Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Síða 27
Helgarblað 2.–5. september 2016 Fólk Viðtal 23
„Ég er ekki skrímsli“
n Sigga hakkara bannað að fara í sund n Dæmdur fyrir gróf kynferðisbrot en segist ekki vera siðblindur
Ég mætti alltaf í sund á kvöldin.“
Frá því Sigurður losnaði í júní
starfaði hann fyrst fyrir Postulakirkj-
una og sá meðal annars um vefsíðu-
gerð fyrir kirkjuna. Fyrir tæpri viku
var hann færður í Rauða krossinn
þar sem hann stundar samfélags-
þjónustu sjö tíma á dag alla daga vik-
unnar. Ákvörðunin var tekin þar sem
fyrri vinnuveitandi hafði
ekki næg verkefni handa
Sigurði. Hjá Rauða krossin-
um er Sigurður að pakka
niður fötum og kveðst hafa
gert margt skemmtilegra.
Sálfræðingurinn tjáir sig
Dan Somers titlar sig sálgæslu-
mann og var hann Sigurði innan-
handar í fangelsinu. Eftir að Sig-
urður losnaði fór hann í vinnu hjá
sálfræðingi sínum, sem er safnaðar-
prestur hjá Postulakirkj-
unni.
„Hann hjálpaði
mér með kirkjustarf og
kirkjuvefinn og hjálp-
aði mér í athvarfsmið-
stöð sem ég rek nokkrum
sinnum á ári þar sem fólk
kemur í vikudvöl. Hann
þekkir netið út og inn.
Hann er klár, strákurinn.
Svo er hann búinn að
vera að hjálpa mér við að
mála og ýmsar aðrar við-
gerðir. Dan hefur verið
með sálgæslu og annast
Sigurð. Dan segir:
„Sigurður er siðblind-
ur eða var það. Það get-
ur tekið langan tíma að
laga það með sálfræðiað-
stoð. Það tók mig tvö ár að
fá hann til að sjá og skilja
að það sem hann gerði
var rangt. Það er enginn
efi um það í dag að hann
sér að það sem hann gerði
var rangt.“ Í niðurstöðum geðrann-
sóknar á Sigurði, sem kom fram í
gæsluvarðhaldsúrskurði undir lok
árs 2014, kom fram að hann væri
siðblindur og að vandi hans fælist
í hömluleysi og erfiðleikum við að
fresta fullnægingu hvata. Þá iðrist
hann ekki gjörða sinna og geti ekki
sýnt merki um djúpa sektarkennd.
Dan vill halda fram að siðblinda sé
lærð hegðun.
„Við kennum börnum það ef þau
komast upp með eins mikið og þau
geta, þá finnst þeim það bara eðli-
legt. Hann hringdi í mig og sagði að
það væri komið nóg. Hann hefur
játað afbrot sín fyrir dómi, sem ger-
ist nánast aldrei hjá fólki sem neitar
öllu. Hann skildi að það sem hann
var að gera var rangt.“
Þegar það er borið undir Sigurð
hvort hann sé siðblindur og hvort
það hafi tekið tíma fyrir hann að átta
sig á alvarleika brotanna játar hann
því. Það hafi ekki gerst strax. Ertu sið-
blindur?
„Nei, ég mundi ekki segja það.
Það er mitt persónulega álit. Á viss-
um sviðum er ég það, að sjálfsögðu,
en það er fullt af hlutum sem ég
myndi alls ekki gera. Svo eru aðrir
hlutir á þessum tíma sem ég gerði, ég
sé eftir þeim í dag. Á þeim tíma gerði
ég það ekki.“
Sálfræðingur Sigurðar vill meina
að um fimm ára áætlun sé að ræða
en fjölmiðlar lengi biðina með um-
fjöllun um viðkvæm mál.
„Stór hluti af hans lífi er að fara
í sund en nú er búið að banna það,
vegna þess að það er búið að skrifa
um þessa hluti. Það er sagt að Sigurð-
ur sé hættulegur börnum en hann
hefur ekki misnotað börn,“ segir Dan
sem lítur nánast á Sigurð sem fóstur-
son sinn. Hann segir að strax eftir
umfjöllun fjölmiðla um sundferðir
Sigurðar hafi fangelsismálayfirvöld
gripið í taumana.
„Þá var sagt; þú mátt ekki fara
sund. Þú verður að fara í bað heima
hjá þér. Hvernig á að fá fólk inn í
þjóðfélagið þegar við bönnum því
að taka þátt í þjóðfélaginu? Sigurður
keypti í raun vændi af ungum strák-
um. Ég er ekki að afsaka neitt. Mér
finnst það siðferðislega rangt.“
Dan segir að Sigurður hafi skrif-
að bréf til flestra fórnarlambanna, og
fólks tengt þeim, og beðist afsökun-
ar. Sigurður gengst við því og segist
einnig hafa hringt í aðra sem hann
braut á í fjársvikamáli.
Fékkstu viðbrögð? „Nei.“ Hefur þú
heyrt í aðilum? Aftur neitar Sigurður.
Sérðu eftir því sem þú gerðir?*
„Ég geri það í dag. Ef þú hefð-
ir spurt mig fyrir tveimur árum eða
tveimur og hálfu ári, þá hefði svarið
verið öðruvísi.“
Ef þessir strákar stæðu frammi
fyrir þér í dag, myndir þú vilja segja
eitthvað við þá eða finnst þér þú hafa
gert upp þín mál með þessum bréf-
um?
„Ég, hreint út sagt, veit ekki hvað
ég ætti að segja, nema að biðjast af-
sökunar aftur.“
Leyfir Sigurði að umgangast
börn sín
Dan Somers segir Sigurð ekki hættu-
legan börnum. Ekki þurfi heldur að
hafa áhyggjur af honum í sundlaug-
um bæjarins. Þá segir hann Sigurð
hafa áttað sig á brotum sínum.
„Honum finnst það sem hann
gerði ógeðslegt,“ segir Dan og segist
ekki hafa trú á því að hann brjóti af
sér aftur. „Það er aldrei hægt að segja
aldrei. Hann þarf að koma heim
klukkan 11 á kvöldin og hingað til er
hann búinn að vera í sundi á hverj-
um degi úti um allt og engin vanda-
mál.“
Dan bætir við að tvö af fórn-
arlömbum Sigurðar hafi sett sig í
samband við hann í fangelsinu. Sig-
urður segist ekki kannast við það, en
segist hafa heyrt í þeim sem hann
hafi svikið. Einnig segir Dan að Sig-
urður umgangist hans börn.
„Stór hluti
af hans lífi
er að fara í sund
en nú er búið að
banna það
Á leið á fund Árið 2013. Sigurður Ingi er hér í fylgd lífvarða sem fylgdu honum til
fundar við allsherjarnefnd. Mynd preSSphotoS
Laus Sigurður var myndaður við bílaþrif og vakti athygli að hann væri laus úr fangelsi.