Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Síða 22
Helgarblað 2.–5. september 201622 Fólk Viðtal
„Ég er ekki skrímsli“
n Sigga hakkara bannað að fara í sund n Dæmdur fyrir gróf kynferðisbrot en segist ekki vera siðblindur
E
rtu skrímsli?“ „Ég er ekki
skrímsli en mikið af þvís
em ég hef gert bendir til
þess,“ Sigurður Ingi Þórðar-
son, betur þekktur sem Siggi
hakkari. Sigurður lauk afplánun í
fangelsi í júní og hefur snúið heim.
Hann á eftir að afplána nokkra
mánuði af dómi sem hann hlaut
fyrir kynferðisbrot gegn níu ung-
lingspiltum. Sigurður var dæmdur í
þriggja ára fangelsi og ástæða þess
að hann er laus eru nýjar reglur um
fullnustu refsinga. Stefna yfirvalda
er að koma föngum á rafrænt eft-
irlit sem fyrst. Þar eru þeir lengur en
áður tíðkaðist.
DV greindi frá því þann 23. ágúst
að Sigurður afplánaði eftirstöðv-
ar dómsins undir rafrænu eftirliti.
Í kjölfarið kom fram í Stundinni að
foreldrar barna í Salaskóla væru
ósáttir við að Sigurður stundaði
sundlaugar í Kópavogsbæ í frítíma
sínum og spunnust heitar umræð-
ur um málið. Samkvæmt heimild-
um DV funduðu allir skólastjórar
um málið og vildu að Sigurði yrði
meinað að fara í laugarnar. Sigurð-
ur hafði verið nær daglegur gestur í
sundlaugum frá því að hann losnaði
í júní. Nú hefur DV fengið staðfest
að Siggi hakkari hefur skrifað undir
plagg þess efnis að hann megi ekki
fara í sund. Hann þarf því framvegis
að þrífa sig heima hjá sér.
Saga Sigurðar
Sigurður var dæmdur í einu um-
fangsmesta kynferðisbrotamáli síð-
ari ára í september 2015. Áður hafði
Sigurður komist í kastljós fjölmiðla
vegna tengsla við Wikileaks og var
sakaður um þjófnað frá samtökun-
um. Þá var hann bandarísku alríkis-
þjónustunni, FBI, innanhandar og
gaf þeim upplýsingar um Wikileaks.
Þá greindi DV frá því að hann hefði
farið til fundar við allsherjarnefnd
Alþingis eftir að greint var frá því að
hann hefði verið yfirheyrður af FBI
haustið 2011. Á þeim fundi mætti
Sigurður með lífverði og sagðist
hafa verið tálbeita hjá FBI. Einnig
var hann nefndur í tengslum við til-
raun til að kúga Nóa Siríus en ekki
var hægt að sanna tengsl hans við
málið. Þá sat hann í gæsluvarðhaldi
í tengslum við fjársvik.
Síðar var Sigurður dæmdur fyr-
ir kynferðisbrot en fangelsisdóm-
ar hans eru þrír, samtals 5 ár og 8
mánuðir. Í febrúar 2014 var hann
dæmdur í átta mánaða óskilorðs-
bundið fangelsi fyrir að tæla 17
ára dreng til kynferðismaka með
blekkingum. Þann 13. mars sama
ár undirgekkst Sigurður sektar-
greiðslu vegna þjófnaðar. Þá var
hann dæmdur í tveggja ára óskil-
orðsbundið fangelsi í desember
2014 fyrir umfangsmikil fjársvik
gegn fyrirtækjum og einstakling-
um. Alls var hann dæmdur til að
greiða um átta milljónir í miska-
bætur.
Hinn 23. september 2015 var Sig-
urður dæmdur í þriggja ára fang-
elsi fyrir að hafa brotið kynferðis-
lega gegn níu piltum. Þá var honum
gert að greiða 8,6 milljónir í miska-
bætur og rúmar sex milljónir króna
í sakarkostnað. Sigurður hafði sam-
skipti við drengina á netinu og lofaði
þeim peningagreiðslum og að þeir
fengju margs konar vörur, til dæm-
is símtæki, tölvur, bifreiðar og jafn-
vel fasteignir, í skiptum fyrir munn-
og endaþarmsmök. Þá lofaði hann
því að hann gæti lagfært námsfer-
il sumra drengjanna með tölvu-
kunnáttu sinni. Flestir piltanna voru
á aldrinum 15 til 16 ára þegar brot-
in áttu sér stað. Fleiri drengir kærðu
Sigurð en ekki rötuðu fleiri mál fyrir
dómstóla.
Verður að fara í bað heima hjá sér
„Ég spurði hvort ég mætti fara í sund
áður en ég losnaði og þeir sögðu já,“
segir Sigurður og segir að daginn eft-
ir umfjöllun fjölmiðla hafi honum
verið meinað að fara í sund. Í upp-
haflega plagginu sem veitti honum
reynslulausn segir hann að hvergi
hafi komið fram að honum hafi ver-
ið meinaður aðgangur að sundlaug-
um. Eftir háværar umræður var Sig-
urður boðaður á fund daginn eftir og
þá hafði því skilyrði verið bætt við.
Allar sundferðir væru hér eftir tekn-
ar af. Sem von er hefur ýmislegt ver-
ið sagt. Sigurður hefur verið kallað-
ur skrímsli og oftar en einu sinni fólk
viljað skipta út viðurnefninu hakkari
fyrir nauðgara. Um þetta segir Sig-
urður:
„Að mörgu leyti finnst mér hún
ósanngjörn og ekki rétt en það er
ekki hægt annað en að skilja hana
að vissu marki. Mér finnst til dæm-
is ekki rétt hvað sé fjallað um og hvað
ég var dæmdur fyrir. Aldursmunur-
inn á mér og þeim sem að málið
snýst um var mjög lítill,“ segir Sigurð-
ur og bætir við:
„Ég held að umræðan fari úr
böndunum með hverri einustu frétt.
Hvort sem hún er um mig eða ein-
hvern annan. Ég skil þessi sjónarmið
alveg en umræðan var dálítið asna-
leg. Það var sagt að ég væri að mæta
í sund þegar skólasund væri en svo
gleymdist að athuga að skólasund
er ekki einu sinni hafið. Á þeim tíma
sem skólasund er á ég að vera í vinnu.
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is „Ég hreint
út sagt veit
ekki hvað ég ætti
að segja, nema að
biðjast afsökunar
aftur
„Ég spurði hvort
ég mætti fara í
sund áður en ég losnaði
og þeir sögðu já