Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 2.–5. september 20166 Fréttir Fáfnir Offshore tapaði tveimur milljörðum n Skipin færð niður um milljarða króna n Stærstu eigendurnir breyttu skuldabréfum í hlutafé Í slenska fyrirtækið Fáfnir Offshore var rekið með rúmlega tveggja milljarða króna tapi í fyrra. Stjórn þess ákvað þá að færa niður virði olíuþjónustuskipsins Polarsys­ sel, dýrasta skips Íslandssögunn­ ar, um jafnvirði 785 milljóna króna vegna erfiðra markaðsaðstæðna. Stærstu eigendur Fáfnis, þar á meðal tveir framtakssjóðir sem eru að stór­ um hluta fjármagnaðir af íslenskum lífeyrissjóðum, juku hlut sinn í fyr­ irtækinu í byrjun ágúst þegar þeir breyttu nokkurra mánaða göml­ um skuldabréfum frá Fáfni í hluta­ fé. Stjórn fyrirtækisins telur sig hafa tryggt áframhaldandi rekstur þess. Erfitt ár Árið 2015 var, eins og segir í nýjum ársreikningi Fáfnis Offshore, sem DV hefur undir höndum, fyrirtækinu erf­ iður. Lítið var um verkefni í olíugeir­ anum, sem stofnendur Fáfnis ætl­ uðu upphaflega að einbeita sér að, og offramboð á skipum sem þjónusta iðnaðinn. Samkvæmt reikningnum fór stjórn Fáfnis að vinna kerfisbund­ ið að úrlausn vandans á seinni hluta síðasta árs. Í mars 2016 var samið um að afhendingu Fafnis Viking, fimm milljarða króna skips sem Fáfnir átti upphaflega að fá afhent í þeim mánuði, yrði seinkað um eitt ár sök­ um verkefnaskorts. Fáfnir greiddi þá norska skipasmíðafyrirtækinu Hav­ yard 12,75 milljónir norskra króna, jafnvirði 191 milljónar króna miðað við þáverandi gengi, vegna skipsins og kostnaðar vegna seinkunarinn­ ar. Verksamningur um smíði þess, sem var í árslok 2014 metinn á rúma fimm milljarða króna, var þá færður inn í íslenskt dótturfélag Fáfnis, Polar Maritime ehf. Greiðslan til Havyard var alfarið fjármögnuð með skuldabréfaútgáfu sem nokkrir af stærstu hluthöfum fyrirtækisins tóku þátt í. Stjórnend­ ur þess komust í sama mánuði að samkomulagi við helstu lánardrottna Fáfnis, norska fjármálafyrirtæk­ ið EksportKreditt og Íslandsbanka, um lengingu á lánum þess. Einnig náðu þeir samningi við Sýslumann­ inn á Svalbarða um lengingu þjón­ ustusamnings, sem hefur um langt skeið verið eina verkefni Fáfnis, úr sex mánuðum á ári í níu. Í ársreikn­ ingnum segir að sýslumannsemb­ ættið hafi gert kröfu um að smíði nýja skipsins yrði færð í dótturfélag svo óvissan um hana og greiðslur til Havyard hefðu ekki áhrif á rekstur Polarsyssel. Vinnu við lánalengingu fyrirtæk­ isins lauk í júní síðastliðnum. Hluti samkomulagsins fól í sér að leggja þurfti nýtt hlutafé inn í Fáfni að jafn­ virði 142 milljónir króna. Hluta­ fjáraukningin var einnig fjármögn­ uð með skuldabréfaútgáfu, sem DV greindi frá í maí, sem nokkrir af stærstu hluthöfum fyrirtækisins tóku þátt í og lauk í júní. Stofnandinn þynnist út Framtakssjóðurinn Akur, sem er í eigu þrettán lifeyrissjóða, Íslands­ banka og VÍS, er stærsti eigandi Fáfn­ is með 35,3% hlut. Þar á eftir kemur framtakssjóðurinn Horn II, sem er í eigu