Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Side 11
Helgarblað 2.–5. september 2016 Fréttir 11
Þetta er forstjóri Íslands Konur eru aðeins í meirihluta í fjórum stjórnum þeirra sextán félaga sem skráð eru í Kauphöll Íslands. 82 stjórnarmenn eru í þess-
um sextán félögum og og er hlut-
fall kvenna þar 44 prósent. Það er
því ekki aðeins kynjahalli í forstjóra-
stöðum félaga Kauphallar Íslands,
heldur leiddi úttekt DV í ljós að það
hallar einnig á konur í stjórnum
þessara félaga.
Lágmarkið 40%
Í lögum um hlutafélög er tekið fram
að í stjórnum félaga skuli tryggja að
hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en
40 prósent. Stjórnir 15 af 16 félög-
um Kauphallarinnar eru skipað-
ar 5 einstaklingum. Þar er langal-
gengast að hlutföll karla og kvenna
séu 3 karlar á móti 2 konum, eða
60% gegn 40% lágmarkinu. Stjórn
Marel er skipuð sjö einstaklingum,
þar sem eru fjórir karlar en fjórar
konur. Aðeins í stjórnum EIK fast-
eignafélags, Tryggingamiðstöðv-
arinnar, Haga og Marel eru konur í
meirihluta.
Konur eru sömuleiðis í minni-
hluta þegar kemur að því að gegna
stjórnarformennsku í þessum sext-
án félögum. Karlar gegna stjórnar-
formennsku í 10 félögum en konur 6.
0% kynjafjölbreytileiki
Umræða um kynjafjölbreytileika
innan Kauphallarinnar varð sem
fyrr segir til vegna þeirrar ákvörðun-
ar stjórnar VÍS að víkja eina kven-
forstjóranum úr starfi á dögunum.
Stjórn Félags kvenna í atvinnu-
rekstri (FKA) sendi frá sér yfirlýs-
ingu í kjölfar þeirra tíðinda þar
sem „0% kynjafjölbreytileiki“ með-
al forstjóra kauphallarfyrirtækja var
harmaður og að atburðurinn væri
verulegt umhugsunarefni fyrir at-
vinnulífið.
„FKA vill beina þeim tilmæl-
um til eigenda hlutabréfa á hluta-
bréfamarkaði svo sem lífeyrissjóða
og annarra á markaði að varðveita
markmið atvinnulífsins og byggja
upp fjölbreyttan stjórnendahóp.“
Karlar ráði konur
Í samtali við Fréttablaðið á þriðju-
dag sagði Páll Harðarson, for-
stjóri Kauphallar Íslands, að það sé
stjórna fyrirtækja að marka stefnu
og jafna kynjahlutföll meðal æðstu
stjórnenda fyrirtækja á Íslandi.
Boltinn væri hjá stjórnum fyrirtækj-
anna.
En í ljósi þess að karlar eru
sömuleiðis í meirihluta í stjórnum
þessara félaga og gegna oftar stjórn-
arformennsku í sömu stjórnum má
velta því fyrir sér hvort sá bolti sé í
leik í oft karllægum heimi viðskipta-
lífsins á Íslandi. n
mikael@dv.is
Síminn
Stjórn: Sigríður Hrólfsdóttir, formaður,
Heiðrún Jónsdóttir, varaformaður, Stefán
Árni Auðólfsson, Bertrand B. Kan, Birgir
Bjarnason
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
EIK fasteignafélag
Stjórn: Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður,
Frosti Bergsson, varaformaður, Anna
Harðardóttir, Guðrún Bergsteinsdóttir, Agla
Elísabet Hendriksdóttir
3 konur – 60% 2 karlar – 40%
Reitir fasteignafélag
Stjórn: Þórarinn Viðar Þórarinsson,
formaður, Elín Árnadóttir, varaformaður,
Gunnar Þór Gíslason, Martha Eiríksdóttir,
Thomas Möller
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
HB Grandi
Stjórn: Kristján Loftsson, stjórnarformað-
ur, Halldór Teitsson, Hanna Ásgeirsdóttir,
Rannveig Rist, Þórður Sverrisson
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Sjóvá- Almennar
Stjórn: Erna Gísladóttir, stjórnarformaður,
Tómas Kristjánsson, varaformaður, Heimir
V. Haraldsson, Hjördís E. Harðardóttir, Ingi
Jóhann Guðmundsson
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
N1
Stjórn: Margrét Guðmundsdóttir, formaður,
Helgi Magnússon, varaformaður, Kristín
Guðmundsdóttir, Jón Sigurðsson, Þórarinn
V. Þórarinsson
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Tryggingamiðstöðin
Stjórn: Örvar Kærnested, formaður, Andri
Þór Guðmundsson, Kristín Friðgeirsdóttir,
Linda Björk Bentsdóttir, Ragnheiður Elfa
Þorsteinsdóttir
3 konur – 60% 2 karlar – 40%
VÍS
Stjórn: Herdís Dröfn Fjeldsted, formaður,
Jostein Sorvall, varaformaður, Benedikt
Gíslason, Helga Hlín Hákonardóttir, Reynir
Finndal Grétarsson
