Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Síða 4
Helgarblað 2.–5. september 20164 Fréttir
Vinnum fyrir öll
tryggingafélög
Skútuvogi 12h, Reykjavík
S: 568-9620 - bilaretting.is
Útvegum
bifreið
meðan á
viðgerð
stendur
Tveir kepptu um
forstjórastól VÍS
Valið stóð á milli Jakobs Sigurðssonar og Sigurðar Hannessonar
Þ
egar tilkynnt var um afkomu
VÍS á fyrstu sex mánuðum
ársins á fimmtudaginn í síð-
ustu viku, sem var talsvert
undir væntingum bæði hvað
varðar vátryggingar- og fjárfestinga-
starfsemi, varð ljóst að dagar Sigrún-
ar Rögnu Ólafsdóttur í stóli forstjóra
tryggingafélagsins væru taldir. Sam-
staða náðist þá innan fimm manna
stjórnar VÍS, sem hafði um langt skeið
verið undir þrýstingi frá ýmsum hlut-
höfum sem vildu sjá breytingar til að
reyna að rétta við dræma afkomu fé-
lagsins, um að stíga það skref að ráða
nýjan forstjóra í hennar stað. Á fundi
með stjórninni síðastliðinn sunnu-
dag var Sigrúnu Rögnu tilkynnt um
uppsögnina og sama dag gengið frá
samkomulagi við Jakob Sigurðsson
um að taka við sem forstjóri VÍS.
Þrátt fyrir að nöfn margra stjórn-
enda úr viðskiptalífinu og á fjármála-
markaði hafi komið til umræðu, bæði
hjá einstökum stjórnarmönnum
og á meðal stærstu hluthafa félags-
ins, þá voru það í reynd aðeins tveir
sem komu til greina sem eftirmenn
Sigrúnar Rögnu þegar endanleg
ákvörðun var tekin um að segja henni
upp störfum. Auk Jakobs var það Sig-
urður Hannesson, framkvæmdastjóri
eignastýringar Kviku banka og einn
helsti ráðgjafi stjórnvalda vegna áætl-
unar um losun fjármagnshafta sem
var kynnt sumarið 2015, sem valið
stóð á milli og boðaði stjórnin þá báða
í viðtöl með skömmum fyrirvara um
liðna helgi, samkvæmt heimildum
DV. Í kjölfarið ákvað stjórnin sem fyrr
segir að ráða Jakob, forstjóra Promens
á árunum 2011 til 2015, í starf forstjóra
VÍS eins og greint var frá í tilkynningu
frá félaginu síðastliðinn mánudag.
Var í veikri stöðu
Sú ákvörðun að skipta um forstjóra
VÍS, en Sigríður Ragna var eini kven-
forstjóri fyrirtækis sem er skráð í
Kauphöll Íslands, kom fæstum aðil-
um á markaði á óvart enda hafði ver-
ið uppi þrálátur orðrómur um langa
hríð að staða hennar væri afar veik.
Afkoma VÍS af tryggingahluta rekstr-
arins þótti óviðunandi á síðasta ári
og þá hefur ávöxtun af fjárfestinga-
eignum félagsins verið talsvert lakari
í samanburði við tryggingafyrirtæk-
in Sjóvá og TM. Það sem af er ári hef-
ur sú staða ekki tekið breytingum og
þrátt fyrir að innlend bókfærð iðgjöld
VÍS hafi hækkað um 11,6% á milli ára
þá var tap af frjálsum og lögboðnum
ökutækjatryggingum á fyrri árshelm-
ingi. Erfitt árferði á hlutabréfamörk-
uðum gerði það jafnframt að verkum
að tekjur af fjárfestingastarfsemi –
fjárfestingaeignir félagsins nema tæp-
lega 34 milljörðum króna – drógust
saman um 70% og námu aðeins 636
milljónum króna á tímabilinu.
Með nýjum einkafjárfestum sem
komu inn í félagið sem stórir hluthaf-
ar á síðasta ári varð sú krafa enn há-
værari að ráðast þyrfti í breytingar á
rekstri VÍS – og jafnframt stokka upp
í stjórn félagsins – til að rétta við stöð-
una. Þannig keypti félagið Óskabein
ehf., sem samanstóð meðal annars af
Gesti B. Gestssyni, fjárfesti og eiganda
Sparnaðar, og Andra Gunnarssyni,
lögmanni og eins eigenda Kea-hót-
ela, ríflega 5,5% hlut í VÍS í lok október
2015 fyrir nærri 1.300 milljónir króna
sé miðað við þáverandi gengi bréfa
í tryggingafélaginu. Fyrir áttu félög
í eigu hjónanna Guðmundar Arn-
ar Þórðarsonar og Svanhildar Nönnu
Vigfúsdóttur liðlega 5% hlut í VÍS og
þá keyptu Sigurður Bollason fjárfestir
og DonMcarthy, breskur fjárfestir og
fyrrverandi stjórnarformaður House
of Fraser, stóran hlut í félaginu í mars
síðastliðnum í gegnum eignarhalds-
félagið Grandier. Í dag eru þeir
stærstu einkafjárfestar VÍS með ríf-
lega 8% eignarhlut.
