Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Blaðsíða 8
Helgarblað 2.–5. september 20168 Fréttir
Einu eggin á neytendamarkaði
með löggilda vottun
Lífrænu hænurnar
hjá Nesbúeggjum
• Fá lífrænt fóður
• Fá mikið pláss
• Njóta útiveru
nesbu.is
NESBÚ
EGG
20%afsláttur
Hönnun mánaðarins
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Sumar
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Sumar
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
Nýtt nafn en sömu kvartanir
Sverrir, sem áður hét Róbert, Guðmundsson auglýsir enn margvíslega þjónustu
É
g get staðfest að við höfum
fengið margar kvartanir í sum-
ar vegna starfshátta hans og
framkomu. Það hefur ekki
breyst með nýju nafni,“ seg-
ir Már Guðmundsson, formað-
ur Málarameistarafélagsins. Um er
að ræða starfshætti Sverris Guð-
mundssonar sem auglýsir þjónustu
sína undir merkjum Málningar-
þjónustu Róberts og ALS Húsaþjón-
ustu. Hann kallaði sig áður Róbert.
Að sögn Más fékk félagið
ábendingu um að Sverrir hefði
dreift auglýsingum um Seljahverf-
ið í vikunni þar sem hann auglýsti
málningarþjónustu sína. „Hann
hefur engin tilskilin réttindi til þess
að taka að sér slík verkefni. Við
kærðum hann, enn eina ferðina,
í vor. Það mál er bara fast í kerfinu
og virðist ekkert ganga. Á meðan
heldur hann óáreittur áfram og við
erum í stökustu vandræðum með
hvað við eigum til bragðs að taka,“
segir Már.
Var áður þekktur sem Róbert
Sverrir Guðmundsson var áður
þekktur sem Róbert Guðmundsson
en hann hefur hlotið átján dóma
fyrir margvísleg brot. Sé leitað eft-
ir kennitölu hans í þjóðskrá kem-
ur aðeins fram nafnið Sverrir Guð-
mundsson. Þann 21. maí 2015 var
hann dæmdur fyrir brot á iðnað-
arlögum með því að hafa á árun-
um 2011 til 2014 í atvinnuskyni rek-
ið starfsemi löggiltra iðngreina án
þess að hafa fengið til þess leyfi og
án þess að hafa meistara til forstöðu
þegar hann tók að sér margs kon-
ar verkefni og auglýsti starfsemina
með opinberum hætti. Var Sverri
gert að greiða 80 þúsund krónur í
sekt eða sæta fangelsi í 6 daga.
Í nóvember síðastliðnum komst
deila Sverris við gjaldkera húsfé-
lags í Lundarbrekku í hámæli. Sagði
gjaldkerinn, Adda Guðrún Sigur-
jónsdóttir, að Sverrir hefði vað-
ið áfram með hótunum og dóna-
skap. „Hann byrjar bara að öskra og
þetta var hans taktík í öllum samtöl-
um. Hann öskrar og skellir á,“ sagði
Adda.
Hefur ekki tekið að sér nein máln-
ingarverkefni
Sverrir vísar þessum ásökunum Mál-
arameistarafélagsins á bug. „Þetta
er ekki rétt. Ég hef ekki tekið að mér
nein málningarverkefni,“ segir Sverr-
ir í samtali við DV. Þegar blaðamaður
ber undir hann hvort að það sé lygi að
hann hafi auglýst slíka þjónustu í vik-
unni þá vill hann ekki taka svo djúpt
í árinni. „Ég get ekki sagt að það sé
lygi en ég átti þarna nokkra miða og
ákvað að henda þeim út til þess að
eiga fyrir salti í grautinn,“ segir Sverrir
og segir blaðamanni að hann taki að-
eins að sér viðhaldsverkefni eins og að
hreinsa rennur. „Ég var að auglýsa þá
starfsemi mína. Það voru fjórir menn
sem hringdu í gær og buðu mér máln-
ingarverkefni en ég neitaði þeim öll-
um. Ég má ekki taka að mér slík verk
og þó að annað hafi verið á þessum
miða þá get ég alveg neitað að taka að
mér verkefni. Ég var bara að nýta aug-
lýsingagildið,“ segir Sverrir.
Hann neitaði því staðfastlega að
hafa skipt um nafn. „Ég var skírð-
ur Sverrir Róbert Guðmundsson og
ég ræð alveg hvaða nafn ég nota. Ég
hef ekki breytt um nafn. Þetta er ekki
blaðamennska,“ segir Sverrir. n
ritstjorn@dv.is
Már Guðmundsson
Sverrir Guðmundsson
Mynd Facebook