Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2016, Page 84
Páskablað 22.–29. mars 201676 Fólk
B
rimrún Birta Friðþjófsdóttir
er ung og efnileg listakona,
alin upp á Rifi og stundar
nám við Menntaskólann
í Hamrahlíð. Undanfarið
hefur Brimrún hlotið lof og athygli
fyrir myndir sínar. Við listina notast
Brimrún við vatnsliti en vinnur svo
vatnslitamyndirnar sínar í mynd-
vinnsluforriti í tölvu. Brimrún
teiknar helst sterkar kvenfígúrur og
er meðvituð um að þær séu allar
ólíkar líkt og konur almennt.
Margar litlar hugmyndir
Brimrún er hógvær og hugsar sig
lengi um þegar hún er spurð hvern-
ig hún myndi lýsa listrænum stíl
sínum. „Ég einfaldlega veit það
ekki. Stíllinn minn er eitthvað sem
ég hef þróað með tímanum. Ég
byrjaði fyrst að teikna í svoköll-
uðum japönskum stíl en svo hef
ég orðið fyrir æ meiri áhrifum frá
Disney-teiknimyndum. Ég myndi
því segja að stíllinn sé blanda af
nokkrum öðrum stílum. Allt sem ég
teikna eru litlar hugmyndir sem ég
skissa niður í teikniblokkina mína
í skólanum en svo vinn ég þær
lengra þegar ég kem heim. Ég ein-
faldlega geri eitthvað og svo sé ég
hvert það leiðir. Stundum heppn-
ast það og stundum ekki og það er
það skemmtilega við að teikna, að
skapa eitthvað sem enginn hefur
séð áður. “
Brimrún segist fá margar litlar
hugmyndir á hverjum degi en að
einungis nokkrar þeirra verði að
veruleika. Þá byrja hugmyndirnar
að mótast í kollinum á henni sem
leiða síðan niður í skissublokkina
hennar. Örfáar eru loks vatnslitað-
ar og nýlega fór Brimrún að snyrta
vatnslitamyndirnar með mynd-
vinnsluforritinu Photoshop.
„Ég nota vatnsliti og hef verið að
prófa að blanda saman tölvutækn-
inni og vatnslitatækninni með því
að skanna vantslitamyndirnar mín-
ar inn í tölvuna og laga þær þar. Svo
teikna ég á lítið teikniborð sem ég
keypti mér árið 2011 en ég er ennþá
að læra á þessa tækni. Ég byrjaði til
dæmis fyrst í fyrra að nota Photo-
shop svo þar er ég alltaf að læra
eitthvað nýtt.“
Stefnir á að starfa sem teiknari
Myndlistin er í dag helsta áhuga-
mál Brimrúnar en draumurinn
er að geta starfað við áhugamál-
ið í framtíðinni. „Ég stefni á að
verða myndskreytir. Hvort sem
ég mun teikna í bækur eða fyrir
tölvuleikjafyrirtæki eða jafnvel sem
sjálfstæður teiknari. Draumurinn
er að geta unnið með teikningar
mínar og leyft fólki að njóta þeirra.
Ég er byrjuð að setja myndirn-
ar á samfélagsmiðla til
að auglýsa mig og leyfa
fólki að fylgjast með því
sem ég er að gera.“
Í mörgum tilfellum
teiknar Brimrún sterkar
kvenfígúrur en það er
eftirtektarvert hversu
ólíkar þær eru og hve
sterkt hún nær að
undirstrika mismun-
andi vaxtarlag, litarhaft
og útlit. Brimrún segist
þó ekki gera þetta með-
vitað heldur verði hún
fyrir áhrifum frá fólk-
inu í kringum sig sem
er jafn ólíkt og það er
margt.
„Ég ákveð ekki að í
dag ætli ég að teikna
mjóar konur eða
dökkar konur. Ég byrja
alltaf með skissu og svo
ræðst það af heildar-
myndinni hvers konar
manneskju ég teikna.
Til dæmis getur litavalið í bak-
grunninum stýrt hörundslit fígúr-
unnar sem ég er að teikna. Ef ég er
með bakgrunnslit sem passar fyrir
konu með dökka húð þá teikna ég
konu með dökka húð. Ég vil samt
meðvitað ekki teikna alltaf sömu
manneskjuna, ég vil hafa þær mis-
munandi því konur eru ólíkar.
Mér er samt farið að finnast mjög
gaman þegar fólk tekur sérstak-
lega eftir þessum þáttum í mynd-
unum mínum og er sérlega ánægt
að sjá til að mynda þykkar konur í
teikningu sem það sér ekki dags-
daglega.“
Hægt er að fylgjast betur með
Brimrúnu á Instagram, Facebook
og Youtube undir nafninu Brim-
Run. n
Vill skapa eitthvað sem
enginn hefur séð áður
n Brimrún teiknar helst sterkar kvenfígúrur n Stefnir á að verða myndskreytir
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
Sterkar kvenfígúrur Brimrún teiknar gjarnan sterkar kvenfígúrur og undirstrikar mismunandi vaxtarlag þeirra, litarhaft og útlit.
Brimrún Birta Hana dreymir um að vinna
með teikningarnar sínar og leyfa fólki að
njóta þeirra.
„Ég byrja alltaf
með skissu og svo
ræðst það af heildar-
myndinni hvers konar
manneskju ég teikna.nýjar
vörur
í hverri viku
alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Bæjarlind 1-3 - 201 Kópavogur - Sími: 571 5464
Sjáðu úrvalið á
www.tiskuhus.is