Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Qupperneq 33
Helgarblað 2.–5. september 2016 Sport 29
Eftirsóttir um alla Evrópu
Ellefu EM-farar skiptu um félag í sumar
U
m helmingur þeirra leik-
manna sem fóru fyrir Ís-
lands hönd á EM hafa skipt
um félag í sumar. Ellefu leik-
menn af tuttugu og þremur
hafa, þegar þetta er skrifað, skrifað
undir samninga við ný félög. Íslenska
landsliðið kom liða mest á óvart á EM
og komst alla leið í 8 liða úrslit.
Eftir því sem EM vatt fram jó-
kst hróður íslenskrar knattspyrnu.
Eftir sigurleik Íslands á Englandi í
16 liða úrslitum sagði Heimir Hall-
grímsson landsliðsþjálfari að sigur-
inn hefði gríðarlega mikla þýðingu
fyrir íslenska knattspyrnu. „Þeir eru
að gengishækka íslenskan fótbolta
gífurlega með þessum sigri og það
eiga allir eftir að finna fyrir því. Allir
íslenskir leikmenn, öll íslensk félög
og allt íþrótta- og fótboltalíf á Íslandi.
Þeir eru búnir að gera okkur gríðar-
legan greiða, þessir strákar.“
Frammistaðan opnaði augu fé-
laga um alla Evrópu á íslenskum leik-
mönnum. Því var spáð, þegar þátt-
töku Íslands á EM lauk, að íslenskir
leikmenn myndu ganga kaupum og
sölum. Sú hefur sannarlega orðið
raunin, eins og sjá má hér til hlið-
ar, þar sem fjallað er um þá EM-leik-
menn sem hafa skipt um félög að
undanförnu. Hafa ber í huga að fleiri
leikmenn en þeir sem fóru á EM eru
eftirsóttir. Þannig var markahæsti
leikmaður sænsku deildarinnar, Við-
ar Örn Kjartansson, svo dæmi sé tek-
ið, keyptur til Maccabi Tel Aviv frá
Malmö í vikunni. n
Arnór Ingvi Traustason
Aldur: 23 ára
Fór frá: Nörrköping
Fór til: Rapid
Vín Gekk til liðs við austurríska liðið í maí, áður en EM hófst, eftir frábært gengi í Svíþjóð
og í nokkrum leikjum með landsliðinu. Arnór, sem skoraði einmitt sigurmarkið gegn
Austurríki á EM, er orðinn fastamaður í liði sínu og búinn að skora mark. Byrjunin lofar
góðu upp á framhaldið.
Hannes Þór Halldórsson
Aldur: 32 ára
Fór frá: NEC Nijmegen
Fór til: Randers
Hannes var stórkostlegur á EM, eins og hann hefur verið með landsliðinu
undanfarin ár. Margir bjuggust við að hann færi í eina af stærri deildunum.
Hann gekk þó til liðs við Randers í Danmörku og hefur spilað frábærlega.
Liðið fær sjaldan á sig mörk og er í toppbaráttunni.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Ætlum að halda okkur við fótboltann“
U21-liðið leikur tvo mikilvæga útileiki næstu daga
Þ
eir hleypa leikjum sínum upp
í baráttu og slagsmál,“ segir
Eyjólfur Sverrisson um næstu
andstæðinga íslenska U21
landsliðsins í knattspyrnu. Liðið á
fyrir höndum tvo mikilvæga leiki í
undankeppni EM. Í dag leikur liðið
gegn Norður-Írum en þeir verma
botnsætið í firnasterkum riðli. Eina
stig þeirra í mótinu fengu þeir fyr-
ir að ná jafntefli við Ísland hér á
heimavelli. Á þriðjudaginn leika
strákarnir við Frakka úti, en þeir
verma toppsætið í riðlinum. Eini
ósigur Frakka til þessa í riðlinum
kom gegn Íslendingum hér heima.
Eyjólfur, sem er í viðtali við
Youtube-síðu KSÍ, segir að staðan í
riðlinum gefi ekki rétta mynd af getu
Norður-Íra. Þeir hafi á að skipa öfl-
ugu liði. Hann býst við mikilli bar-
áttu í leiknum. „Við ætlum að halda
okkur við fótboltann og vera fljótir
að færa boltann á milli vallarhelm-
inga þannig að við náum að brjóta
þá á bak aftur,” segir Eyjólfur.
Hann segir að Ísland hafi feng-
ið færi til að vinna fyrri leik liðanna,
á heimavelli, en að þau hafi ekki
nýst. Það verði að breytast í leikn-
um í kvöld. „Þetta er mjög jafn rið-
ill og mikið af jafnteflum þannig að
við ætlum okkur að ná efsta sætinu
og komast beint í úrslitakeppnina.”
Ísland á fjóra leiki eftir í riðlin-
um en í október mætum við Skotum
og Úkraínumönnum. Báðir leikirnir
fara fram á Íslandi. n
baldur@dv.is
LIÐ LEIKIR STIG
Frakkland 7 14
Ísland 6 12
Makedónía 7 12
Skotland 6 8
Úkraína 6 4
Norður-Írland 6 1
FÁKASEL - FYRIR ALLA
Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050
matur, drykkur
og skemmtun
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn