Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Síða 28
Helgarblað 2.–5. september 201624 Fólk Viðtal
„Hann er oft í kringum börnin
mín og er góður vinur þeirra. Ég hef
alls ekki áhyggjur af honum í kring-
um börnin mín,“ segir Dan.
Fangelsisvist
Þekkt er að barnaníðingar og kyn-
ferðisbrotamenn fá oft fyrir ferðina
hjá samföngum í fangelsum. Þeir
eru jafnvel útilokaðir frá hópnum og
beittir barsmíðum. Sigurður segir að
vistin hafi ekki verið svo slæm.
„Ég held ég hafi komist vel í gegn-
um þetta. Það er ekki sjálfgefið. Ég
var í einangrun í fimm vikur fyrst,
svo fór ég inn á Hraunið á almennan
gang og var í tvo til þrjá mánuði en
svo færður í Hegningarhúsið í átta
mánuði. Það var ágætt. Það vandist,
nema maturinn, bakkamatur frá
Múlakaffi. Svo var ég færður upp á
Hraunið í eitt ár, fór svo á Sogn í hálft
ár.“
Hvað er verst við að vera í fang-
elsi?
„Ætli það sé ekki að geta ekki hitt
vini og fjölskyldu. Það er það eina
jákvæða við vistina í fangelsinu að
hún hjálpaði manni að sjá hvað
skiptir máli. Þetta snerist ekki leng-
ur um flotta bíla eða peninga. Þetta
snerist um vini og fjölskyldu. Fyrst í
stað var ég ekki að átta sig á því. En
eftir svona sjö, átta mánuði þá fór ég
að átta mig á þessu.“
Þá segist Sigurður fá frið úti á
götu og ekki verða fyrir aðkasti eða
þurfi að læsa dyrum. Það sé helst
fjölskyldan sem hafi áhyggjur.
Laus í júní
Kynferðisbrot Sigurðar, eða Sigga
hakkara, voru umfangsmikil og
braut hann, eins og áður segir, gróf-
lega gegn mörgum ungum piltum.
Hann losnaði síðan í júní en það
var í lok ágúst sem greint var frá því
að hann væri laus og náðist mynd af
honum á bílaþvottastöð. Þeim sem
tók myndina brá að sjá hann lausan
svo skömmu eftir að hann hafði
verið dæmdur.
Sigurður segir að hann hafi ekki
fengið sálfræðiaðstoð í fangelsinu
frá Fangelsismálastofnun. Sigurður
var síðan látinn laus og sá sem tók
hann í vinnu var, eins og áður seg-
ir, Dan Somers en þeir hafa þekkst
í nokkurn tíma. Dan fylgdi með-
al annars Sigurði á fund allsherjar-
og menntamálanefnd Alþingis árið
2013 til að ræða aðgerðir FBI á Ís-
landi sumarið 2011. En Dan greinir
frá því í samtali við DV að þeir hafi
verið með skrifstofu á sama stað um
tíma.
„Þegar ég var inni var það að
mínu frumkvæði að hitta Dan. Ég
þarf ekki að hitta hann og engin
skilyrði um slíkt. Ég bað um að fá
að hitta geðlækni og það tók frekar
langan tíma og ég fékk það á end-
anum og þurfti að borga fyrir það
sjálfur og það var allt að mínu frum-
kvæði.“
Íslendingar eiga að fyrirgefa
Dan Somers segir Íslendinga eiga
erfitt með að fyrirgefa og geri það
sjaldan í erfiðum málum. „Ís-
lendingar eiga að fyrirgefa Sigga
hakkara og fyrirgefa öllum afbrota-
mönnum sem játa afbrot sín og
gangast við þeim og afplána þær
refsingar sem þeir fá. Ef fólki finnst
að refsingin eigi að vera harðari þá á
Alþingi að breyta því.“
Hefur hann verið í kringum börn
eða unglinga í þinni umsjá?
„Hann á systur á unglingsaldri, ný-
fermda. Auðvitað er hann í kringum
börn. Hann er laus úr fangelsi. Ég hef
oft setið með honum þar sem hann
hefur verið grátandi yfir því sem
hann hefur gert og sagt; af hverju
var ég ekki bara samkynhneigður,
af hverju var ég ekki á bar sjötíu og
sex eða kíki eða eitthvað? Það hefði
verið miklu auðveldara, þá þyrfti ég
ekki að vera hérna í fangelsi.“
Fyrir skömmu tjáðu foreldrar
ungs pilts sig við DV. Sonur þeirra-
féll fyrir eigin hendi. Þar sögðu for-
eldrarnir frá því að sonur þeirra
hefði svipt sig lífi vegna alvarlegs
kynferðisbrots. Ekki var greint frá
hver hafði beitt piltinn ofbeldi og
vildu foreldrarnir ekki tjá sig um
það við DV, heldur vakti fyrir þeim
að vekja athygli á alvarleika kyn-
ferðisofbeldis. Á samfélagsmiðlum
var fólk sem tengdi Sigurð við við-
talið. Aðspurður hvort Sigurður hafi
séð viðtalið segir hann:
„Já, ég las það.“
Hvað fannst þér um það? Tekur þú
það til þín? „Þetta er mjög leiðinlegt
mál, ég neita því ekki. Ég veit hvaða
strákur þetta er. Þetta tók á mig. Ég
frétti af þessu tveimur dögum eftir
að það gerðist.“
Sumir kalla þig skrímsli, aðr-
ir siðblindan, ég hef ekki allt eftir
sem sagt hefur verið. Særir slíkt? „Að
sjálfsögðu gerir það.“ Ertu skrímsli?
„Ég er ekki skrímsli en mikið af
því sem ég hef gert bendir til þess.“ n
„Svo eru aðr-
ir hlutir á
þessum tíma sem
ég gerði, ég sé eft-
ir þeim í dag. Á
þeim tíma gerði
ég það ekki