Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Qupperneq 39
Helgarblað 2.–5. september 2016 Menning 35
séð að listamenn hafa verið mjög
vinsælir í ákveðinn tíma og svo dala
þeir og aðrir taka við. Á uppboðum
hefur verið erfitt að selja verk sam-
tímamanna því fólk getur farið á
sýningar þeirra og valið þar úr verk-
um. Það koma ekki inn mörg verk
eftir Húbert Nóa, Eggert Péturs-
son eða Ólaf Elíasson, en þetta eru
verk sem seljast alltaf á háu verði
ef þau koma, og það vill svo til að
verk eftir þá eru á uppboðinu okk-
ar núna. Ef við lítum á látna lista-
menn þá hefur áhugi fólks á verk-
um þeirra færst frá landsmyndum
yfir í abstrakt. Það er orðið erfiðara
að selja landslagsverk nema þau
séu eftir mjög þekkta og góða lista-
menn. Miðlungsverk eftir Kjarval
hafa frekar verið að gefa eftir í verði
og sölumöguleikum en góðu verk-
in hans hafa alltaf staðið fyrir sínu.
Verk eftir Þorvald Skúlason hækka
í verði og sama má segja um verk
Karls Kvaran.“
Bessastaðir Kjarvals
Verkin sem eru boðin upp á þessu
hundraðasta listmunauppboði eru
196, 100 eru boðin upp á mánu-
dagskvöld og 96 á þriðjudags-
kvöld. Verkin eru til sýnis í Gallerí
Fold á Rauðarárstíg frá föstudegi til
þriðjudags. Uppboðið er nokkuð
sérstakt því þar eru ekki einungis
boðnar upp myndir og skúlptúrar
heldur einnig verðmætir skartgrip-
ir og skipslíkön. Myndirnar eru þó
mest áberandi, margar merkilegar.
„Meðal mynda á uppboðinu er
mynd af Bessastöðum eftir Kjarval
en hann málaði mjög sjaldan hús.
Þessi mynd var máluð fyrir þann
Tómas sem Tómasarhagi heitir eft-
ir og sýnir útsýnið til Bessastaða.
Við erum með fimm metra langt
verk eftir Húbert Nóa, skúlptúr eft-
ir Sigurð Guðmundsson og stórt
verk eftir Ólaf Elíasson. Þegar kem-
ur að frumherjunum þá erum við
með stórt verk eftir Louisu Matth-
íasdóttur, tvö verk eftir Þórarin B.
Þorláksson og þrjú verk eftir Krist-
ínu Jónsdóttur. Við erum með bók-
verk eftir Dieter Roth og Eggert
Pétursson. Þannig að það kennir
ýmissa grasa,“ segir Jóhann.
Jóhann hvetur fólk til að koma
og skoða verkin. „Uppboðssýn-
ingarnar eru bestu sýningar sem
völ er á,“ segir hann. „Kjarvalsverk-
ið sem sýnir Bessastaði var málað
fyrir mörgum áratugum og hefur
verið á sama heimilinu allan þann
tíma. Það kemur hingað í sölu, er á
sýningu í tæpa viku en síðan kaup-
ir einhver það og á það næstu ára-
tugina. Fólk sér þetta verk ekki
endilega nema á þessari sýningu.
Ég er alltaf að hvetja fólk til að koma
á uppboðssýningar til að skoða því
þar er mikil flóra og breidd sem
fólk sér ekki á venjulegum sýning-
um.“ n
Bestu sýningar sem völ er á
„Það er orðið erf-
iðara að selja
landslagsverk nema þau
séu eftir mjög þekkta og
góða listamenn.
n Listmunauppboð númer 100 í Gallerí Fold n Myndir, skúlptúrar, skartgripir og skipslíkön n Erfiðara að selja landslagsverk en áður
Ekki bara mynd-
list Þetta gullfallega
hálsmen verður boðið
upp. Mynd Sigtryggur Ari
Skip og myndir Skipslíkön eru meðal
muna á uppboðinu. Mynd Sigtryggur Ari
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
36 á annnarri
32 á hinni
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Farðu nýjar leiðir og prófaðu ferskar sérvaldar
hrefnulundir á grillið eða á pönnuna
snöggsteiktar að hætti meistarakokka