Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Blaðsíða 2
Helgarblað 2.–5. september 20162 Fréttir
Ríkisendurskoðun
kaupir nýjan jeppa
n Lítið ekinn Land Cruiser settur á sölu n Nýr Hyundai Santa Fe keyptur
R
íkisendurskoðun hefur fest
kaup á nýjum 7,3 milljóna
króna Hyundai Santa Fe-
jeppa sem samkvæmt upp-
lýsingum frá stofnuninni er
notaður af starfsmönnum þegar þeir
þurfa að sinna vinnutengdum erind-
um. Fyrir átti stofnunin Land Cruiser
GX-jeppa sem keyptur var nýr árið
2006 og er aðeins ekinn tæpa 76 þús-
und kílómetra. Land Cruiser-jeppinn
hefur nú verið settur á sölu af
Ríkiskaupum, þar sem hann
verður seldur hæstbjóðanda á
bílauppboði.
Nýr Hyundai Santa Fe-
jeppi kostar hjá umboðinu á
Íslandi í dag á bilinu 6,9 til 8,6
milljónir króna. En hafa ber í
huga að við kaup ríkisins á bif-
reiðum í gegnum örútboð fæst
að jafnaði ágætur afsláttur og
hagstæðara verð en almenn-
ingi stendur til boða. Nýi jeppinn, sem
er með 200 hestafla dísilvél og sjálf-
skiptur, kostaði 7.350 þúsund krón-
ur. Var hann nýskráður á Ríkisendur-
skoðun þann 5. júlí síðastliðinn.
Selja
Toyota Land Cruiser-jeppinn, sem
seldur verður upp í kaupverðið á
nýja jeppanum, er nú auglýstur til
sölu á vefnum Bílauppboð.is. Í aug-
lýsingunni kemur fram að jepp-
inn sé nýlega kominn úr skoðun hjá
Toyota þar sem bremsur voru yfir-
farnar og endurnýjaðar. Jeppinn er
aðeins ekinn tæpa 76 þúsund kíló-
metra sem verður að teljast lítið mið-
að við tíu ára gamlan bíl, eða aðeins
7.600 kílómetra á ári. Samkvæmt árs-
skýrslu Ríkisendurskoðunar, fyrir árið
2015, nam kostnaður stofnunarinnar
vegna jeppans á síðasta ári 378 þús-
und krónum. Munaði þar mestu um
bensín og olíukostnað sem nam 179
þúsund krónum, opinber gjöld og
tryggingar sem námu 132 þúsund
krónum en 65 þúsund krónur fóru í
viðgerðir og viðhald. Bíll Ríkisendur-
skoðunar virðist því tiltölulega lítið
notaður ár hvert.
Of langt í lægsta tilboðið
Samkvæmt heimildum DV var lægsta
tilboðinu í örútboði Ríkisendur-
skoðunar ekki tekið. Ástæðan var
sú að í útboðslýsingu var gerð krafa
um afhendingu innan 10 vikna að
hámarki. En lægsta tilboðið, sem
var Subaru Outback-bifreið á tæp-
ar 6,4 milljónir, var með 16 vikna af-
hendingartíma sem uppfyllti ekki
skilyrði stofnunarinnar. Var því kom-
ist að þeirri niðurstöðu að hagstæð-
ustu kaupin væru Santa Fe-jeppinn,
sem þó var tæpri einni milljón króna
dýrari. Sú staðreynd er athyglisverð
í ljósi hlutverks Ríkisendurskoðun-
ar sem meðal annars er að stuðla að
umbótum í fjármálastjórn ríkisins og
nýtingu almannafjár.
Auk ítarlegrar umfjöllunar um bif-
reiðakaup ráðuneytanna að undan-
förnu upplýsti DV einnig um kaup
ríkisstofnananna Byggðastofnun
og Viðlagatrygging Íslands á nýj-
um jeppum fyrir forstöðumenn
sína fyrr á þessu ári. Þeir jepp-
ar voru hluti af starfskjörum for-
stjóra Byggðastofnunar annars vegar
og framkvæmdastjóra Viðlaga-
tryggingar hins vegar. En samkvæmt
upplýsingum frá Ríkisendurskoðun
er það ekki tilfellið þar á bæ. Hyundai
Santa Fe-jeppinn ku ekki vera hluti af
starfskjörum Sveins Arasonar ríkis-
endurskoðanda. n
Svona kaupir ríkið bíla
Til að kaupa nýja bifreið þarf viðkomandi stofnun eða ríkisfyrirtæki að fylla út umsókn
til Bílanefndar ríkisins þar sem koma þarf fram meðal annars lýsing á hlutverki og þörf-
um, áætlaður akstur á ári og óskir um sérbúnað og aukabúnað.
Þegar væntanlegir kaupendur hafa fengið heimild hjá Bílanefnd ríkisins til bíla-
kaupa efna kaupendur til örútboðs um þær bifreiðar sem kaupa skal. Í kjölfar örútboðs,
þar sem leitað er skriflegra tilboða meðal samningshafa þar sem besta tilboðið, á
grundvelli þeirra krafna og óska sem gerðar voru, sendir kaupandi inn pöntunarbeiðni til
Ríkiskaupa. Ríkiskaup panta síðan bifreiðina fyrir viðkomandi stofnun eða ríkisfyrirtæki
sem skráð verður fyrir bifreiðinni. Ríkiskaup sér síðan um að selja gömlu bifreiðina, sem
gert er í samstarfi við Bílauppboð.is.
Nýr jeppi Ríkisendurskoðun keypti nýjan Hyundai Santa
Fe-jeppa í júlí síðastliðnum á rúmar 7,3 milljónir króna.
Jeppinn er notaður af starfsmönnum í vinnutengdum er-
indum. Myndin er af sambærilegum jeppa. MyNd Eyþór ÁrNaSON
ríkisend-
urskoðandi
Sveinn Arason.
Gamli settur á sölu
Land Cruiser 120 GX-jeppi
Ríkisendurskoðunar hefur
verið settur á sölu. MyNd BílauppBOð.iS
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Guðni Th. hefur
skilað uppgjöri
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, hefur bæst í hóp þeirra
frambjóðenda til forsetaemb-
ættisins í sumar sem skilað
hefur fjárhagslegu uppgjöri um
kosningabaráttu sína til Rík-
isendurskoðunar. Fyrir höfðu
þær Guðrún Margrét Pálsdóttir
og Hildur Þórðardóttir gert það
líkt og DV greindi frá á dögun-
um.
Níu voru í framboði og eiga
sex frambjóðendur því eftir að
skila upplýsingum um tekjur
og kostnað vegna kosninga-
baráttunnar eins og lög gera
ráð fyrir, séu heildartekjur eða
heildarkostnaður yfir 400 þús-
und króna. Frambjóðendum
ber að skila þessu uppgjöri eigi
síðar en þremur mánuðum
frá því að forsetakjör fór fram.
Enn er því tæpur mánuður til
stefnu.
Þegar uppgjörin hafa verið
yfirfarin og staðfest af Ríkis-
endurskoðun, verða þau birt á
vef stofnunarinnar.
Í kappræðum forsetafram-
bjóðenda á RÚV þann 24. júní
síðastliðinn sagði Guðni að
vel á annan tug milljóna króna
hefðu safnast vegna kosninga-
baráttunnar. Hann kvaðst þó
ekki þekkja heildartöluna.
HVAR ER SÓSAN?
Tvö brauð, ostur, buff og grænmeti nægja ekki til að gera góðan borgara.
Ef sósuna vantar er eins gott að sleppa þessu.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.