Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Qupperneq 12
Helgarblað 2.–5. september 201612 Fréttir
„Skyndibrúðkaup
eini möguleikinn“
n Björn og Sangita gengu í hjónabandi
fyrir tæpu ári n Hafa barist fyrir því í
eitt ár að fá dóttur Sangitu til landsins
H
jónin Björn Vigfússon og
Sangita Baniya hafa búið
sér notalegt heimili í Garða-
bæ. Þar búa þau í fallegu
rauðu timburhúsi ásamt
þremur hundum, tveimur köttum,
sautján hænum og einum rígmontn-
um hana. Í októberlok eiga þau von á
litlum dreng, sem verður fyrsta barn
þeirra saman en bæði eiga þau dæt-
ur frá fyrra sambandi. Dóttir Björns
er 25 ára gömul og stundar sálfræði-
nám af kappi í Háskóla Íslands en
dóttir Sangitu, hin sex ára gamla
Sharamsha, býr hjá móður Sangitu
og stórfjölskyldu hennar í Katmandú
í Nepal.
„Ég hef ekki séð dóttur mína í
tæpt ár núna og ég óska þess á hverj-
um degi að fá hana til Íslands. Hún
er ljósið í lífi mínu. Við tölum saman
í gegnum samskiptamiðla og nýtum
okkur myndasímtöl í gegnum netið.
Netsamband í landinu mínu er hins
vegar mjög óáreiðanlegt þannig að
það gengur ekki alltaf,“ segir Sangita.
Hjónin hafa lagt á sig mikla vinnu til
þess að reyna að fá Sharamsha til
landsins en hafa rekist á margs kon-
ar veggi í kerfinu. „Þetta kerfi er svo
þungt í vöfum og seinfara að það er
hreinlega ómanneskjulegt. Ég hef
aðeins kynnst góðu fólki í þessu ferli
sem er bara að vinna vinnuna sína
í umhverfi þar sem er fjárskortur og
mannekla,“ segir Björn.
Óttast um öryggi dótturinnar
Heimili fjölskyldu Sangitu í Nepal
varð illa úti í jarðskjálftanum stóra
í apríl 2015. Húsið er að hruni
komið en eins og svo margir íbú-
ar Katmandú þá hefur fjölskyldan
hvorki fjárhagslega burði til að flytja
eða endurbyggja húsið. Fjölskyld-
an og dóttir Sangitu búa því í hús-
inu sem hrynur að öllum líkindum
í næsta skjálfta. „Ég óttast um öryggi
Sharamsha og vil fá hana sem fyrst til
mín til Íslands,“ segir Sangita. Fað-
ir stúlkunnar býr í Malasíu og hefur
engin afskipti af dóttur sinni.
Sangita þurfti að sanna forsjá
sína yfir stúlkunni og núna vantar
fæðingarvottorð litlu stúlkunnar til
þess að pappírar eins og vegabréf og
áritun til landsins geti farið í gegn.
Slíkt vottorð er ekki gefið út í Nepal
og venjulega þurfa báðir foreldrar að
mæta til hins opinbera til þess að fá
slíkt vottorð útbúið. „Eftir ársbaráttu
liggur loks fyrir að slíkt vottorð þarf
Sangita að nálgast í eigin persónu í
Nepal. Hún getur ekki ferðast kasólétt
alla leið til Nepals og því er þetta ver-
kefni sem við förum í þegar fæðingin
er afstaðin og fjölskyldan hefur jafnað
sig. Sangita má aðeins vera utan Ís-
lands í innan við þrjá mánuði, annars
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Ég óttast
um öryggi
Sharamsha og vil
fá hana sem fyrst
til mín til Íslands
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...