Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Side 36
Helgarblað 2.–5. september 201632 Lífsstíll
É
g hafði alltaf áhuga á skrifum
og kvikmyndum og fór í Kvik-
myndaskólann til að verða
handritahöfundur. Þar rann
upp fyrir mér ljós – að sjálf-
sögðu gat ég orðið kvikmyndaleik-
stjóri. Ég hafði áður unnið við stjórn-
unarstörf og leikstjórn snýst einmitt
um það – að hafa yfirsýn, sjá til þess
að allir séu að gera sitt, og fá það
besta fram hjá fólki. Þetta er frábær
vinna fyrir skapandi unga konu, en
kvikmyndabransinn er ansi mikið
eftir á þegar kemur að jafnrétti kynj-
anna. Það fer þó vonandi að breyt-
ast,“ segir Lovísa Lára í samtali við
blaðakonu DV.
Verðlaun á hátíðum
Lovísa útskrifaðist af handrita- og
leikstjórnarbraut Kvikmyndaskól-
ans árið 2014 en lokaverkefni henn-
ar var stuttmyndin Smástirni. Hana
má nálgast á Youtube, og sömuleið-
is hrollvekjuna Hrellir, sem frum-
sýnd var í maí í fyrra. „Mig langaði að
prófa að gera hrollvekju og við tók-
um myndina upp á tveimur dögum.
Hún hefur núna verið send um allan
heim á hátíðir og vann til dæm-
is verðlaun á International
open film festival og var til-
nefnd sem besta hrollvekjan
á Winter film festival.“
Lovísa segist vera mjög
gagnrýnin á eigin verk og að
það sé eiginlega ekki fyrr en
myndirnar koma fyrir augu
áhorfenda að hún geri sér
almennilega grein fyrir út-
komunni. „Ég hef unnið all-
ar mínar myndir með sömu
kvikmyndatökukonunni og
hún klippir þær líka með
mér. Ég fékk verðlaun fyr-
ir útskriftarmyndina mína,
en var alls ekki viss þegar Hrellir
fór frá mér en það kom í ljós að fólk
kunni að meta hana. Ég er svo gagn-
rýnin á allt sem ég geri og á það til
að einblína á gallana og finnast allt
afskaplegalega hallærislegt. Það er
kannski ekki fyrr en ári eftir frum-
sýningu að ég verð ánægð og fer
virkilega að sjá kostina. Baklandið
í Kvikmyndaskólanum er gott og ég
nota mér óspart að fá yfirlestur og
áhorf hjá góðu fólki þar.
Lovísa Lára er
kvikmyndaleikstjóri
„Mér datt aldrei í hug að ég gæti orðið
kvikmyndaleikstjóri. Þeir voru allir eldri karlar með
grátt hár,“ segir Lovísa Lára Halldórsdóttir.
Það vill samt svo til að þegar hún var komin
áleiðis í námi í Kvikmyndaskóla Íslands áttaði
sig hún á því að hún gæti svo sannarlega orðið
kvikmyndaleikstjóri, þrátt fyrir skort á fyrirmyndum.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is „Ég er svo
gagnrýnin á allt
sem ég geri og á það til
að einblína á gallana.
Handrit Fyrst ætlaði Lovísa að verða handritahöfund-ur – svo áttaði hún sig á að hún gæti orðið leikstjóri líka.
Tökur á Hrelli Reynsla Lovísu af stjórnunarstörfum kemur sér vel í hlutverki leikstjórans.
Lovísa Lára Hún hélt að
kvikmyndaleikstjórar þyrftu
að vera karlkyns með grátt hár.
Annað kom heldur betur í ljós.
mynd sigTRygguR aRi
Ný námskeið
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is
Er ekki kominn tími til að gera eitthvað
Námskeið í september og Október 2016
• MARKÞJÁLFUN - hefst 5. sept
• SJÁLFSUMHYGGJA lærðu að þykja vænt
um sjálfan þig - hefst 12. sept
• MINNISTÆKNI - hefst 19. sept
• MARKÞJÁLFUN - hefst 3. október
• TÖLVUR 1 - hefst 4. október
• Í FÓKUS að ná fram því besta með ADHD – hefst 4. október
• TÖK Á TILVERUNNI - hefst 4. október
• FJÁRMÁL - hefst 10. október
• HEILSA OG HEILSUEFLING - hefst 24. október