn hátt.“ n
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688
fanntofell@fanntofell.is | Finndu okkur á Facebook
Fanntófell hefur sérhæft sig
í framleiðslu á borðplötum og
sólbekkjum frá árinu 1987
Hráefnið sem notað er til framleiðslu
er allt gæðavörur, harðplast HPL, akrílstein,
Fenix NTM og límtré. Erum með mikið úrval
efna, áferða og lita.
Framleiðum eftir óskum hvers og eins.
HARÐPLAST OG AKRÍLSTEINN
Viðhaldsfrítt yfirborðsefni með mikla endingu og
endalausa möguleika í hönnun. Upplitast ekki,
dregur ekki í sig lit, raka, óhreiningi eða bakteríur.
FENIX
Nýtt fingrafarafrítt yfirborðsefni með
einstaka eiginleika og silkimjúka viðkomu.
Efnið er mjög álagsþolið, upplitast ekki og
hefur baktreríudrepandi eiginleika.
„Það er
ekki
hægt að fara í
gegnum þetta
með fýlusvip
og vera sífellt
að kvarta,
veina og væla.
„Mér
finnst
dáldið gaman
að Pírötum
en ég veit ekki
hvað þeir eru
Frítt heilbrigðiskerfi
Kári Stefánsson telur
óhæfu að fólk þurfi að
draga upp kreditkort á
slysavarðsstofu.