Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2016, Blaðsíða 46
Helgarblað 2.–5. september 201642 Fólk
Villimey Kalebsdóttir
Nafn Villimeyjar er úr bókum
norska rithöfundarins Margit
Sandemo um Ísfólkið. Villimey
Kalebsdóttir er aðalpersóna í bók-
um 10–13, en í allt inniheldur
þessi dramatíski bókaflokkur 47
bækur.
Á níunda áratugnum komu
bækurnar út og styttu ungum Ís-
lendingum stundir, enda ekkert
alnet í boði á þeim tíma. Þær voru
svo endurútgefnar hér á landi á
árunum 2005–2010. Óhætt er að
segja að þær hafi sett mark sitt
á lesendur því nöfn úr bókinni
fóru að verða algengari í íslensku
þjóðskránni þegar aðdáendur
bókanna komust á barneigna-
aldur.
Saga Ísfólksins hefst á 16. öld
þegar Þengill hinn illi selur djöflin-
um sál sína og kemur um leið afkomendum sínum í talsverð vandræði.
Villimey var rammgöldrótt og góð og barðist gegn bölvun forföður-
ins. Hún giftist Dominic Lind og samband þeirra var æði lostafullt.
V
illimey segir að sagan á
bak við nafnið sé frekar
rómantísk. „Mamma mín
var 15 ára þegar hún sá
pabba minn í fyrsta sinn.
Hann var þá pönkari með hana-
kamb, og er það reyndar ennþá.
Hún var heilluð af honum og ákvað
að með þessum manni myndi hún
eignast barn sem ætti að heita Villi-
mey. Þau byrjuðu svo saman og ég
kom í heiminn nokkrum árum síð-
ar. Pabbi vildi bæta við nafninu Líf,
því það var uppáhaldspersóna hans
í bókunum um Ísfólkið.“
Villimaður!
Það var hins vegar ekki einfalt
að fá að nefna stúlkuna Villimey.
Mannanafnanefnd neitaði umsókn
foreldranna á þeim forsendum að í
karlkyns útgáfu væri nafnið Villimað-
ur – og það þótti ekki alveg nógu gott.
Foreldrarnir mótmæltu svarinu með
erindi til umboðsmanns Alþingis,
sem meðal annars var rökstutt með
því að nafnið tæki íslenska beygingu
og væri sambærilegt við nafnið Frið-
mey, en allt kom fyrir ekki.
„Þegar ég var hálfs árs göm-
ul barst foreldrum mínum svo bréf
þess efnis að þau þyrftu að láta mig
heita Stúlkubarn Líf Friðriksdótt-
ir, eða gefa mér annað nafn, ellegar
yrðu þau beitt dagsektum. Þau höfðu
nú ekki mikið milli handanna svo að
þau ákváðu að finna annað nafn fyr-
ir mig og halda svo áfram að berjast
fyrir mínu rétta nafni.“
Þykir vænt um gamla nafnið
Nafnið sem varð fyrir valinu var Nótt
María Líf. Maríunafnið var sterkt
í fjölskyldunni og Nótt bættist svo
við fyrir utan Hagstofuna. „Mér þyk-
ir alveg vænt um þetta nafn, þó að
það hafi aldrei verið hluti af mér.
Ef ég eignast einhvern tíma stelpu
mun hún fá þetta nafn. Mamma og
pabbi voru ekkert að fela þetta fyrir
mér, en fyrsta minning mín um það
var þegar ég fór í banka með pabba
til að opna bankareikning. Ég hafði
áður átt reikning í Búnaðarbankan-
um, þar sem ég hét Villimey á öll-
um pappírum, en var að opna reikn-
ing í Landsbankanum og fór þangað
með pabba. Mér fannst undarlegt að
klikkaða konan í bankanum skyldi
kalla mig Nótt.“
Í leikskóla og grunnskóla gekk vel
að heita Villimey, en í menntaskóla
olli það stundum ruglingi. „Mamma
og pabbi höfðu reyndar bæði unnið
við módelstörf í FB svo að margir
kennaranna þekktu mig. En ég man
eftir að hafa setið í tíma og hlustað á
pirraðan kennara kalla á einhverja
Nótt, sem auðvitað svaraði engu. Svo
lenti ég í því að vera kölluð ansi seint
inn í U16-landsliðið í fótbolta því að
allir voru að mæla með einhverri
Villimey sem fannst aldrei á form-
legum listum íþróttafélagsins.“
Þakklát
Villimey er þakklát fyrir nafnið sitt og
segir að það hafi kennt henni að bera
virðingu fyrir nöfnum annarra. „Mér
finnast það forréttindi að fá að heita
óvenjulegu nafni. Líka að alast upp
hjá karlmanni sem er ennþá í leð-
urjakka og með hanakamb. Að eiga
mömmu sem er hippi og pabba sem
er pönkari hefur víkkað sýn mína á
heiminn. Þau eru bæði svo frjáls og
falleg á sinn eigin hátt.“
Nú liggur fyrir að sækja um ný
kort í bankanum, nýtt vegabréf og
ýmislegt þar sem nafn samkvæmt
Þjóðskrá kemur fram. „Ég er ekk-
ert smá spennt fyrir þessu, og hefði
eiginlega aldrei trúað því hvað sam-
þykkið hafði mikil áhrif á mig.“ n
Fær loksins
að heita
Villimey
Villimey Líf Friðriksdóttir fékk bréf
frá Þjóðskrá Íslands um daginn. Í því stóð að hún
mætti heita nafninu sínu, rúmlega 22 árum eftir
að foreldrar hennar sóttu fyrst um nafngiftina til
mannanafnanefndar.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is „Mér finnast
það for-
réttindi að fá að
heita óvenjulegu
nafni
Villimey Hún
vinnur í Krikaskóla
í Mosfellsbæ með
fötluðum börnum
og þjálfar stelpur
í fótbolta. Svo
er hún nýbyrjuð í
þroskaþjálfanámi
í Háskóla Íslands.
Mynd SigtRygguR ARi
Gæði í
merkingum
www.graf.is
• Sandblástursfilmur
• Skilti úr málmi, plasti og tré
• Merkingar á bíla
Hjallahraun 2, Hfj. - S: 663-0790