lífeyrissjóða, fjármálafyrirtækja og fagfjárfesta, með 24,38%. Þessir tveir hluthafar, sem áttu í árslok 2015 annars vegar 30% og hins vegar 23% í Fáfni, tóku báðir þátt í skuldabréfa­ útgáfunni í mars og skiptu bréfunum svo fyrir hlutafé í fyrirtækinu í ágúst­ byrjun. Það gerði einnig félagið Sjáv­ arsýn ehf., fjárfestingarfélag Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og fyrrver­ andi forstjóra Glitnis. Félag hans átti 7,33% hlut í Fáfni í lok síðasta árs en á nú 11,5%. Eignarhlutur Fafnir Holding ehf. í fyrirtækinu, og annarra hluthafa sem ekki tóku þátt í skuldabréfa­ útgáfunum tveimur, skrapp aftur á móti saman. Félagið er í eigu Stein­ gríms Erlingssonar, stofnanda og fyrrverandi forstjóra Fáfnis, sem var sagt upp störfum í desember. Það átti 21,02% hlut í fyrirtækinu í árslok 2015 en á nú einungis 10,51%. Fari svo að þeir hluthafar sem keyptu skuldabréf af Fáfni í júní síðastliðn­ um ákveði að skipta þeim fyrir hluta­ fé mun eignarhlutur Steingríms lækka niður í 7,66%. Hlutur Akurs, sem fór inn í hluthafahóp fyrirtæk­ isins með því að leggja því til 1.260 milljónir króna í nóvember 2014, kemur þá til með að nema tæpum 37%. Skuldar Íslandsbanka Eignir Fáfnis, sem var stofnað 2012, eru nú metnar á 305,9 milljón­ ir norskra króna, jafnvirði 4,3 millj­ arða króna, en voru verðlagðar á 468 milljónir norskra króna í árslok 2014. Skuldir félagsins námu í lok síð­ asta árs alls 250 milljónum norskra króna. Veltan nam þá 37 milljónum norskra króna eða 555 milljónum ís­ lenskra króna. Polarsyssel, sem kostaði Fáfni rétt rúma fimm milljarða króna, hef­ ur verið veðsett fyrir skuldum Fáfnis hjá EksportKreditt og Íslandsbanka. Fáfnir skuldar norska bankanum 145,8 milljónir norskra króna, um tvo milljarða króna, og Íslandsbanka alls 97,9 milljónir norskra eða 1,4 milljarða króna. DV fjallaði í febrúar síðastliðn­ um um árangurslausa tilraun Stein­ gríms Erlingssonar til að kaupa fyr­ irtækið af núverandi eigendum þess. Í apríllok barst Fyrirtækjaskrá Rík­ isskattstjóra síðan tilkynning um að höfuðstöðvar Fáfnis væru ekki leng­ ur staðsettar á Bárugötu 4 í Reykjavík en húsnæðið er í eigu Steingríms. n Skip Fáfnis Polarsyssel, sem kostaði yfir fimm milljarða króna og var þá dýrasta skip Íslandssögunnar, er nú metið á rétt rúma fjóra milljarða í bókum Fáfnis. Stjórnarformaður Fáfnis Jóhannes Hauksson situr í stjórn Fáfnis fyrir hönd framtakssjóðsins Akurs. Sjóðurinn jók hlut sinn í fyrirtækinu í ágúst úr 30,2% í 35,3%. Keypti skuldabréf Fjárfestingarfélag Bjarna Ármannssonar á nú 11,5% hlut í Fáfni. Stofnandinn Steingrímur Erlingsson stofnaði Fáfni Offshore árið 2012. Hann gegndi starfi forstjóra þess þangað til í des- ember í fyrra. Steingrímur hefur ekki tekið þátt í skuldabréfaútgáfum Fáfnis. Mynd Havyard Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16 Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is Blóm og gjafavara við öll tækifæri Góð og persónuleg þjónusta Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.