Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Page 68
Páskablað 22.–29. mars 201660 Menning
Góð list endurspeglar um-
hverfi sitt og lífið almennt
Nýtt samtímalistagallerí, BERG Contemporary, hefur verið opnað á Klapparstíg
Á
föstudag var opnuð fyrsta
sýningin í nýju samtímalista-
galleríi, BERG Contemporary,
sem er í gömlu glerslípunar-
og speglaverksmiðjunni
við Klapparstíg 16, þegar Finnbogi
Pétursson opnaði sýningu á verkum
sínum.
Sýningarrýmið er stórt og glæsi-
legt, rúmlega 180 fermetrar og hátt til
lofts, með inngöngum bæði Klappar-
stígs- og Smiðjustígsmegin. Átta lista-
menn eru á snærum þessa nýja gall-
erís sem ætlar sér að auka fjölbreytni
og metnað í samtímalistasýningum í
miðbænum.
DV heimsótti BERG og spjallaði
við eiganda gallerísins, Ingibjörgu
Jónsdóttur, og Margréti Áskelsdóttur
framkvæmdastjóra.
Skortur á góðum sýningarrýmum
„Ég er menntaður myndlistarmaður
en hef líka verið að kenna í Mynd-
lista- og handíðaskólanum og Lista-
háskólanum, hef stýrt listasýningum
og safnað listaverkum í gegnum tíð-
ina. Þetta var kannski síðasti stóllinn
sem ég á eftir að tylla mér í,“ segir
Ingibjörg og hlær þegar hún er spurð
um af hverju hún hafi ákveðið að
stofna gallerí.
„Mér fannst líka kominn tími á
að fleiri gallerí bættust við senuna í
Reykjavík. Það er mikið af frábærum
listamönnum í Reykjavík en ekkert
afskaplega mikið af góðum sýningar-
sölum. Mér finnst sá skortur hafa
verið mjög áberandi. Þetta er liður
í því að opna senuna svolítið,“ segir
Ingibjörg.
„Ég er alls ekki að búa til gallerí
utan um mig eða mína list. Ég hef
ekki verið valin til að vera listamaður
í galleríinu. Það eru aðrir hvatar að
verki,“ segir hún.
Hvað hefur tekið langan tíma að
koma þessu á koppinn, frá hugmynd
að fyrstu opnun?
„Næstum sjö ár. Ég var svolítið
lengi að gera það upp við mig hvort
ég vildi gera þetta. Í upphafi fór ég
nokkra hringi, en fann að lokum að
þetta var eitthvað sem ég vildi gera.
Ég hef verið sýningarstjóri á nokkrum
safnsýningum hér heima, í Þýska-
landi og Bandaríkjunum og mér
fannst það eiga mjög vel við mig. Ég
hafði alltaf mikla ánægju af því að
kenna og þetta er kannski bara sami
þráðurinn sem ég fer aðeins lengra
með – að miðla list og hvetja lista-
menn áfram,“ segir Ingibjörg.
Eini fasti starfsmaður gallerísins
til að byrja með er framkvæmdastjór-
inn Margrét Áskelsdóttir, sem hefur
áður starfað sem kynningar- og rit-
stjóri listaverkabóka hjá Crymogeu,
auk þess að skrifa dansgagnrýni og
fást við sýningarstjórn.
Stefna á alþjóðlegan markað
Fyrir þá sem ekki vita, í hverju felst
starf listagallerís?
„Það felst fyrst og fremst í því að
styðja við og byggja undir feril lista-
manna, að koma þeim á framfæri –
og auðvitað að selja listaverk. Lista-
markaðurinn hér er hvorki þróaður
né stór, en hann er að þroskast, vaxa
og dafna. Þess vegna höfum við alveg
frá fyrstu tíð stefnt á alþjóðlegt mark-
aðssvæði. Við höfum því lagt okkur
eftir því að heimsækja ótal listmessur
síðustu árin. En þetta mun ekki bara
snúast um að selja og ýta undir feril
listamannanna heldur finnst mér
líka mjög mikilvægt að stuðla að góð-
um sýningum – að vera með í því að
þroska og þróa myndlistarlífið,“ segir
Ingibjörg.
