Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Blaðsíða 37
Helgarblað 2.–5. september 2016 Lífsstíll 33
Sumir helst til hjálpsamir
En hvernig skyldi bransinn hafa
tekið henni – ungri konu í kvik-
myndaleikstjórn? „Flestir eru mjög
jákvæðir og eru kannski að vanda sig
alveg sérstaklega og detta mögulega í
einhvern óþarfa stuðning. Ég hef líka
tekið eftir því að stundum þegar ég
er að leikstýra á setti eiga sumir til að
skipta sér af hlutum sem þeir halda
að ég ráði ekki við vegna kyns míns
og aldurs.“
Nýlega sendi Lovísa tvær stutt-
myndir frá sér á hátíðarúnt um heim-
inn, og á dögunum lauk hún tök-
um á fyrstu mynd sinni í fullri lengd.
Myndin heitir Týndu stelpurnar og
byggist að hluta til á sönnum atburð-
um. „Ég var búin að vinna að hand-
ritinu í þrjú ár, en fyrst um sinn datt
mér ekki í hug að leikstýra henni
sjálf. Bróðir minn var líka í Kvik-
myndaskólanum og þegar hann kom
til mín með svipaða hugmynd varð
þetta allt skýrara í kollinum á mér og
ég fékk kjark til að fara alla leið með
ákveðin þemu sem ég hafði verið að
gæla við.“
Unglingsstelpur rannsaka morð
Myndin segir frá tveimur 14 ára
stelpum, sem eiga ólíkan bakgrunn
og búa við ólíkar aðstæður, en eiga
það sameiginlegt að vilja sleppa frá
heimilum sínum. „Handritið byggist
að hluta á persónulegri reynslu og
reynslu vinkvenna minna. Stelpurn-
ar eru dálítið ímyndunarveikar og
halda að þær verði
vitni að morði. Þær
byrja að rannsaka
það upp á eigin
spýtur og flækjast
þar með inn í at-
burðarás sem þær
ráða engan veginn
við.“
Myndin var að
mestu leyti fjár-
mögnuð af Lovísu.
„Það er mjög erfitt að fá styrki frá
Kvikmyndasjóði ef maður hefur ekki
helling af verkum á ferilskránni. Mig
langaði að drífa í því að gera þessa
mynd og umsóknarferli hefði tafið
það óskaplega og líklega ekki skil-
að neinu. Þess vegna var lendingin
sú að leggjast í miklar reddingar og
fjármagna myndina sjálf ásamt því
að þiggja styrki frá nokkrum fyrir-
tækjum. Við fengum til dæmis fría
notkun á öllum tækjabúnaði og frí-
an mat á setti fyrir þá sem unnu að
myndinni.“ Með þessu móti náðu
Lovísa og samstarfsfólk hennar að
ljúka tökum á myndinni fyrir lítinn
pening.
Aðalleikkonurnar í myndinni
hafa ekki sést á hvíta tjaldinu áður.
„Ég tók mér góðan tíma í að leita
að þeim og eitt af því sem ég gerði
var að fylgja alls konar stelpum sem
auglýstu Snapchat-aðganginn sinn
í Beauty tips-hópnum á Facebook.
Það reyndist gjöfult því að ég fann
aðra þeirra þar. Hina fann ég svo eft-
ir öðrum leiðum. Það fyndna var að
stelpurnar tvær, Kolfinna og Sonja
Rut, reyndust bestu vinkonur í alvöru
og fengu svo að leika bestu vinkonur
í myndinni um týndu stelpurnar.“
Klippingar á Týndu stelpun-
um standa yfir en Lovísa vonast til
að hún verði frumsýnd í íslenskum
kvikmyndahúsum snemma á næsta
ári. „Jafnvel fyrr ef okkur gengur
vel!“ n
Úr Hrelli Ágústa
Eva Erlendsdóttir
lék aðalhlutverkið.
Myndina má nálgast
á Youtube.
Vinkonur
sem vinkonur
Aðalleikkonurnar
í fyrstu bíómynd
Lovísu í fullri lengd.
Kvikmyndin Týndu
stelpurnar verður
frumsýnd á næsta
ári. Kolfinna og
Sonja Rut eru ekki
bara bestu vin-
konur í myndinni,
heldur líka í lífinu.
Hrollvekjandi myrkur
Stilla úr stuttmyndinni
Það er margt sem myrkrið
veit sem var eitt verkefna
Lovísu í Kvikmyndaskól-
anum. Myndin vann fyrstu
verðlaun á Gullmolanum,
stuttmyndahátíð Kópa-
vogs, í fyrra.
Týndu stelpurnar Stilla úr myndinni.
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is
Íslensku-
kennsla
fyrir erlent
starfsafl
Fjarlægir tannstein.
Vinnur gegn sýkingu í tannholdi.
Berst gegn andfýlu.
Náttúrulegt gæludýrafóður og umhirða
Pantanir og fyrirspurnir:
8626969 | 8996555
platinum@platinum.is | platinum.is
Ekki láta þetta ganga svona langt.
OralClean+Care
100 %
náttúrulegt