Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Blaðsíða 52
Páskablað 22.–29. mars 201644 Fólk Viðtal „Ég þekki ekki föður minn“ R agna tekur á móti blaða- manni á heimili sínu á sunnudagsmorgni. Hún er ein af frumbyggjunum í Hólahverfinu í Breiðholti, og hefur Elliðaárdalinn í bakgarðin- um. Ragna hefur búið í þessu sama húsi frá því hún var 28 ára, fyrir utan árið sem hún var í Los Angeles, og er ekki á leiðinni neitt annað. Heimil- ið er bjart og stílhreint. Hver hlutur á sínum stað. Eitt það fyrsta sem blaðamaður kemur auga er Eddu- verðlaunastytta. Þetta er sú nýjasta – heiðursverðlaunin – sem Ragna fékk afhent á síðustu hátíð. Fyrir átti hún fimm aðrar verðlaunastyttur og er vel að þeim öllum komin. Sami litur í 20 ár Þeir sem hafa orðið á vegi Rögnu í gegnum tíðina hafa eflaust tekið eftir því að hún er alltaf með rauðan vara- lit. Og að sjálfsögðu er hann á sínum stað þennan sunnudagsmorgun. Hún hlær þegar blaðamaður spyr hvort hún hafi meðvitað ákveðið að gera hann að einkennismerki sínu. „Ég er búin að vera með þennan lit í um tuttugu ár, án þess að muna af hverju ég byrjaði á því. En ég fer ekki út í garð eða búð án þess að hafa varalit. Ég er líka með hann á skíðum og hestbaki. Alltaf með einn í vasanum. Ef ég er ekki með varalit þá er ég bara litlaus.“ Vinkona Rögnu sem var flugfreyja var dugleg að færa henni nýjustu litina frá útlöndum og það var hún sem gaf henni fyrsta eintakið af rauða litnum. „Einu sinni kom hún með þennan lit, Revlon Red, en það merki var fáanlegt hér á landi á þeim tíma og það endaði með því að ég keypti upp allan lagerinn. Síðan var hætt að flytja inn merkið þannig að vinkona mín hélt áfram að kaupa varalit handa mér. Svo hættu þeir að framleiða Red og í staðinn kom Ice and Fire sem er bókstaflega alveg eins. Þannig að það slapp. Og ég á alltaf tíu eða tólf stykki af honum í einu. Það hvarflar ekki að mér að breyta litnum. Einu áhyggjurnar sem ég hef er hvernig ég muni fara að því að vera með þenn- an rauða varalit þegar ég verð áttræð,“ segir Ragna og skellir upp úr. Aðspurð segist Ragna hafa prófað aðra liti eftir að hún kynntist þessum eina sanna, en enginn hefur náð rétta blænum. Þessi fer henni best. „Maður þarf ekki alltaf að vera að finna upp hjól- ið,“ segir hún og við fáum okkur sæti í eldrauðu sófasetti – sem tónar vel við varalitinn – í einni stofu hússins. Og byrjum á byrjuninni. Heldur áfram meðan hún lærir „Ég byrjaði að læra hárgreiðslu þegar ég var 18 ára, vann svo aðeins á stofu, en byrjaði hjá Sjónvarpinu árið 1972 og er búin að vera þar síðan, fyrir utan eitt ár sem ég bjó í Los Angeles. Mér bauðst að vinna við þrjár bíómyndir þar. Myndir sem Jakob Frímann Magnússon og Sigurjón Sighvatsson voru að gera. Þar fyrir utan hef ég fengið frí hjá Sjónvarpinu til að vinna í yfir þrjátíu bíómyndum,“ segir Ragna sem á því næstum fimmtíu ára feril að baki, en hún varð 67 ára í febrúar síð- astliðnum. Hún fór aldrei í förðunar- nám, en slíkt nám var ekki í boði hér á landi þegar hún var að stíga sín fyrstu skref í bransanum. „Mín mesta þekk- ing og kunnátta er frá danska sjón- varpinu. Grunnur minn kemur það- an. Ég fékk að fara þangað nokkrum sinnum, tvo til þrjá mánuði í senn. Lærði til að mynda hárkollugerð þar á tveimur mánuðum. Svo hef ég auð- vitað farið á ýmis námskeið.“ Ragna segist þó hafa lært mest af því að vinna við fagið og hún er enn að læra eitthvað nýtt eftir öll þessi ár. „Ég hef alltaf sagt að á meðan ég læri eitthvað í starfi þá held ég áfram.“ Veit ekki hver faðir hennar er Ragna er fædd og uppalin í Reykja- vík, nánar tiltekið í Hlíðunum, þar sem hún bjó þar til hún stofnaði sjálf heimili í Breiðholtinu. „Nítján ára gömul var ég búin að byggja sumar- bústað og 21 árs íbúð. Svo byggðum við hér árið 1977,“ segir Ragna. Fjölskyldumynstur Rögnu er svolítið flókið, að eigin sögn. Alla- vega þegar kemur að því að útskýra hlutina fyrir öðrum. Sjálf þekkir hún auðvitað ekkert annað og kunni vel að meta það sem hún hafði. „Amma mín ættleiddi mig en blóðmóðir mín bjó með okkur, hún var heilsuveil. Ragna Fossberg hefur verið förðunarmeistari hjá Sjónvarpinu í næstum hálfa öld og fékk heiðursverðlaun Eddunnar fyrir ævistarf sitt nú fyrir skömmu. Þrátt fyrir að vera nýorðin 67 ára er hún hvergi nærri hætt að vinna enda er hún enn að læra nýja hluti í starfi og hefur ánægju af því sem hún gerir. Ragna fer í skíða- og hestaferðir og vílar ekki fyrir sér að sinna viðhaldi einbýlishússins sem hún býr í. Hún á það til að fara fram úr sjálfri sér og fyrir nokkrum árum gekk hún mjaðmakúlubrotin um San Francisco í tvo daga áður en hún fór til læknis. Hún er alin upp af ömmu sinni sem ættleiddi hana, en föður sinn þekkti hún aldrei. Blaðamaður settist niður með konunni með rauða varalitinn sem hefur farðað flesta leikara og sjónvarpsmenn landsins og gert marga óþekkjan- lega með ótrúlegum hæfileikum sínum. Hér beinist sviðsljósið hins vegar að henni. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Alltaf með rauða litinn Ragna Fossberg er búin að nota sama rauða varalitinn í tuttugu ár og er nú farin að hafa áhyggjur af því hvernig hann muni fara henni þegar hún verður áttræð. Mynd SigtRygguR ARi„Það hvarflaði aldrei að mér að ég fengi þessi verðlaun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.