Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Side 16
Helgarblað 2.–5. september 201616 Fréttir
V
ið teljum að Costco muni
hafa töluverð áhrif á Apple-
markaðinn hér heima því
þetta er svo stór risi og
stefna hans er að bjóða
hágæða vörumerki á góðu verði,“
segir Trausti Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri hugbúnaðar- og
greiningarfyrirtækisins Zenter, sem
vann í vor skýrslu um áhrif verslun-
arreksturs Costco á íslenskan mark-
að. Trausti segir smásölurisann leita
eftir hagstæðasta innkaupsverðinu
á raftækjum og öðrum vörum, hvort
sem það sé hér á landi eða annars
staðar.
„Það sem Costco gerir er að finna
hagstæðasta verðið á Evrópska efna-
hagssvæðinu. Samkvæmt lögum um
samhliða innflutning þurfa þeir aft-
ur á móti ekki að versla við aðila sem
eru með umboð fyrir ákveðna vöru
ef þeir finna lægra verð með öðrum
leiðum,“ segir Trausti.
Heimsóttu Costco
Líkt og komið hefur fram telur Zent-
er að innkoma Costco muni hafa
víðtæk áhrif á fjölda íslenskra fyr-
irtækja og markaðinn hér heima.
Starfsmenn fyrirtækisins heimsóttu
verslanir Costco í Bretlandi og var í
skýrslunni einblínt á möguleg áhrif
á matvörumarkað og eldsneytissölu
hér á landi. Ekki var gerð sérstök
greining á mögulegum áhrifum á ís-
lenska raftækjamarkaðinn sem veltir
tugum milljarða króna á ári.
„Við gerðum stutta lýsingu á
mörkuðunum sem Costo er inni á
og fórum ekki í raftækjamarkað-
inn en Costco er með gæðamerki
en fáar tegundir. Þeir selja til að
mynda Apple-vörur, Sony og fleira.
Við skoðuðum verðið úti og meðal
annars kom í ljós að hægt var að fá
lægra verð í Costco en á Ebay,“ seg-
ir Trausti.
„Um 25% af vöruúrvali Costco
fellur undir sérstakan afsláttarflokk
og þar má finna Apple-vörur eins og
Ipad og tölvur en einnig myndavélar
á sérstöku tilboði. Við höfum ekki sett
okkur í samband við raftækjaverslan-
ir en við munum heyra í þeim svo þau
átti sig betur á hugmyndinni að baki
Costco og mögulegum áhrifum.“
Íslenskt viðmót
Bjarni Ákason, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Epli, sem er umboðs-
aðili Apple á Íslandi, telur líklegt að
það verði hagstæðara fyrir Costco að
kaupa Apple-vörur af fyrirtæki hans.
„Ég fór sjálfur á sínum tíma til
Watford og skoðaði þessa verslun
sem er fyrirmynd þeirrar sem á að
setja upp hér á Íslandi. Þar var eitt-
hvað úrval af Apple-vörum en ég hef
svo sem ekki áhyggjur af því. Ég geri
ráð fyrir að við verðum birgir fyrir þá.
Við erum með íslensk lyklaborð sem
eru fyrir íslenska markaðinn og ég
held að það yrði ekki hagkvæmara
fyrir þá að leita annað. En eftir að hafa
skoðað þetta held ég að margir mættu
hafa áhyggjur. Til dæmis þeir sem eru
í þessum raftækjageira og stórar keðj-
ur eins og IKEA,“ segir Bjarni.
Framkvæmdastjórinn útskýrir að
sem umboðsaðili sé Epli annars vegar
með svokallaðan dreifingarsamning við
Apple. Fyrirtækið sjái einnig um mark-
aðssetningu á vörunum hér á landi.
„Svo erum við með þjónustu-
samning og gerum við tækin og til
dæmis þjónustum þá sem kaupa
Apple-vörur í útlöndum. Við erum
með tvær verslanir en mjög stórt
dreifingarkerfi þar sem fyrirtæki eru
að kaupa af okkur. Við erum oftast
með svipað verð og í Skandinavíu
því þar er virðisaukaskattskerfið líkt
því sem er hér. Álagningin í þess-
um geira er svipuð og Costco mun
koma til með að greiða sama virðis-
aukaskatt og aðrir,“ segir Bjarni.
Lausleg verðathugun DV sýnir
að fjórða kynslóð Apple TV, með 32
gígabæta vinnsluminni, kostar rúm-
ar 19 þúsund krónur hjá Costco í
Bretlandi. Sama vara er seld á 26.990
krónur í verslunum hér á landi.
Iphone 6s Plus, með 128 gígabæta
geymsluminni, kostar 118 þúsund
í Costco en rétt tæpar 175 þúsund
krónur hér á landi. Costco rukkar 285
þúsund krónur fyrir Macbook Pro-
ferðatölvu, með 15 tommu Retina-
skjá og 512 gígabæta geymsluminni,
en verðið er 470 þúsund krónur hér á
landi. Taka ber fram að verð Costco
miðast við gengi breska pundsins í
gær, fimmtudag. Pundið hefur fall-
ið um 20% síðan um áramót. Einnig
þarf að taka tillit til tolla hér á landi,
álagningu virðisaukaskatts og flutn-
ingsgjalda. n
Koma Costco lækkar
verð á Apple-vörum
n Fer inn á raftækjamarkaðinn sem veltir tugum milljarða n „Margir mættu hafa áhyggjur
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Unnu skýrsluna Trausti Haraldsson,
framkvæmdastjóri Zenter.
Umboðsaðilinn Bjarni Ákason, eigandi og
framkvæmdastjóri Epli.
Kauptún Gert er ráð fyrir
að fjórtán þúsund fermetra
verslun Costco hér á landi
verði opnuð í Garðabæ í
mars á næsta ári.
Sumargjöfin í ár!
Þráðlausu Touch heyrnartólin á Hópkaup.is.
Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki.
Einnig er hægt að svara í símann með þeim.
Fæst á .is