Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Page 41
Helgarblað 2.–5. september 2016 Fólk 37
Fórnarlamb FbI Leik-
konan Jean Seberg lék í fyrstu kvikmynd sinni
árið 1957 og var þar í hlutverki Jóhönnu af Örk.
Hlutverkunum fjölgaði og frægðin lét ekki á
sér standa. Seberg var vinstri sinnuð og komst
á skrá hjá FBI sem lak þeirri fölsku frétt í fjöl-
miðla að blökkumaður í samtökunum Svörtu
pardusunum væri faðir barns sem hún bar undir
belti en ekki eiginmaður hennar, rithöfundurinn
Romain Gary. Fréttin komst í heimspressuna
og varð til þess að leikkonan reyndi að fyrirfara
sér. Í kjölfarið missti hún fóstur. Árið 1979 hvarf
Seberg og lík hennar fannst tólf dögum síðar í
bíl hennar. Hún hafði tekið töflur. Meðal þeirra
sem mættu í útför hennar voru Jean Paul
Sartre og Simone Beauvoir. Fyrrverandi eigin-
maður Seberg, Romain Gary, fyrirfór sér ári eftir
lát hennar. Hann hafði ætíð haldið því fram að
ófrægingarherferð FBI gegn leikkonunni hefði
bugað hana andlega.
barnshaFandI stjarna Litríkt einkalíf leikkonunn-
ar Lupe Velez var stöðugt umfjöllunarefni fjölmiðla á sínum tíma. Þessi skapríka leik-
kona átti í ástarsamböndum við Charlie Chaplin, Clark Gable, Gary Cooper, boxarann
Jack Dempsey og rithöfundinn Erich Maria Remarque og var um tíma gift leikaranum
Johnny Weissmuller sem er frægasti Tarzan allra tíma. Leikkonan framdi sjálfsmorð
árið 1944 en ýmislegt er á huldu um atburðarásina. Að sögn var leikkonan, sem var
ógift, barnshafandi og í miklu tilfinningalegu uppnámi vegna þess. Einhverjir telja að
hún hafi ekki treyst sér til að fæða óskilgetið barn en aðrir segja að hún hafi síðasta
árið þjáðst af geðsjúkdómi sem hafi tekið öll völd. Marilyn Monroe sagði eitt sinn að
draumur sinn hefði verið að verða alveg eins og Lupe Velez.
sjálFsmorð, slys eða morð? Við setjum Marilyn
Monroe á listann en þó með smá fyrirvara. Hún fannst látin á heimili sínu í Los Angeles í
ágústmánuði 1962, 36 ára gömul. Hún hafði tekið inn stóran skammt af töflum. Talið var
langlíklegast að hún hefði framið sjálfsmorð. Einhverjir telja þó að stjarnan hafi ekki ætlað
að fyrirfara sér heldur tekið í slysni of stóran skammt deyfilyfja. Ýmsir telja að Monroe hafi
verið myrt vegna vinskapar síns við John og Robert Kennedy en hvað sem öllum samsær-
iskenningum líður þá hefur alls ekkert sannast í þeim efnum. Þeir sem hafa rannsakað málið
hvað mest og af yfirvegun segja kenningar um morð vera hina mestu fjarstæðu.
Fæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.www.provision.is
Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með
sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað
við aldursbundinni augnbotnahrörnun.
Nú er vítamínið með endurbættri formúlu
sem gerir það enn betra en áður.
AUGNVÍTAMÍN
Augnheilbrigði
Við aldursbundinni
augnbotnahrörnun
Allt til ræktunar
og fullt af fíneríi
fyrir heimilið og bústaðinn
HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook