Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Page 13
Helgarblað 2.–5. september 2016 Fréttir 13
fellur dvalarleyfi hennar úr gildi og
við höfum talsverðar áhyggjur af því
að ferlið úti í Nepal muni taka lengri
tíma en það,“ segir Björn. Ef svo færi
þyrfti Sangita að fljúga í hvelli til Ís-
lands og síðan aftur út til Nepal.
Hjúskaparmiðlun föðurins
Björn og Sangita kynntust fyrir til-
viljun í gegnum Facebook. „Það vill
svo til að faðir minn hafði komið mér
í samband við konu frá Nepal sem
vildi eignast íslenskan mann,“ seg-
ir Björn og hlær. Hann vingaðist við
konuna en eftir að hafa spjallað við
hana í einhvern tíma þá leist honum
ekkert á hana og eyddi henni af vina-
listanum. „Allt í einu hefur Sangita
síðan samband við mig og við för-
um að spjalla saman. Eitthvað small
strax og fljótlega fórum við að ræða
það að hún kæmi í heimsókn til Ís-
lands,“ segir Björn.
Það sem í hönd fór var ótrú-
lega flókið ferli við að uppfylla skil-
yrði íslenskra og danskra yfirvalda
til þess að Sangita gæti heimsótt
Björn. „Kerfið virðist vera algjörlega
andsnúið því að Íslendingar eign-
ist maka utan Schengen-svæðisins
og að reyna slíkt útheimtir gríðarlegt
erfiði,“ segir Björn.
Sendiráðið fer
eftir dönskum reglum
Danska sendiráðið í Katmandú sér
um málefni Íslands í Nepal og Björn
ber þeim illa söguna. „Það var ótrú-
legt hvað þeir gengu langt í að óska
eftir upplýsingum um mig og þeir
gengu mun lengra en þarf samkvæmt
íslenskum lögum. Ég leitaði svara
vegna þess hérlendis en niðurstað-
an var einfaldlega sú að ég þyrfti að
beygja mig undir þetta,“ segir Björn.
Alls tók ferlið fimm mánuði þar til
þau ákváðu heimsókn Sangitu og þar
til hún var á leið upp í flugvél. Auk
allra almennra pappíra þurfti Björn
að leggja fram yfirlýsingu frá bankan-
um sínum um fjárhagslega stöðu sína,
staðfestingu frá vinnuveitanda um að
hann væri í fullu starfi og sjúkratryggja
gestinn. Þá þurfti hann að leggja út
1.000 dollara á reikning Sangitu til
þess að hún gæti sýnt fram á að hún
gæti framfleytt sér hérlendis. Miðað
við að algeng mánaðarlaun í Nepal
eru um 10 þúsund
krónur þá hefði Sangita
aldrei getað safnað sér
upp í þá upphæð.
Var alveg að
gefast upp
„Það sem ég þurfti að
leggja fram var há-
tíð miðað við það sem
Sangita þurfti að upp-
lýsa um en í hennar til-
viki var sífellt beðið um
viðbótarskjöl og upplýs-
ingar. Satt best að segja
var ég alveg að gefast
upp á þessu en ég verð
að hrósa vinnuveitend-
um mínum hjá Malbik-
unarstöðinni Höfða fyrir
að leyfa mér að skjótast
reglulega frá vinnu til
þess að uppfylla kröf-
ur sendiráðsins. Einnig
hvatti vinnufélagi minn,
Jón Þór Ólafsson, fyrr-
verandi alþingismað-
ur Pírata, mig áfram og
leyfði mér ekki að gefast
upp,“ segir Björn.
Lokahnykkurinn
var sá að Björn þurfti
að hringja út í danska
sendiráðið í Katmandú
og ræða við starfsmann þess. „Það
var líklega til þess að athuga hvort
að ég væri hreinlega til og með öll-
um mjalla. Síðan þurfti ég að kaupa
flugmiða fram og til baka fyrir hana
og þá var þetta loks frágengið,“ seg-
ir Björn. Skömmu síðar kom vega-
bréfsáritun Sangitu og hún gat heim-
sótt landið. Útprentaður flugmiðinn
vegna heimferðarinnar endaði sam-
ankrumpaður í ruslinu.
Skyndibrúðkaup eini möguleikinn
Að sögn beggja var strax við fyrstu
kynni ljóst að þau vildu eyða meiri
tíma saman og leyfa sambandinu að
þróast. Sökum kerfisins voru þó góð
ráð dýr. „Sangita fékk þriggja mánaða
ferðamannaleyfi. Það er hægt að fá
þriggja mánaða framlengingu en ég
treysti því ferli ekki eftir allt vesen-
ið sem fylgdi vegabréfsárituninni.
Hvorki ég né Sangita vildum að hún
færi úr landi því þá gæti liðið allt að
hálft ár þar til hún gæti snúið aftur til
landsins. Eini möguleikinn var því að
við myndum gifta okkur,“ segir Björn.
Hann og Sangita fóru til sýslu-
manns og létu pússa sig saman. Svo
héldu þau tvær veislur fyrir nán-
ustu fjölskyldu og vini. „Ef Íslending-
ur á í sambandi við einstakling utan
Schengen-svæðisins og þau vilja vera
saman hér á landi þá er því fólki nauð-
ugur einn kosturinn að giftast þegar í
stað. Svo er talað illa innan kerfisins
um skyndibrúðkaup en það er bara
eini möguleikinn ef fólk vill verja
meiri tíma saman,“ segir Björn. n
„Kerfið virð-
ist vera al-
gjörlega andsnúið
því að Íslendingar
eignist maka utan
Schengen-svæð-
isins og að reyna
slíkt útheimtir
gríðarlegt erfiði
Hjónin og hænurnar
Sangita og Björn fyrir
framan heimili sitt í Garða-
bænum. Mynd Sigtryggur Ari
Heimilið í Katmandú Í þessu húsi býr stórfjölskylda Sangitu, þar á meðal Sharamsha,
dóttir hennar. Húsið varð illa úti í jarðskjálfta í apríl 2015 og ljóst er að það mun ekki standa
af sér annan jarðskjálfta. Björn og Sangita óttast um öryggi fjölskyldunnar.
Mæðgurnar Sangita og dóttir hennar, Sharamsha, rétt áður en móðirin hélt til Íslands. Ár er liðið síðan þær hittust í eigin persónu og Sangita er orðin viðþolslaus af söknuði.
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
Erum á
Facebook
Gleði - Friður - Hamingja
Nýjaland
nyjaland@gmail.com • www.nyjaland.is
Meðferðir
Heilun, blómadroparáðgjöf,
höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun
Sími
517
4290