Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Page 40
Helgarblað 2.–5. september 201636 Fólk
Þær kusu
dauðann
Frægð og frami færa ekki ætíð lífsfyllingu. Hér er fjallað um nokkrar þekktar
leikkonur sem lífið virtist blasa við en þær lifðu óhamingjusömu lífi og fyrir-
fóru sér. Dauði þeirra rataði í heimspressuna og aðdáendur þeirra syrgðu.
n Leikkonur sem frömdu sjálfsmorð
Óbærileg ástarsorg Carole Landis var 29 ára gömul
þegar hún svipti sig lífi árið 1948 og hafði þá leikið í 50 kvikmyndum. Hún átti að baki
fjögur misheppnuð hjónabönd og hafði átt í ástarsambandi við leikarann Rex Harrison
sem var kvæntur leikkonunni Lili Palmer. Harrison vildi ekki skilja við eiginkonu sína
vegna Landis en borðaði með henni síðasta kvöldið sem hún lifði. Landis lést af völd-
um banvænnar blöndu áfengis og róandi lyfja. Harrison var kennt um dauða hennar.
Hann mætti í jarðarförina ásamt eiginkonu sinni. Landis var ekki eina konan sem svipti
sig lífi vegna ástar á Rex Harrison. Árið 1980 framdi leikkonan Rachel Roberts sjálfs-
morð. Hún var fjórða eiginkona Harrison og var niðurbrotin eftir skilnað þeirra.
líf í skugga Þunglyndis Franska leikkonan Capucine lék
í fjölda mynda á ferlinum, þar á meðal í Bleika pardusnum árið 1963, What's New Pussicat og
Satyricon Fellinis. Leikkonan þjáðist af þunglyndi og reyndi nokkrum sinnum að fyrirfara sér.
Vinkona hennar, Audrey Hepburn, reyndist henni afar vel á erfiðum tímum. Capucine var gift
í stuttan tíma á yngri árum en giftist ekki aftur. Hún var 62 ára gömul þegar hún kastaði sér
út um glugga á áttundu hæð á heimili sínu í Sviss.
íslensk
framleiðsla
Án
viðbætts
sykurs
Gott í boostið, matargerð, baksturinn og fleira
Kraftmikil fasteignasala sem fer ótroðnar slóðir
af því að þín
fasteign
skiptir máli