Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Side 10
Helgarblað 2.–5. september 201610 Fréttir
Þetta er forstjóri Íslands
E
ftir að Sigrúnu Rögnu
Ólafsdóttur var vikið úr
stöðu forstjóra trygginga-
félagsins VÍS á mánudag
og Jakob Sigurðsson ráð-
inn í starfið situr engin kona í for-
stjórastóli félaganna sextán sem
skráð eru í Kauphöll Íslands. En
hvernig er þá hinn dæmigerði for-
stjóri á Íslandi í dag? Til að svara
því tók DV saman upplýsingar um
forstjórana sextán og með því að
bera saman tölfræði og meðaltöl
þeirra má sjá hvað einkennir For-
stjóra Íslands.
Eftir tíðindi vikunnar er ljóst
að Forstjóri Íslands er karlmaður.
Hann er að meðaltali rétt rúmlega
fimmtugur og menntaður í við-
skiptafræði. Hann hefur verið for-
stjóri í rúm sex ár og þénaði tæp-
ar fimm milljónir króna á mánuði
í fyrra samkvæmt ársreikningum.
Þá er líklegast að hann sé búsettur
ýmist í Garðabæ, miðborg Reykja-
víkur eða Grafarvogi. n
n Sextán karlar mynda forstjóraklúbbinn í Kauphöll
Íslands n Þetta einkennir hinn dæmigerða forstjóra
Þetta eru forstjórar Íslands
Síminn Forstjóri: Orri Hauks-
son Aldur: 45 ára Forstjóri síðan:
2013 Menntun: Vélaverkfræðing-
ur frá Háskóla Íslands og MBA
frá Harvard Business School.
Mánaðarlaun 2015: 3,35 millj-
ónir króna.
EIK fasteignafélag
Forstjóri: Garðar Hannes Friðjóns-
son Aldur: 45 ára Forstjóri
síðan: 2002 Menntun: BA-
gráða í heimspeki frá Háskóla
Íslands, MBA-gráða frá Uni-
versity of Salford, Englandi.
Mánaðarlaun 2015: 2,75
milljónir króna.
Reitir fast-
eignafélag
Forstjóri: Guðjón
Auðunsson Aldur: 53
ára Forstjóri síðan:
2010 Menntun: Rekstrar-
hagfræðingur Mánað-
arlaun 2015: 3,95 milljónir
króna.
HB Grandi
Forstjóri: Vilhjálm-
ur Vilhjálmsson
Aldur: 62 ára
Forstjóri síðan: 2012
Menntun: Útskrifaður
úr Verslunarskólanum,
farmannapróf frá Stýrimanna-
skólanum, útgerðartækni-
próf frá Tækniskólanum.
Mánaðarlaun 2015: 3,55
milljónir króna.
Sjóvá-
Almennar
Forstjóri: Hermann
Björnsson Aldur:
53 ára Forstjóri
síðan: 2011
Menntun:
Embætt-
ispróf í
lögfræði
frá Háskóla
Íslands. Mánað-
arlaun 2015: 3,38
milljónir króna.
N1 Forstjóri:
Eggert Þór
Kristófersson
Aldur: 45
ára Forstjóri
síðan: 2015
Menntun: Cand.
oecon á endur-
skoðunarsviði í
viðskiptafræði frá
Háskóla Íslands og
löggiltur verðbréfamiðlari. Mánaðar-
laun 2015: 3,65 milljónir króna.
Tryggingamiðstöðin
Forstjóri: Sigurður Við-
arsson Aldur: 40 ára
Forstjóri síðan: 2007
Menntun: BSc.-ráða
í viðskiptafræði frá
Háskóla Íslands.
Mánaðarlaun
2015: 3,64 milljónir
króna.
VÍS
Forstjóri:
Jakob
Sig-
urðsson
Aldur: 52
ára Forstjóri
síðan: Ágúst
2016 Menntun: B.S.
í efnafræði frá Háskóla Íslands. MBA
frá Kellogg-stjórnunarskólanum við
Northwestern-háskóla í Illinois í Bandaríkj-
unum. Mánaðarlaun forvera 2015: 3,28
milljónir króna.
Vodafone
Forstjóri: Stefán
Sigurðsson Aldur: 43
ára Forstjóri síðan:
2014 Menntun: BSc-
gráða í hagfræði frá Há-
skóla Íslands, MSc.-gráða
í hagfræði frá Kaupmanna-
hafnarháskólanum. Mánaðar-
laun 2015: 4,16 milljónir króna.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Forstjóri
Íslands
Kyn: Karlmaður
Meðalaldur: 50,9 ár
Menntun: Viðskiptafræði/
MBA/Cand. oecon.
Fjöldi ára í forstjórastóli: 6,3 ár
Mánaðarlaun að meðaltali:
4,9 milljónir króna.
Búsettur: Garðabæ, miðbæ
Reykjavíkur eða Grafarvogi.
Samsett
mynd úr
andlitum
nokkurra
forstjóra
Kauphallar-
félaga.
Klif ehf • Grandagarði 13, Reykjavík • Sími 552-3300 • www.klif.is
Notendavænn
góður filter á
hjólum fyrir raf-
suðureyk og ryk
• Auktu framleiðni og gæði
• Bættu strarfsumhverfið