Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Qupperneq 38
Helgarblað 2.–5. september 201634 Menning
Bestu sýningar sem völ er á
F
yrsta listmunauppboð Gall-
erí Foldar var haldið árið
1996. Nú er komið að list-
munauppboði númer 100,
en það er haldið næstkom-
andi mánudags- og þriðjudags-
kvöld klukkan 18.
Jóhann Ágúst Hansen, listmuna-
sali hjá Gallerí Fold, man eftir fyrsta
uppboðinu fyrir tuttugu árum. „Við
héldum það í salnum í galleríinu
hér á Rauðarárstíg. Það var ekki
stórt í sniðum, um 25 manns mættu
og verkin voru ekki mjög mörg. Við
héldum uppboðin hér í nokkurn
tíma en fluttum okkur svo um set
og héldum þau á Hótel Sögu í fjöl-
mörg ár. Þá voru verkin til sýnis í
galleríinu á Rauðarárstíg en upp-
boðsdaginn þurfti að koma þeim
öllum út í sendibíl klukkan 17 en
uppboðið á Sögu byrjaði klukkan
19. Við vorum með 160–260 verk á
hverju uppboði og það tók þrjá til
fjóra tíma að bjóða þau upp. Fólk
sat við borð og fékk sér í glas og það
skapaðist sérstök stemning. Við
tókum eftir því að nokkur stór hóp-
ur gesta kom einungis til að fylgjast
með og fá sér kaffi og koníak en var
ekki að kaupa listaverk. Fyrir þess-
um hópi var uppboðið skemmti-
legur viðburður en ekki viðskipti.
Þegar kostnaðurinn við að halda
uppboðin á Sögu fór hækkandi þá
ákváðum við að halda uppboðin
í húsnæði okkar á Rauðarárstígn-
um. Þar var stór salur sem við höfð-
um leigt út en sá leigusamningur
var útrunninn og við nýttum salinn
fyrir uppboðin. Um leið breyttist
dýnamíkin. Þeir sem mættu voru
allir komnir til að kaupa verk og þar
af leiðandi gengu uppboðin hrað-
ar fyrir sig. Við minnkuðum fjölda
þeirra verka sem voru á hverju upp-
boði, erum nú yfirleitt með um 100
verk í staðinn fyrir 160 og þetta tek-
ur um tvo tíma sem er um það bil
ein mínúta á verk.“
Þriðjungur verka til fólks
sem er ekki á staðnum
Fólk þarf ekki að vera á staðnum
ætli það sér að kaupa verk. „Að
minnsta kosti þriðjungur af verk-
unum sem eru á uppboðinu eru
seld til fólks sem er ekki á staðnum,“
segir Jóhann. „Þetta eru svokölluð
forboð en þá lætur fólk okkur vita
hvað það er tilbúið að greiða fyr-
ir verkið eða verkin sem það hefur
augastað á og starfsmaður frá okk-
ur fær það hlutverk að bjóða í fyrir
viðkomandi. Svo er alltaf stór hóp-
ur af fólki sem er í símanum og býð-
ur eins og það sé statt í salnum.“
Spurður hvaðan verkin komi
segir hann: „Mjög stór hluti er úr
búum, dánarbúum og skiptabúum,
en verk koma líka í miklum mæli
frá fólki sem er að minnka við sig
húsnæði og þarf þá líka að losa sig
við hluta af búslóðinni. “
Aðspurður hvaða listamenn séu
eftirsóttastir segir hann: „Við höfum
„Ég er alltaf að
hvetja fólk til að
koma á uppboðssýningar
til að skoða því þar er
mikil flóra og breidd sem
fólk sér ekki á venjuleg-
um sýningum.
n Listmunauppboð númer 100 í Gallerí Fold n Myndir, skúlptúrar, skartgripir og skipslíkön n Erfiðara að selja landslagsverk en áður
Jóhann Ágúst Hansen „Að minnsta
kosti þriðjungur af verkunum sem eru á
uppboðinu eru seld til fólks sem er ekki á
staðnum.“ Mynd Sigtryggur Ari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Metsölulisti
Eymundsson
22.– 28. ágúst 2016
Allar bækur
1 HættuspilViveca Sten
2 General ChemistryRaymond Chang
3 Vefur Lúsífers Kristina Ohlsson
4 Independent People Halldór Laxness
5 Sagas of the Icelanders
6 Iceland Small World- lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
7 This is IcelandÝmsir höfundar
8 Niceland Kristján Ingi Einarsson
9 IcelandSigurgeir Sigurjónsson
10 Næturgalinn Kristin Hannah
Viveca Sten