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Vodafone
Stjórn: Heiðar Guðjónsson, formaður,
Anna Guðný Aradóttir, Hildur Dungal,
Hjörleifur Pálsson, Vilmundur Jósefsson
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Eimskip
Stjórn: Richard Winston Mark d Ábo,
formaður, Víglundur Þorsteinsson, varafor-
maður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Hrund
Rudolfsdóttir, Lárus L. Blöndal
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Reginn fasteignafélag
Stjórn: Benedikt Kristjánsson, formaður,
Tómas Kristjánsson, varaformaður, Albert
Þór Jónsso, Bryndís Hrafnkelsdóttir, Sigríður
Hrefna Hrafnkelsdóttir
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Hagar
Stjórn: Kristín Friðgeirsdóttir, formaður, Sig-
urður Arnar Sigurðsson, varaformaður, Stefán
Árni Auðólfsson, Erna Gísladóttir, Salvör Nordal
3 konur – 60% 2 karlar – 40%
Nýherji
Stjórn: Benedikt Jóhannesson, formaður,
Ívar Kristjánsson, Loftur Bjarni Gíslason,
Emilía Þórðardóttir, Hildur Dungal
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Icelandair Group
Stjórn: Sigurður Helgason, formaður, Úlfar
Steindórsson, varaformaður, Ásthildur
Margrét Otharsdóttir, Magnús Magnússon,
Katrín Olga Jóhannesdóttir
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Marel
Stjórn: Ásthildur Margrét Otharsdóttir,
formaður, Arnar Þór Másson, varaformaður,
Ann Elizabeth Savage, Ástvaldur Jóhannes-
son, Helgi Magnússon, Margrét Jónsdóttir,
Ólafur S. Guðmundsson
3 konur – 43% 4 karlar – 57%
Össur
Stjórn: Niels Jacobsen, formaður, Kristján
Tómas Ragnarsson, varaformaður, Arne
Boye Nielsen, Svafa Grönfeldt, Guðbjörg
Edda Eggertsdóttir
2 konur – 40% 3 karlar – 60%
Eimskip
Forstjóri:
Gylfi
Sigfússon
Aldur: 55
ára Forstjóri
síðan: 2008
Menntun:
Útskrifaðist frá
Viðskiptadeild Háskóla
Íslands. Mánaðarlaun 2015: 6,3
milljónir króna.
Reginn fasteigna-
félag
Forstjóri: Helgi
S. Gunnarsson
Aldur: 55 ára
Forstjóri
síðan: 2009
Menntun:
M.Sc. í
verkfræði
frá Danmarks
Tekniske Universitet.
Byggingatæknifræðingur frá Háskól-
anum í Reykjavík. Húsasmiður og húsa-
smíðameistari. Mánaðarlaun 2015:
2,61 milljón króna.
Hagar
Forstjóri:
Finnur
Árnason
Aldur: 54
ára Forstjóri
síðan: 2005
Menntun: MBA
frá University of
Hartford og Cand. oecon frá Háskóla
Íslands. Mánaðarlaun 2015: 6,24
milljónir króna.
Nýherji
Forstjóri:
Finnur Odds-
son Aldur: 45
ára Forstjóri
síðan: 2013
Menntun: BA
í sálfræði frá
Háskóla Íslands,
M.A. og Ph.D. gráðu í sálfræði frá West
Virginia University í Bandaríkjunum,
AMP í viðskiptafræði frá IESE á Spáni.
Mánaðarlaun 2015: 3,1 milljón króna.
Icelandair
Group
Forstjóri:
Björgólfur
Jóhannsson
Aldur: 61 árs
Forstjóri
síðan: 2008
Menntun: Við-
skiptafræðingur
frá Háskóla Íslands.
Mánaðarlaun 2015:
4,46 milljónir
króna.
Marel
Forstjóri:
Árni Oddur
Þórðarson
Aldur: 47 ára
Forstjóri síðan:
2013 Menntun: Cand.
oecon frá Háskóla Íslands, MBA-próf frá
IMD í Sviss. Mánaðarlaun 2015: 6,76
milljónir króna.
Össur
Forstjóri: Jón
Sigurðsson
Aldur: 60 ára
Forstjóri síðan:
1996 Menntun:
BA í iðnaðarverk-
fræði frá Tækniháskól-
anum í Óðinsvéum, MBA
frá United States International
University í San Diego. Mánaðarlaun
2015: 17,46 milljónir króna.
Konur í meirihluta í fjórum stjórnum
n Fleiri karlar en konur í stjórnum n Þeir eru oftar stjórnarformenn
Upplýsingar um mánaðarlaun sam-
anstanda af uppgefnum launum og
hlunnindum forstjóra samkvæmt árs-
reikningi viðkomandi félaga fyrir árið
2015. Þar sem uppgefnar tölur eru í
erlendum gjaldmiðlum er umreiknað í
krónur miðað við meðalgengi erlenda
gjaldmiðilsins árið 2015.
Stjórnir í
Kauphöll
Íslands
Svona standa konur
gagnvart körlum
16 félög
82 stjórnarmenn
36 konur
46 karlar
Kynjahlutföll alls:
Konur: 43,9%
Karlar: 66,1%
Stjórnarformenn:
Konur: 6
Karlar: 10
Konur í meirihluta í stjórnum:
4 félög af 16 – EIK fasteignafélag,
Tryggingamiðstöðin, Hagar og Marel.
Pingpong.is - Síðumúli 35 (að neðanverðu) , Reykjavík - S: 568 3920 & 897 1715
Borðtennis
er fyrir alla!
BorðtennisBorð