Skuldsettir einkafjárfestar
Sumir þessara fjárfesta, meðal annars
félagið Óskabein, höfðu fjármagnað
kaup sín í VÍS að stærstum hluta með
bankaláni og því höfðu þeir mikla
hagsmuni af því að tryggingafélagið
myndi skila sem fyrst bættri afkomu
svo arðgreiðslur úr félaginu gætu dug-
að til að standa skil á fjármagnskostn-
aði hluthafa vegna kaupanna. Sú
ákvörðun stjórnar VÍS fyrr á árinu að
lækka boðaða arðgreiðslu til hlut-
hafa úr 5 milljörðum í ríflega 2 millj-
arða, eftir mikla gagnrýni sem kom
upp vegna fyrirhugaðra arðgreiðslna
tryggingafélaganna þriggja, mæltist
því afar illa fyrir hjá mörgum stærstu
einkafjárfestum félagsins.
Þótt einhverjir í hópi stærstu hlut-
hafa VÍS hafi viljað sjá breytingar á
forstjórastóli félagsins fljótlega eftir
að ný stjórn var kjörin í apríl á þessu
ári, þar sem inn komu þrír nýir stjórn-
armenn, þá var ljóst að ekki var sam-
heldni í stjórninni um að fara í þær
breytingar á þeim tíma. Þannig var
það ekkert launungarmál að sumir
stjórnarmenn, meðal annars Herdís
Fjeldsted, formaður stjórnar félags-
ins í umboði Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, voru hikandi við að grípa til
slíkra aðgerða í ljósi þess að Sigrún
Ragna væri eini kvenforstjóri félags
í Kauphöllinni. Þá vildi Norðmað-
urinn Jostein Sørvoll, varaformaður
stjórnar VÍS og einn þeirra fjárfesta
sem stóð að baki Óskabeini, jafnframt
lengst af að stjórnin myndi sýna Sig-
rúnu Rögnu þolinmæði og gefa henni
tíma til að snúa við rekstri félagsins,
samkvæmt heimildum DV. Sú afstaða
hans tók hins vegar nýlega breyting-
um og samstaða náðist um að binda
endi á fimm ára veru Sigrúnar Rögnu
í stóli forstjóra.
Hækkun eftir forstjóraskipti
Gengi bréfa í VÍS hafa hækkað nokk-
uð eftir að stjórn félagsins tilkynnti að
Sigrún Ragna myndi láta af störfum
og Jakob tæki við sem forstjóri. Þannig
hækkaði gengi bréfa í félaginu í gær
um 3,31% og hafa þá hækkað í verði
um tæplega 5% í vikunni. Það sem af
er ári hafa þau hins vegar lækkað um
7,17%, lítillega meira en úrvalsvísitala
Kauphallarinnar. Viðskipti með bréf í
VÍS í gær námu samtals 1.435 milljón-
um króna, eða sem nemur um 7,5%
af markaðsvirði félagsins, en á með-
al þeirra sem keyptu voru Jakob Sig-
urðsson og Reynir Finndal Grétars-
son, stjórnarmaður í VÍS. n
Tíðar breytingar á stjórn VÍS
Tíðar breytingar hafa verið á stjórn VÍS á síðustu misserum sem hefur oftar en ekki mátt
rekja til ósamstöðu á meðal þeirra sem hafa skipað stjórnina hverju sinni. Í aðdraganda
aðalfundar VÍS í mars 2015 tilkynnti þáverandi stjórnarformaður, Hallbjörn Karlsson, að
hann myndi ekki gefa kost á sér og í ágústmánuði sama ár sagði Steinar Þór Guðgeirsson
hæstaréttarlögmaður sig jafnframt óvænt úr stjórn. Óánægja með að tillögur um að
breyta fjármagnsskipan félagsins með útgáfu víkjandi skuldabréfs, líkt og TM hafði
áður gert, hafi ekki náð fram að ganga voru á meðal ástæðna fyrir brotthvarfi Steinars úr
stjórninni.
Í nóvember í fyrra var síðan boðað til hluthafafundar að ósk hjónanna Guðmundar
og Svanhildar og voru þeir Guðmundur og Jostein Sørvoll, fulltrúi félagsins Óskabein, þá
kjörnir sem nýir stjórnarmenn í VÍS. Guðmundur staldraði hins vegar stutt við og dró fram-
boð sitt til baka í aðdraganda þess að aðalfundur VÍS fór fram í apríl á þessu ári. Á þeim
fundi komu þau Helga Hlín Hákonardóttir, lögmaður og ráðgjafi, Benedikt Gíslason, verk-
fræðingur og fyrrverandi ráðgjafi fjármálaráðuneytisins, og Reynir Finndal Grétarsson,
forstjóri Creditinfo, ný inn í stjórnina. Fyrir voru þau Herdís Fjeld og Jostein í stjórn VÍS.
Nýr forstjóri VÍS Jakob Sigurðs-
son starfaði sem for stjóri Promens
á ár un um 2011–2015.
Fyrrverandi forstjóri VÍS Sigrún Ragna
Ólafsdóttir hafði verið forstjóri VÍS í fimm
ár og meðal annars leitt félagið í gegnum
skráningu í Kauphöllina árið 2013. MyNd VÍS.iS
Fram-
kvæmdastjóri
hjá Kviku Sigurður
Hannesson stýrir eigna-
stýringu bankans.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is