„Við erum með átta listamenn á
okkar lista til að byrja með. Við treyst-
um okkur ekki til að byrja með mjög
marga, en svo ætlum við að bjóða
fleirum að sýna hjá okkur,“ segir Ingi-
björg og Margrét
bætir við: „Við viljum
frekar vinna vel fyrir
listamennina okk-
ar og gera eitthvað
fyrir þá af alvöru. Við
munum sýna fleiri
listamenn og jafn-
vel selja verk þeirra,
en til að byrja með
vinnum við sérstak-
lega fyrir þennan
kjarna.“
Láta hjartað ráða
Hvernig veljið þið lista-
mennina í galleríið?
„Maður hlustar bara
fyrst og fremst á hjartað.
Það er einhver tilfinning
sem ræður. Að velja lista-
menn er á vissan hátt eins
og að búa til verk. Þetta
eru samtímalistamenn
sem hver og einn hefur
mjög sterka rödd, þótt það sé vissu-
lega einhver samhljómur og sam-
tal. Við viljum að listamennirnir séu
með rödd sem lýsi samtímanum, að
þeir séu í samtali við samtímann.
Því það er það sem góð list gerir, hún
endurspeglar umhverfi sitt og lífið al-
mennt,“ segir Ingibjörg.
Margir þessara listamanna vinna
rýmisverk og innsetningar, er ekkert
erfitt að selja verk eftir slíka lista-
menn?
„Margir af listamönnum í dag
vinna rýmisverk en vinna svo
„dókumentasjónir“ eða einhver
minni verk sem eru þá seld. En það er
mjög mikilvægt fyrir listamenn að fá
að þroskast og þróast í þær áttir sem
hentar þeim. Við viljum líka að sýn-
ingarnar séu spennandi. Það er núm-
er eitt, tvö og þrjú, hitt kemur bara
svolítið af sjálfu sér,“ segir Ingibjörg
og Margrét bætir við: „Sýningarrýmið
okkar er einmitt að miklu leyti hugs-
að út frá rýmisverkum og vídeó-verk-
um sem margir af okkar listamönn-
um eru að vinna með. Það er ýmislegt
í rýminu gert sérstaklega fyrir þess
konar verk.“
Galleríin styðja við hvert annað
Ingibjörg segir galleríið ekki vera á
leið í samkepnni við önnur gallerí
heldur græði allir á því að listalífið sé
sem blómlegast. „Það er bara gaman
að listasenan stækki og dafni. Fleiri
gallerí styðja frekar við hvert annað.
Maður þekkir það sjálfur hvað það er
gaman að fara í galleríhverfi erlendis,
maður nennir ekki endilega að fara
langar leiðir til að sjá bara eitt gallerí,“
segir Ingibjörg.
„Við höfum verið í góðu samtali
við hin galleríin og við viljum í sam-
einingu búa til sterkari senu hér í
Reykjavík,“ bætir Margrét við.
Er eitthvað hægt að segja um verð
á verkum sem galleríið verður með til
sölu?
„Það er allur gangur á því. Það eru
mjög ólíkir listamenn með ólík verk.
Þetta eru allt frá fjölföldum verkum
til stærri innsetningar,“ segir Margrét.
Svo það ættu allir að geta haft efni
á einhverju?
„Örugglega á einhverjum punkti í
lífi sínu. Þannig kaupir fólk list, það er
oftast eitthvað sem það safnar fyrir,“
segir Ingibjörg. n
Sýning á verkum Finnboga Péturs-
sonar stendur yfir til 5. maí í BERG
Contemporary, Klapparstíg 16.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Opna nýtt gallerí Ingibjörg
og Margrét fyrir framan verk
eftir Finnboga Pétursson, sem
sýnt er í BERG samtímalista-
galleríinu um þessar mundir.
Mynd ÞOrMar ViGnir GunnarSSOn
„Ég hafði
alltaf mikla
ánægju af því að kenna
og þetta er kannski bara
sami þráðurinn sem ég
fer aðeins lengra með –
að miðla list og hvetja
listamenn áfram.
Listamenn hjá Berg
Contemporary
n Finnbogi Pétursson
n Hulda Stefánsdóttir
n Haraldur Jónsson
n Sigurður Guðjónsson
n Rintaro Hara
n Monika Grzymala
n Woody Vasulka
n Steina Vasulka
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun