Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Qupperneq 14
Helgarblað 2.–5. september 201614 Fréttir
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
BT rafma
gnstjakk
ar
- auðveld
a verkin
!
• 1300 kg. lyftigeta
• 24V viðhaldsfrír rafgeymir
• Innbyggt hleðslutæki (beint í 220V)
• Aðeins 250 kg. að þyngd
Átti hvalkjötsbirgðir
fyrir 3,6 milljarða
n Hagnaður Hvals hf. nam 2,3 milljörðum króna n Hætti veiðum en á nóg af kjöti
B
irgðir Hvals hf. af frystum
hvalaafurðum voru metnar
á 3,6 milljarða króna þegar
síðasta fjárhagsári þess lauk
í september í fyrra. Óseld
ar birgðir fyrirtækisins voru tveim
ur árum áður metnar á 1,8 milljarða
króna en erfiðlega hefur gengið að
koma kjötinu á markað í Japan. Sala
á afurðunum skilaði fyrirtækinu 1,3
milljörðum króna en útgerðin, þar á
meðal rekstur hvalveiðiskipa Hvals
og vinnslustöðvar í Hvalfirði, kostaði
1,9 milljarða.
Lakari afkoma
Samkvæmt nýbirtum ársreikningi
Hvals fyrir tímabilið 1. október 2014
til 30. september 2015, sem fyrirtæk
ið skilaði inn til fyrirtækjaskrár Rík
isskattstjóra síðasta þriðjudag, nam
hagnaður þess 2,3 milljörðum króna.
Afkoman var 752 milljónum lakari en
árið á undan en hagnaðurinn skýrist
nánast alfarið af tekjum af eignarhlut
Hvals í Vogun hf. Það á 33,7% hlut í
sjávarútvegsfyrirtækinu HB Granda
og 38,6% hlut í Hampiðjunni.
Bréfin í Vogun eru metin á 21,5
milljarða króna í ársreikningi Hvals.
Eignir fyrirtækisins eru metnar á
alls 26 milljarða króna en skuldirn
ar námu 9,9 milljörðum. Fyrirtæk
ið greiddi hluthöfum sínum alls 800
milljónir króna í arð fyrr á þessu ári
og sömu upphæð í fyrra. Síðustu þrjú
ár hefur Hvalur því greitt hluthöfum
sínum alls 2,6 milljarða í arð. Fisk
veiðihlutafélagið Venus ehf., sem er
í eigu Kristjáns Loftssonar, forstjóra
Hvals, Birnu Loftsdóttur og Sigríðar
Vilhjálmsdóttur, er stærsti hluthafi
fyrirtækisins með 39,5%. Að félaginu
koma 111 hluthafar.
Hindranir í Japan
Miðað við meðalsölu fyrirtækisins
á hvalaafurðum síðustu ár mun það
taka nokkurn tíma að klára birgðirn
ar. Kristján Loftsson tilkynnti í við
tali við Morgunblaðið í mars síðast
liðnum að erfiðlega hefði gengið að
koma kjötinu á markað í Japan vegna
skrifræðis. Sagði Kristján fyrirtækið
hafa mætt fjölmörgum hindrunum
þar í landi og þær hafi meðal annars
snúið að síendurteknum efnagrein
ingum á kjötinu.
„Japan er okkar aðalmarkaður og
þess vegna er þessu sjálfhætt,“ sagði
Kristján og bætti við að fyrirtækið
hefði aldrei hafið hvalveiðar að nýju
árið 2006 ef forsvarsmenn þess hefðu
vitað hvað var í vændum í Japan. Ekki
náðist í Kristján við vinnslu fréttar
innar.
DV hefur því ekki upplýsingar um
hversu miklu kjöti fyrirtækinu hef
ur tekist að selja síðan í september
lok 2015. Veiðar á langreyðum hófust
aftur árið 2006 þegar banni við þeim
var aflétt. Skip Hvals fóru þó ekki til
veiða árin 2011 og 2012. Frá 2013 til
septemberloka 2015 veiddi Hvalur
alls 426 dýr. n
Aflinn Árið
2015 veiddu
skip Hvals hf.
alls 155 lang-
reyðar. Mynd
Sigtryggur Ari
Haraldur guðmundsson
haraldur@dv.is
Forstjórinn Kristján Loftsson
sagðist í febrúar vera búinn að
gefast upp á endalausu
skrifræði í Japan.
Skip Hvals hf.
fóru ekki
til veiða í
sumar.
„Ég var dæmdur
fyrir dugnað“
Frambjóðandinn Árni Johnsen gerir upp dóminn
M
istökin voru ekki bara mín.
Þau voru líka hjá stofnunni
sem átti að sjá um að þetta
væri í lagi, allt þetta eftirlit,“
segir Árni Johnsen, fyrrverandi
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Árni, þá nefndarmaður í
byggingarnefnd Þjóðleikhússins,
var árið 2003 dæmdur fyrir að hafa
árið 2001 notað reikninga á vegum
ríkisins til þess að greiða fyrir varning
sem hann notaði í persónulegum
tilgangi. Í viðtali við sjónvarpsþáttinn
Mannamál þvertekur Árni fyrir að
hann hafi tekið hluti ófrjálsri hendi.
Sjálfur gaf Árni þau svör að um
mistök hafi verið að ræða. Hann
hlaut tveggja ára dóm fyr ir fjár drátt
og umboðssvik í op in beru starfi,
mútuþægni og rang ar skýrsl ur til yf ir
valda en hafði þá áður verið dæmdur
í 15 mánaða fang elsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur. „Ég var dæmdur fyrir
dugnað,“ segir Árni í umræddu
viðtali við Mannamál, aðspurður
um hvaða mistök hann hefði gert
sem leiddu til þess að hann endaði í
steininum. „Ég stóð að uppbyggingu
Þjóðleikhússins og þar gerði ég þau
mistök að ég fékk greiðslur sem
voru ekki með réttri aðferð,“ segir
hann jafnframt og þvertekur fyrir
að hafa verið dæmdur fyrir að taka
hluti ófrjálsri hendi. Segir málið
hafa varðað „1.800 þúsund krónur á
röngum tíma“. n