Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Page 73
Páskablað 22.–29. mars 2016 Menning 65
VIÐ
HREINSUM
ÚLPUR!
Verð frá kr. 2.790 til kr. 3.990.
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...
Þ
að er margt næstum því
sjarmerandi gamaldags
við myndina. Næstum
því. Hún er þokkafull flug-
freyja. Hann rekur vídeó-
leigu, eða því sem næst. Fólk reyk-
ir enn. Og konur eru annaðhvort
daðurdrósir eða afskiptar eiginkon-
ur. Líklega hefði verið betra að gera
períóðu um Reykjavík „in ðe eitís.“
En því láni eigum við ekki að fagna.
Allt annað er hér á sínum stað
samkvæmt handbókinni um
rómantískar gamanmyndir. Sögu-
hetjan er nörd. Ekki sjarmerandi
besservisser, bara maður sem lítur
niður á alla sem hafa ekki heyrt
um Truffaut og er reiðubúinn til að
leggja líf sitt og annarra í rúst til að
sýna fram á það. Besti vinurinn er
„slísí“ töffari sem nýtur kvenhylli og
virðist almennt annars helst hafa
þann tilgang að gefa okkar manni
góð ráð, sem hann hunsar.
Ekki er auðvelt að sjá hvað varð
þess valdandi að einmitt þess-
ir tveir urðu vinir. Ekki er heldur
hægt að sjá hvers vegna þokkadís-
in, sem er af efnafólki komin, kaus
að giftast honum. Né heldur hvers
vegna hann fær ekki frið í vinnunni
fyrir ungum stúlkum, en allir hér
eru haldnir afbrýðisemi á háu stigi
svo að meinlaust hálfdaður um há-
bjartan dag er rætt í matarboðum
og leiðir til sambands- og vinslita.
Strax í upphafi er ljóst hvaða leið
þarf að fara, okkar maður þarf að
selja búðina til að borga af húsinu
og fá sér alvöruvinnu til að sjá fyrir
fjölskyldunni. Allt þetta stendur til
boða en hann þráast við. Hvað um
það, Reykjavík er full af tvítugum
stelpum sem hugga fertuga og frá-
skilda menn og segja þeim í ofaná-
lag að allt fari skánandi um fimm-
tugt. Svo vill til að ein þeirra er
dóttir besta vinarins, en hér lærum
við að besta leiðin til að bæta sam-
band vina okkar við börnin sín er
að sofa hjá þeim.
Það besta sem hægt er að segja
um myndina er að hún hlífir okkur
við vondum bröndurum, því engir
brandarar eru í henni yfirhöfuð eftir
því sem ég kemst næst. Hún er því
hvorki rómantísk né gamanmynd.
Öllu verra er að hún stendur sig
heldur ekki sem vísanaveisla fyrir
kvikmyndanörda, allir aðrir vísa í
Godfather og Pulp Fiction og óþarfi
að gera það hér líka. Hinn annars
stórskemmtilegi leikstjóri myndar-
innar á betra skilið en þetta, og það
eiga áhorfendur líka.
Nú þurfa menn heldur betur að
fara að taka sig á ef íslenska kvik-
myndasumarið, sem hófst í fyrra, á
ekki að fá jafn snubbóttan endi og
arabíska vorið. n
Íslenska nóttin
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvik yndir
Reykjavík
Leikstjórn og handrit: Ásgrímur Sverrisson.
Aðalhlutverk: Atli Rafn Sigurðsson,
Nanna Kristín Magnúsdóttir og Gudmundur
Thorvaldsson.
92 mínútur
Vísað í kvikmyndasöguna Í Reykjavík er vitnað hingað og þangað til kvikmyndasögunnar,
meðal annars frægt atriði í kvikmyndinni Le Mépris eftir franska leikstjórann Jean-Luc Godard.
„Það er margt
næstum því
sjarmerandi gamaldags
við myndina. Næstum því.
Hringur á krossgötum
Atli Rafn Sigurðsson leikur
Hring sem virðist ætla að
missa húsið og fjölskylduna
til að halda í kvikmynda-
búðina sína.
HönnunarMars heldur áfram
Nokkrar hönnunarsýningar enn opnar
H
inn árlega hönnunarhátíð
Hönnunarmars fór fram
10. til 13. mars síðastliðinn.
Nokkrar hönnunartengdar
sýningar sem voru opnaðar á hátíð-
inni standa enn yfir.
Samsýning fjölmargra hönnuða í
Lækningaminjasafninu, Seltjarnar-
nesi er opin til 26. mars og þá verða
sýningar Sturlu Más Jónssonar og
Þórunnar Árnadóttur, Prestar og
Frímínútur, opnar í Gallerí Gróttu,
Eiðistorgi, til sama dags.
Afrakstur tilraunaverkefnisins
1+1+1, samstarfsverkefnis
hönnunarteymisins Hugdettu frá
Íslandi, Petru Lilju frá Svíþjóð og
Aalto+Aalto frá Finnlandi, stendur
yfir í Spark, Klapparstíg 33, til 1. apríl.
Sýning á skissum sem gestir gerðu
á Hönnunarmars stendur yfir í Arion
banka, Borgartúni 19, til 9. apríl.
Leturverk, sýning á verkum eftir
hóp grafískra hönnuða, sem kalla sig
Tákn og teikn, stendur yfir á Mokka-
Kaffi, Skólavörðustíg, til 13. apríl.
Þá er sýningin Þríund opin til
29. maí í Hönnunarsafninu Garða-
torgi, en þar er sýnd hönnun Helgu
Ragnhildar Mogensen, skartgripa-
hönnuðar, Bjarna Viðars Sigurðs-
sonar, keramiker, og Anítu Hirlekar,
fatahönnuðar. n
Frímínútur Hönnun Þórunnar Árnadóttur
er til sýnis í Gallerí Gróttu til 26. mars.