Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Page 24
Helgarblað 2.–5. september 20162 Góð heilsa - Kynningarblað
Náttúrulegar heilsuvörur
úr íslenskum jurtum
Húðvörur fyrir haustið
V
ið Eyjafjörðinn má
finna margs konar
blómlega atvinnu
starfsemi, en þar
er eitt fyrirtæki
sem er alveg sér í lagi blóm
legt og hefur síðustu 24 árin
framleitt hágæða snyrtivör
ur, húðvörur og líkamsvör
ur úr íslenskum jurtum og
lífrænt vottuðum hráefn
um. Urtasmiðjan á Sval
barðsströnd er íslenskt
fjölskyldufyrirtæki
sem eigandinn og
fyrrverandi tónlist
arkennarinn, Gígja
Kjartansdóttir Kvam,
stofnaði og hefur
stýrt frá upphafi við
góðan orðstír.
Hraust húð í
haustvindunum
Nú er jurtatínslu lok
ið þetta sumarið og
hafist handa við að
framleiða ferskar
vörur fyrir haustið
sem gott er að nota
og njóta þegar fer að
kólna í veðri því þá
er mikilvægt að huga
vel að húðinni. Nú
á haustdögum kem
ur á markað nýtt
einstakt næringar krem
frá Urtasmiðjunni, sem er sérstak
lega þróað til að hlífa og vernda
húðina fyrir kulda. Það inniheldur
lítinn raka en mikið af næringarefn
um. Auk þess er kremið sérstaklega
gott fyrir þurra og viðkvæma húð
sem þarfnast aukinnar næringar
og umönnunar. Það inniheldur
m.a. olíur úr græðandi rauðsmára
og ilmandi gulmöðru, þykkni úr
granateplum og villirósabelgjum,
sem eru rík af vítamínum og andox
unarefnum sem örva endurnýjun
arvirkni húðarinnar og stuðla að
heilbrigðu og frísklegu útliti hennar.
Kremið tekur nafn sitt af villirósinni
og fær nafnið Villirósakrem. Sér
stakt hausttilboð,og kynningarverð
(20% afsláttur) verður á þessu nýja
kremi í netverslun Urtasmiðjunn
ar sem verður fáanlegt á www.
urtasmidjan.is. í byrjun október.
Fyrsta framleiðsluvara
Urtasmiðjunnar leit dagsins ljós
fyrir 24 árum, en það var Græðis
myrslið. Gefum Gígju orðið:
„Mér varð oft hugsað til
ömmu minnar sem tíndi jurt
ir sem hún blandaði í sinn eigin
áburð sem hún notaði á bæði menn
og skepnur. Í þá daga var ekki óal
gengt að fólk notaði jurtir sér og sín
um til heilsubótar bæði í drykki og
smyrsli, því vitneskjan um áhrifa
mátt jurtanna var víða til staðar og
ekki alltaf hægt að hlaupa til lækn
is svo að fólk varð oft að bjarga sér
sjálft. Græðismyrslið mitt hefur frá
því fyrsta verið afar eftirsótt og alla
tíð síðan sannað gildi sitt sem al
hliða græðandi áburður. Það flýt
ir fyrir að græða s.s. legusár, sól
bruna, sólarexem, ýmis útbrot og
gyllinæð, en ekki síst er það mjög
áhrifaríkur brunaáburður. Græði
smyrslið inniheldur m.a. vallhumal
og rauðsmára sem eru þekktar jurt
ir fyrir græðandi virkni. Morgun
frú er viðurkennd heilandi húðjurt
og kamillan róandi á sviða og kláða
og dregur úr bólgu, lofnarblóm og
hafþyrnir eru ekki síst þekktar jurtir
fyrir m.a. græðandi áhrif á brunasár.
Græðismyrslið er notað á ýmsum
heilsustofnunum og dvalarheimil
um og fær alltaf mikið lof fyrir sína
góðu og alhliða virkni.“
„Ásamt Græðismyrslinu var
Vöðva og gigtarolían ein af fyrstu
tegundunum sem við fórum að
framleiða og má segja að hug
myndin að henni hafi verið mín eig
in þörf fyrir að milda verki í liðum
og mýkja harða og spennta vöðva.
Í henni eru blóðberg, ein
ir, arnika og fleiri áhrifaríkar
jurtir, sem þekktar eru fyrir
mildandi áhrif sín á gigtar
verki, eymsli og stirðleika í
liðum, vöðvaspennu og sina
drátt. Olían smýgur vel inn í
húð og vöðva og fer ekki í föt.
Hún er notuð víða á nudd
stofum hér á landi og erlend
is og fær frábær ummæli frá
nuddurum og nuddþegum.“
Auk þessara ofannefndu
tegunda framleiðir Urta
smiðjan fjölmargar aðrar
tegundir, s.s. andlitskrem úr
ísl. fjallagrösum, djúpnær
andi silkiandlitsolíu (serum),
handkrem, mýkjandi fótasalva
(hælakrem) o.fl.
Framleiðsla Urtasmiðjunn
ar inniheldur engin aukaefni, engin
erfðabreytt efni eða dýraafurð
ir. Auk okkar hreinu og heilnæmu
jurta er allt hráefnið upprunnið úr
náttúrunni, lífrænt vottað, viður
kennt og leyft í lífrænni framleiðslu.
Allar frekari upplýsingar um húð
vörur Urtasmiðjunnar og sölustaði
má finna á vefsíðunni www.urta
smiðjan.is. og Facebooksíðu face
book.com/Urtasmidjan n