Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Page 18
Helgarblað 2.–5. september 201618 Fréttir Erlent
Missti heyrnina eftir
sterkustu núðlur heims
n 4.000 sinnum sterkari en Tabasco-sósa n „Ég er ekkert mjög hrifinn af sterkum mat“
B
reskur kokkur, Ben Sum-
adiwiria, missti tímabund-
ið heyrn eftir að hafa borð-
að sterkustu núðlur í heimi.
Núðlurnar eru fjögur þús-
und sinnum sterkari en Tabasco-
sósa, sem Íslendingar þekkja margir
hverjir. Hann missti heyrnina í um
tvær mínútur eftir að hafa snætt
réttinn.
Maðurinn, sem við skulum kalla
Ben frekar en Sumadiwiria, er 22 ára
og býr í London. Hann er vanur að
borða sterkan mat – mjög sterkan
meira að segja – og stóðst ekki mátið
þegar hann var á ferð um Indón-
esíu. Á veitingastað í Jakarta rakst
hann á rétt sem átti að slá öll met.
Rétturinn heitir „Death noodles“
eða dauðanúðlur. Rétturinn inni-
heldur 100 kramda chili-ávexti eða
það sem kallað er bird‘s eye chilies.
Rétturinn skorar 20 milljón stig
á Schoville-skalanum, sem er mæli-
kvarði á styrkleika. Til samanburðar
má nefna að Tabasco-sósan bragð-
mikla skorar fimm þúsund stig.
Ógleði og vanlíðan
Þegar Ben hóf átið byrjaði hann
að svitna, eins og þeir sem krydda
vel þekkja. Svo fór hann að svima.
„Þetta var klárlega það sterkasta
sem ég hef nokkru sinni látið inn
fyrir mínar varir,“ segir kokkurinn
við breska blaðið Mirror. „Eftir
nokkrar sekúndur var ég farinn að
svitna og mér varð óglatt.“
Hann ber að allir sem próf-
að hafa réttinn hafi kastað upp á
veitingastaðnum eða fyrir utan
hann. „Þetta heita dauðanúðlur
en mér er sagt að sumir innfæddir
geti klárað heilan disk – sem er bara
sturlað.“ Hann segist hafa komist að
því að um sé að ræða sterkasta rétt
á matseðli sem völ er á. „Ég er ekk-
ert mjög hrifinn af sterkum mat en
þegar einhver skorar á mig get ég
ekki skorast undan.“
Ben, sem á indónesíska foreldra,
segir að munnur og varir hans hafi
logað klukkustundum saman eft-
ir að hann borðaði matinn. Honum
varð mjög óglatt, sjóðheitt og mátti
kæla höfuðið undir krana dágóða
stund. Hann drakk sex vatnsglös,
mjólkurhristing og kældan banana
en leið enn illa af bruna í munnin-
um. Hann missti heyrn í um tvær
mínútur áður en hann skilaði öllu
saman úti á götu. „Maður finn-
ur eiginlega ekkert bragð – þetta
er bara hiti og svolítill keimur af
núðlum.“
Hann segist hafa dofnað í kjaft-
inum og ekki fundið fyrir tungu og
vörum. „Ég hef borðað wasabi og
ýmiss konar sterkan mat en þetta
slær öllu við.“
Keppir í áti
Í grein Mirror kemur fram að The
Carolina Reaper sé sterkasta chili
í heimi en þegar búið er að kremja
saman marga chili-ávexti af annarri
tegund, náist fram meiri styrkleiki.
Hægt er að fylgjast með ævin-
týrum Ben á Youtube, en þar legg-
ur hann sér ýmislegt til munns, svo
sem blóð úr cobra-slöngu auk þess
sem hann tekur þátt í kappáti. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Eftir nokkr-
ar sekúnd-
ur var ég farinn
að svitna og mér
varð óglatt.
Sviti og tár
Það tók á að
borða matinn.
Mynd youtuBe
Rétturinn
Núðlunum
fylgdi spælt
egg. Mynd youtuBe
Fanntófell ehf. | Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
· Viðhaldsfrítt, mikil ending og endalausir
möguleikar í hönnun.
· Upplitast ekki, dregur ekki í sig lit, raka,
óhreinindi eða bakteríur.
· Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði
og almenningssvæði.
AKRÍLSTEINN,
HARÐPLAST
OG FENIX
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Matseðill okkar á ljósanótt frá kl. 18:00-22:00 - fimmtudag til sunnudags
Hádegishlaðborð frá kl. 11:30 til kl.14:00 - Kaffihlaðborð 15:00 til 17:00
Veitingar í tjaldi föstudag og laugardag
Hljómsveitin Feðgarnir halda uppi fjörinu í tjaldi
frá kl. 23:00 fram á nótt, bæði kvöldin
Hljómsveitin Króm spilar inni á DUUS
frá kl. 23:30 og fram á nótt, bæði kvöldin
Fiskur er okkar fag - Staður með alvöru útsýni
Ljósanæturstemning á Kaffi Duus
Einn vinsælasti matsölustaðurinn á Suðurnesjum
Restaurant
Duusgata 10 • 230 Keflavík • Telephone 421 7080 • duus@duus.is