Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Blaðsíða 16
Helgarblað 2.–5. september 201616 Fréttir V ið teljum að Costco muni hafa töluverð áhrif á Apple- markaðinn hér heima því þetta er svo stór risi og stefna hans er að bjóða hágæða vörumerki á góðu verði,“ segir Trausti Haraldsson, fram- kvæmdastjóri hugbúnaðar- og greiningarfyrirtækisins Zenter, sem vann í vor skýrslu um áhrif verslun- arreksturs Costco á íslenskan mark- að. Trausti segir smásölurisann leita eftir hagstæðasta innkaupsverðinu á raftækjum og öðrum vörum, hvort sem það sé hér á landi eða annars staðar. „Það sem Costco gerir er að finna hagstæðasta verðið á Evrópska efna- hagssvæðinu. Samkvæmt lögum um samhliða innflutning þurfa þeir aft- ur á móti ekki að versla við aðila sem eru með umboð fyrir ákveðna vöru ef þeir finna lægra verð með öðrum leiðum,“ segir Trausti. Heimsóttu Costco Líkt og komið hefur fram telur Zent- er að innkoma Costco muni hafa víðtæk áhrif á fjölda íslenskra fyr- irtækja og markaðinn hér heima. Starfsmenn fyrirtækisins heimsóttu verslanir Costco í Bretlandi og var í skýrslunni einblínt á möguleg áhrif á matvörumarkað og eldsneytissölu hér á landi. Ekki var gerð sérstök greining á mögulegum áhrifum á ís- lenska raftækjamarkaðinn sem veltir tugum milljarða króna á ári. „Við gerðum stutta lýsingu á mörkuðunum sem Costo er inni á og fórum ekki í raftækjamarkað- inn en Costco er með gæðamerki en fáar tegundir. Þeir selja til að mynda Apple-vörur, Sony og fleira. Við skoðuðum verðið úti og meðal annars kom í ljós að hægt var að fá lægra verð í Costco en á Ebay,“ seg- ir Trausti. „Um 25% af vöruúrvali Costco fellur undir sérstakan afsláttarflokk og þar má finna Apple-vörur eins og Ipad og tölvur en einnig myndavélar á sérstöku tilboði. Við höfum ekki sett okkur í samband við raftækjaverslan- ir en við munum heyra í þeim svo þau átti sig betur á hugmyndinni að baki Costco og mögulegum áhrifum.“ Íslenskt viðmót Bjarni Ákason, eigandi og fram- kvæmdastjóri Epli, sem er umboðs- aðili Apple á Íslandi, telur líklegt að það verði hagstæðara fyrir Costco að kaupa Apple-vörur af fyrirtæki hans. „Ég fór sjálfur á sínum tíma til Watford og skoðaði þessa verslun sem er fyrirmynd þeirrar sem á að setja upp hér á Íslandi. Þar var eitt- hvað úrval af Apple-vörum en ég hef svo sem ekki áhyggjur af því. Ég geri ráð fyrir að við verðum birgir fyrir þá. Við erum með íslensk lyklaborð sem eru fyrir íslenska markaðinn og ég held að það yrði ekki hagkvæmara fyrir þá að leita annað. En eftir að hafa skoðað þetta held ég að margir mættu hafa áhyggjur. Til dæmis þeir sem eru í þessum raftækjageira og stórar keðj- ur eins og IKEA,“ segir Bjarni. Framkvæmdastjórinn útskýrir að sem umboðsaðili sé Epli annars vegar með svokallaðan dreifingarsamning við Apple. Fyrirtækið sjái einnig um mark- aðssetningu á vörunum hér á landi. „Svo erum við með þjónustu- samning og gerum við tækin og til dæmis þjónustum þá sem kaupa Apple-vörur í útlöndum. Við erum með tvær verslanir en mjög stórt dreifingarkerfi þar sem fyrirtæki eru að kaupa af okkur. Við erum oftast með svipað verð og í Skandinavíu því þar er virðisaukaskattskerfið líkt því sem er hér. Álagningin í þess- um geira er svipuð og Costco mun koma til með að greiða sama virðis- aukaskatt og aðrir,“ segir Bjarni. Lausleg verðathugun DV sýnir að fjórða kynslóð Apple TV, með 32 gígabæta vinnsluminni, kostar rúm- ar 19 þúsund krónur hjá Costco í Bretlandi. Sama vara er seld á 26.990 krónur í verslunum hér á landi. Iphone 6s Plus, með 128 gígabæta geymsluminni, kostar 118 þúsund í Costco en rétt tæpar 175 þúsund krónur hér á landi. Costco rukkar 285 þúsund krónur fyrir Macbook Pro- ferðatölvu, með 15 tommu Retina- skjá og 512 gígabæta geymsluminni, en verðið er 470 þúsund krónur hér á landi. Taka ber fram að verð Costco miðast við gengi breska pundsins í gær, fimmtudag. Pundið hefur fall- ið um 20% síðan um áramót. Einnig þarf að taka tillit til tolla hér á landi, álagningu virðisaukaskatts og flutn- ingsgjalda. n Koma Costco lækkar verð á Apple-vörum n Fer inn á raftækjamarkaðinn sem veltir tugum milljarða n „Margir mættu hafa áhyggjur Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Unnu skýrsluna Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Zenter. Umboðsaðilinn Bjarni Ákason, eigandi og framkvæmdastjóri Epli. Kauptún Gert er ráð fyrir að fjórtán þúsund fermetra verslun Costco hér á landi verði opnuð í Garðabæ í mars á næsta ári. Sumargjöfin í ár! Þráðlausu Touch heyrnartólin á Hópkaup.is. Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. Fæst á .is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.