Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Side 32
Helgarblað 2.–5. september 201628 Sport
Eftirsóttir um alla Evrópu
Hörður Björgvin
Magnússon
Aldur: 23 ára
Fór frá: Juventus
Fór til: Bristol City
Hörður, sem leikið hafði á Ítalíu um árabil, er kominn
í Championsship-deildina öflugu. Þessi stórefnilegi
leikmaður er þegar orðinn byrjunarliðsmaður hjá Bristol,
sem er í toppbaráttunni eftir fyrstu umferðirnar. Hann
mun læra mikið í þessari deild.
Hjörtur Hermannsson
Aldur: 21 árs
Fór frá: Gautaborg
Fór til: Bröndby
Hjörtur hefur farið vel af stað með Bröndby, eftir
að hafa verið lánsmaður hjá IFK Gautaborg. Þessi
efnilegi varnarmaður er fastamaður í liðinu sem
er á toppnum í dönsku úrvalsdeildinni. Það verður
spennandi að fylgjast með leikmanninum á næst-
unni.
Jón Daði
Böðvarsson
Aldur: 24 ára
Fór frá: Kaiserslautern
Fór til: Wolves
Spilaði alla leikina á EM sló þar í gegn, eins og aðrir
leikmenn liðsins. Þrátt fyrir að hafa spilað um
skamma hríð hjá Kaiserslautern, var hann keyptur
til Úlfanna í byrjun ágúst. Þar hefur hann slegið
í gegn og er þegar orðinn að lykilmanni í liðinu,
samkvæmt heimasíðu stuðningsmanna.
Rúnar Már
Sigurjónsson
Aldur: 27 ára
Fór frá: Sundsvall
Fór til: Grasshopper
EM var ekki búið þegar greint var frá kaupum
Grasshoppers á miðjumanninum öfluga. Rúnar
var á sínu fjórða tímabili með Sundsvall en þaðan
kom hann frá Val 2013. Rúnar hefur verið í byrjun-
arliðinu hjá Grasshoppers og tók með félagaskipt-
unum gott skref upp á við.
Ari Freyr
Skúlason
Aldur: 29 ára
Fór frá: Sundsvall
Fór til: Lokeren
Ari var keyptur skömmu
eftir EM. Hann hefur
smollið inn í byrjunarlið
Lokeren en átti áður
nokkur góð ár bæði í
Danmörku og Svíþjóð.
Það eru góðar fréttir
að Ari Freyr sé kominn í
sterkari deild.
Kolbeinn Sigþórsson
Aldur: 26 ára
Fór frá: Nantes
Fór til: Galatasaray (lán)
Það benti fátt til þess að Kolbeinn léki í Frakk-
landi í vetur, eftir erfitt ár í fyrra. Gustað hefur um
leikmanninn frá því hann kom til liðsins, enda ekki
staðið undir miklum væntingum. Allir sáu þó á EM
hvað spunnið er í Kolbein sem genginn er til liðs
við hið sögufræga lið Galatasaray. Hann á eftir að
spila leik fyrir félagið.
Jóhann Berg
Guðmundsson
Aldur: 25 ára
Fór frá: Charlton
Fór til: Burnley
Þurfti nauðsynlega að skipta um umhverfi eftir
að hafa fallið úr Championsship-deildinni í vor.
Fær núna tækifæri í úrvalsdeildinni. Hefur byrjað
einn leik í bikarnum en alltaf verið fyrsti maður
inn af bekknum í deildinni. Verður gaman að
fylgjast með Jóhanni Berg í vetur, en Burnley fer
ágætlega af stað.
Eiður Smári Guðjohnsen
Aldur: 38 ára
Fór frá: Molde
Fór til: Indland
Þegar Eiður tilkynnti að hann væri hættur hjá Molde bjugg-
ust einhverjir við að hann væri hættur knattspyrnuiðkun.
Það kom því skemmtilega á óvart þegar tilkynnt var að
hann væri genginn til liðs við Pune City í Indlandi. Deildin
hefst í október og henni lýkur fyrir jól.
Ragnar Sigurðsson
Aldur: 30 ára
Fór frá: Krasnodar
Fór til: Fulham
Margir bjuggust við því að Ragnar færi í ensku
úrvalsdeildina, eftir frækna frammistöðu á EM.
Sérstaklega var hann öflugur gegn Englendingum.
Fór í Championsship-deildina eftir að hafa leikið
með firnasterku rússnesku liði. Hann á eftir að
leika sinn fyrsta leik með félaginu, enda stendur
landsleikjahlé yfir.
MagnesíuM Kísill
Hin fullkomna tvenna
fyrir Heilsu og fegurð